Fálkinn


Fálkinn - 15.02.1961, Qupperneq 9

Fálkinn - 15.02.1961, Qupperneq 9
hrökklaðist Sveinn vestur fyrir Vatns- skarð og tók að iðka venjur sínar í Húnavatnsþingi. Fór hann yfir með stuldum, hrekkjum og ofbeldi við kon- ur; er orðlagt hversu illyrtur hann var við menn og siðlaus í hvívetna, ekki sízt það er varðaði „guðlega hluti“. Magnús hét prestur Einarsson prests frá Myrká; hann bjó að Undirfelli í Vatnsdal, kvæntur var hann konu þeirri er Oddný hét og var Einarsdóttir, væn kona. Sveinn komst eitt sinn í námunda við prestskonuna og reyndi að taka hana nauðuga, en svo vildi til að hún gat kallað á aðra konu til hjálpar sér. Komu nú menn til og tóku Svein. Veittu Vatnsdælir honum eftirminnilega ráðn- íngu, og er sagt að þeir hafi flæmt hann úr dalnum með svipum. ★ Sumarið 1746 var Sveinn skotti færð- ur til Alþíngis, og skrifaði Brynjólfur biskup Sveinsson af því tilefni bréf, sem enn er varðveitt og hefur þótt merkilegt. Á því má m. a. sjá, að Sveinn hefur verið sakaður í og með um með- ferð galdurs. Það er svohljóðandi: „Friður guðs, sá hærri er öllum skiln- ingi, varðveiti vor hjörtu og hugskot í Christo Jesu vorum herra. — Hér með heilsa ég konunglegrar maiestets full- mektugum fógeta yfir íslandi, lögmönn- um báðum og allri lögréttu, bjóðandi þeim öllum og sérhverjum skylduga virðing, hollustu og vinskap í öllu kristilegu, tilbærilegu, náunglegu. — Vitið, góðir herrar, og gunstugir vinir, að þessi aum og fáráð manneskja,Sveinn Björnsson, er nú hingað kominn í guðs auglit og guðhræddra yfirdómara, allra helzt og sérdeilis hingað fram fluttur undir veraldlegs valds leiðrétting af kristilegri kirkju, í móti sjálfs síns vilja og ásetningi, hver kristileg kirkja um það kvartar og kærir fyrir yður, guðs dýrðar og sinnar velferðar vegna, að þessi auma og fortapaða manneskja hef- ir svo leingi í hirðuleysi, forsmán og foröktun guðs heilaga nafns og hans orða og sakramenta mestallan sinn ald- ur alið, og sig í djöfulsins ríki og íþrótt- um iðkað á margan hátt með ókristi- legum lifnaði og vondum athöfnum, sem næsta því öllu stiptinu, og jafnvel hinu, mun kunnugt og opinbert vera, svo hann um þann langa tíma meir og meir hefur fjarlægzt vorum guði, en sam- lagazt djöflinum og lifa, sem einn hold- legur djöfull í margan máta án guðs ótta, snarað frá sér umhyggju sinnar sáluhjálpar og síns viðskilnaðar við Frh. á bls. 28 FÁLKINN 9 sumarið 1650, „meðkenndist ei né iðr- aðist, það menn mættu sjá; tók öxin ei á háls honum og vafðist upp á egg- ina; marðist höfuðið af um síðir í 30 höggum; fannst höfuðskel af manni í skó hans öðrum, er hann var dauður, og rúnir á, en í öðrum tréspjald og þar einnig rúnir. Hann var grafinn. Vildi þá ganga aftur; tekinn svo og brenndur. En konan meðkenndist og var drekkt þar á þínginu.“ (Vallholts- annáll). —- Slíkt og þvílíkt hefur vafa- laust ekki dregið úr því orði, er Jón hafði á sér fyrir satans konst. ★ Sveinn Björnsson er kominn undir fimmtugt þegar við byrjum að hafa af honum sögu í samheingi. Þá var hann norðanlands. Sýndi hann af sér margs- kyns óknytti að vanda, og kom svo árið 1745 að sýslumaður í Þíngeyjarsýslu, Þorbergur Hrólfsson hins sterka, er bjó að Seilu í Skagafirði, lét grípa Svein og færa sér. Var hann dæmdur fyrir ýmsa varmennsku og síðan hýddur. Espólín getur þess, að áður en þetta varð hafi Sveinn einnig verið hýddur í Húnavatnsþíngi fyrir „landhlaup og glettíngar". Eftir þessa útreið í Þingeyjarsýslu Teikning: Ragnar Lárusson

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.