Fálkinn


Fálkinn - 15.02.1961, Síða 8

Fálkinn - 15.02.1961, Síða 8
ÞORSTEINN JÓNSSON FRÁ HAMRI: Frost og kuldi kvelja þjóð — koma nú sjaldan árin góð. Þetta kvæðisbrot er eitt af mörgum kveinstöfum þeirrar kynslóðar á íslandi sem lifði kríngum aldamótin 1600, timabil sem ekki átti sinn líka um eymd og volæði síðan Svartidauði geisaði. Þessi píslarár hófust fyrir alvöru veturinn 1600—1601. Á Magnúsmessu fyrir jól þann vetur var sólmyrkvi og með þeim degi brá til harðinda svo um munaði. Sá vetur var síðan kallaður Lurkur. „Hestar frusu þá til bana með dægri“, segir Jón Espólín í Árbókum. Skepnufellir var mikill og í kjölfar þessa vetur fylgdi grasleysi og hafísar. Næsti vetur eftir (1601—1602) var kallaður Píníngarvetur og gekk yfir með svipuð- um hætti; fylgdi mannfall mikið af sótt- um og húngri. Þriðja veturinn (1602— 1603) „varð mannfall mikið af fátæku fólki af sulti um allt ísland.“ Bæir eyddust og blóðsótt drap fólk tugum saman í hverri sókn. Fjórði veturinn var kallaður Eymdarár; var ekkert lát á harðindunum og blóðsóttin óð yfir; hafís kom og um vorið. Talið var þá að á þessum þremur harðærisárum hefðu dáið átta hundruð fátækra förumanna, en níu þúsundir manna yfir landið allt. Fimmti veturinn (1604—1605) var enn allharður, en uppúr því linnti þessum fádæmum. Verður ekki í tölum talið hve ægileg eftirköst þjóðin hlaut, hve dugur allur hjaðnaði hröðum skrefum. Þjóðin var niðurnídd — og var hagur hennar þó eingan veginn góður fyrir. Ofaná þetta bættist danskt ok. „En svo mikil fávizka var þá með mörgum al- múga um andlega hluti og þánkaleysi um annað en vanann einan, að eigi mundu menn eða varla trúa á vorum dögum“, segir Espólín. Alls staðar blöstu við tákn og fyrirmæli um að sýna auð- mýkt, trú og hlýðni frammi fyrir huld- um eða jarðneskum höfuðskepnum: gír- ugir valdsmenn með böðla við hlið, sult- urinn og barsmíðarnar, guð og satan og ekki sízt bæklingar Guðbrands bisk- ups um hreinsunareldinn, síðasta dóm, helvíti o. s. frv. Úngur sem gamall laut höfði í seyrunni. Það var mörg manneskjan soltin á ferli þessi ár. ★ Um Vesturland ferðast kona með úng börn sín tvö, stúlku og pilt. Hann er þeirra ýngri, fríður sýnum og glóbjart- ur á hár. Þessari fjölskyldu er óvíða vel tekið. Öllu oftar er hreytt í þau skætíngi og illyrðum og margir kjamsa á ófögrum söguburði: Hún er morðíngi, — og henn- ar ektamaður var margfaldur morðíngi .. . Sagt er þau hafi drepið 18 manns. Hún slapp við straff fyrir það hún var ólétt að stráknum. Betur að þetta hyski væri brennt og steglt. Guð varðveiti öll sín börn. Lurkur og Píningsvetur nísta horað- ar barnakjúkur. A Þess var getið í þætti Axlar-Bjarnar að Þórdís, ekkja hans, var þúnguð er hann var líflátinn 1596; ól hún son er skírður var Sveinn. Þótt raunar sé lítið um Þórdísi vitað framyfir það sem þar er rakið, telja menn sennilegt að árin á eftir hafi hún ferðazt vestur um land og dvalizt eitthvað á Vestfjarðakjálkan- um, líklega ísafirði. — Barbara dóttir þeirra Bjarnar kemur að sagt er fram á Barðaströnd fimm áratugum síðar, og má vera að hún hafi alið aldur sinn þar. Þjóðsögur herma að Þórdis hafi ásamt Sveini dvalizt um hríð í Svart- árdal í Húnaþíngi á bæ þeim er Skotta- staðir heita, en það mun að líkindum vera ímynduð skýring á viðurnefni son- ar hennar: hann var er hann stálpaðist kallaður skotti. En hann hóf úngur þá iðju sem kölluð var landhlaup og flakk; hann skottaðist um einsog kvendraug- arnir og tóan. Sveinn var snemma kenndur við ó- knytti, en þótt erfðir komi þar ef til viil til greina, mætti geta sér til um og hugleiða uppvöxt Sveins og atlæti það er hann hefur búið við. Axlar-Björn vakti ótta og viðbjóð hvenær sem nafn hans bar á góma, enda skammt liðið frá hryðjuverkum hans; og samkvæmt þeirri meðferð sem börn almennast sættu á þessum tíma, hefur Sveinn skotti hlotið að gjalda uppruna síns ekki síður en margur sem annars og meira þótti verður. ★ Sagt er að Sveinn hafi að fullu gerzt umrenningur innan tvítugs; fór hann víða um land, varð snemma alræmdur flagari og gat börn allvíða. „Mjög ófræg- ur um allar sveitir af ýmsum skammar- verkum“. Mest eru sagnir af Sveini þó teingdar við Vestur- og Norðurland, og bendir flest til að hann hafi mest um garða geingið í ísafjarðarsýslu. Ein- hverntíma kom hann við í Hornarfirð- inum, því þar var hann lýstur faðir að barni. Það var skírt Gísli; var Gísli sá auknefndur hrókur síðar. Margar ófagrar sögur hafa verið á gángi um Svein og eru sumar þeirra ósviknar hryllingssögur. Verða á þeim litlar reiður hentar, og verða ýmsar þeirra utanveltu hér. En nú skal sögð ein glettin saga af hnupli hans: Eitt sinn kom Sveinn á bæ nokkurn vesturí Arnarfjarðardölum. — Eingja- sláttur stóð yfir og var heimilisfólk við heyannir á eingjum, en nokkur börn gættu bæjarins. Þau voru að leik; en Skotti laumaðist í búrið án vitundar þeirra og fyllti poka sinn af ýmsu mat- arkyns, helzt því er mest góðgæti var. Að því loknu tók hann börnin tali, gæddi sér jafnframt á feing sínum og rétti börnunum bita og bita. Börnin urðu þakklát og sögðu við Svein að skilnaði: Guð drýgi í pokanum þínum, Sveinn minn! Hann þarf þess ekki; ég get það sjálf- ur, svaraði Sveinn. ★ Jón hét maður, er kallaður var Sýju- son; „hann tamdi sér galdur og aðra illmennsku“. Á ofanverðum flækingsdögum Sveins skotta flakkaði Jón þessi um Vestfirði, að mælt er. Lögðu þeir Sveinn lag sam- an alllanga hríð, og lá það orð á að þeir stælu í sameiningu fé manna af afréttum og hefðu fleira óknyttasamt að. Jón var mikið grunaður um fjöl- kynngi, og sú saga er til um Svein, að hann hafi numið þau fræði af Jóni, er dygðu honum til þess að honum héldu hvorki bönd né snara, ef hann væri tekinn til fánga. Hversu leingi þessi félagsskapur stóð, geta menn ekki um, en fyrir miðja öldina kemur Jón við sögu undir Jökli. Þá varð hann sekur um barneign með fósturdóttur sinni, en þrætti jafnan fyr- ir. Hann var tekinn af lífi á Alþíngi Hér segir frá Sveini skotta, syni Axlar-Bjarnar, sem gerðist ungur umrenningur og stundaði ýmsa óknytti 8 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.