Fálkinn


Fálkinn - 15.02.1961, Page 31

Fálkinn - 15.02.1961, Page 31
með vélbyssur en þeir komu ekki skot- um á okkur, vegna þess hve lágt við flugum. Við skriðum inn með hlíðinni fyrir vestan Kristsnes, en þá skeði það sem olli okkur Brandi hræðslu: Flug- stjórinn missti augnablik stjórn á flug- vélinni og hún virtist ætla að lenda í fjallinu. Við vorum mest hissa á því eft- ir á, að skrúfurnar skyldu ekki snerta jörðina, þegar hann náði henni út úr slippinu, svo lágt fór hún. Við lentum á Melgerðisvellinum. Ameríkanarnir komu hlaupandi að flugvélinni úr öll- um áttum með spenntar Tommy-byss- ur. Ég stóð upp og rétti upp hendurnar, upp í gegn um gat á þaki flugstjórnar- klefans. Þeir héldu að við værum Þjóðverj- ar með fölsk merki á flugvélinni. Svif- flugfélag Akureyrar gerði við skemmd- irnar á flugvélinni. Við flugum svo til Egilsstaða og sóttum sjúku konuna. Því næst aftur til Akureyrar. Rétt eftir flugtak á Akureyri kviknaði í flugvél- inni og henni var skyndilega snúið við til lendingar. Flugvélin „Ásta“, sem nú er Gljáfaxi, stóð á flugbrautinni tilbúin til flugtaks og Generalinn frá Keflavík var flugstjórinn. Hann flýði út í móa, þegar hann sá okkur koma með reykj- arstrók aftanúr. Hann hætti við flugtak og bauð sjúku konunni far suður. Hún sagði: „Ég lagði af stað með þess- um mönnum og með þeim fer ég á leið- arenda.“ Og við það sat. GRÆNLAND. — Þú hefur farið margar ferðir til Grænlands. Hver er þér minnisstæðust? — Hinn 31. júlí 1952 fórum við á Katalínaflugvélinni „Pétri gamla“ frá Reykjavík og flugum norður til Ella Eyjar. Veðrið var dásamlegt. Við sváf- um úti undir berum himni í svefnpok- unum. Sólskin alla nóttina. Síðan lent- um við á litlu fjallavatni á rúmlega 80 gr. norður br. Dr. Lauge Koch, en hann var farar- stjóri, sagði að þar hefði enginn maður fyrr stígið fæti sínum. Kyrrðin var svo heillandi, vatnið silfurgljáandi, hvergi snjór í fjallshlíð og .hitinn um 17 stig. Mér flaug í hug, að þegar við fórum frá Reykjavík daginn áður, var snjór í Esjunni. Við skírðum þetta Faxavatn. Eftir flugtak flugum við í norður, síðan út Danmarksfjörð að beiðni Dr. Lauge Koch. Hann var að svipast um eftir vörðum eða öðru álíka er gæti bent til að Mylius Ericson, landkönnuð- urinn, sem týndist á þessum slóðum ár- ið 1907, hefði farið þar um. En við fundum ekkert markvert. Við flugum inn Indepence-fjörð, sem áður var álitið að skipti Grænlandi í tvennt. Síðan norð- ur yfir Peary land og snerum við hjá Dannebrogstindum á 3. gr. n. br. Þá höfðum við flogið í tíu klukku- stundir í hánorður frá Reykjavík. Við lentum svo í glampandi sólskini við Ella Ey. Þessi ferð verður okkur öllum ógleym- anleg. Síðan hef ég verið töfraður af tign og fegurð Grænlands. — Jú, ég hef komið til Angmasalik nokkrum sinnum. Mér rann til rifja fá- tæktin þar og klæðleysi barnanna. Fyrir nokkru fór ég til nokkurra verzl- ana og verksmiðja hérna í Reykjavík og safnaði fötum handa þeim. Þá gaf Jón í Skjólfatagerðinni á annað hundrað kuldaúlpur auk annars fatnaðar. Það var einn dásamlegasti dagur í lífi mínu, þegar ég fór með þessar gjaf- ir til Grænlands. Við lágum fyrir utan Angmasalik og Grænlendingarnir komu á kajökum og konubátum um borð. Það var ógleymanlegt að sjá þakklætið í augum litlu barnanna, sem ég klæddi í úlpurnar frá Jóni í Skjólfatagerðinni og þakklætið í andlitum foreldra þeirra. Hann Jón hefur stórt hjarta, og sjáðu: Hérna í horninu eru þrír kassar fullir af klæðnaði, sem ég bíð eftir að klæða fátæk grænlenzk börn í; það verður dá- samlegt eins og fyrr. Sv. Sæm. Oscar Wilde - Framh. af bls. 11. Fyrsti hluti kvikmyndarinnar sýn- ir okkur Oscar Wilde í öllum sín- um glæsileik og allri sinni dýrð, þar sem hann slær um sig og er hrók- ur alls fagnaðar í öllum samkvæmum. Síðan hefjast réttarhöldin, sem eru meginkjarni myndarinnar. Við sjá- um þá augliti til auglitis, ákærand- ann og hinn ákærða. Oscar Wilde er í fyrstu sigurviss, eldsnöggur og skarpur í svörum, og færist allur í aukana við góðar undirtektir áheyr- enda í réttarsalnum, allt fram að því hræðilega augnabliki, þegar hann hættir sér of langt og skilur, að mál- ið er tapað. „Ætli við verðum ekki að panta nýtt skilti.“ Robert Morely leikur Oscar Wilde og honum tekst að sögn að bregða upp skínandi mynd af þessu þekkta skáldi. Ákærandinn er leikinn af Ralph Richardson og fær mjög góða dóma. í dagsins önn - Framh. af bls. 16. ir, þegar ég umlaði góðan dag. í stig- anum mætti ég tveimur af eiginkonum hússins. Þær buðu brosandi góðan dag, og önnur sagði meira að segja, að ég væri nú aldeilis almennilegur við kon- una mína. Ég var all ygldur á brún, þegar inn kom, en mildaðist brátt, þegar ég fann á lyktinni, að konan væri bæði að hella upp á könnima og renna fyrstu pönnu- kökunni á pönnuna. Hún vissi, hvað kom sér konan sú. Og hún skemmti sér kon- unglega, þegar hún sá, að náþúi okkar var kominn út með teppið og byrjaður að hamast. Ég var jafnvel farinn að hlæja að öllu saman, en runnu þó á mig grímur tvær, þegar konan kallaði mig út að glugganum nokkru síðar, og þar gaf þá að líta fjóra aðra af nábúunum að basla með teppi sín. Þeir breiddu þau á grindverk og garða, eða alls staðar þar sem hægt var. Og allir börðu þeir og hömuðust og voru voðalega reiðilegir á svip. Alveg fram að kvöldmat voru menn að koma út með teppi, berja teppi eða fara inn með teppi. En ég hét sjálfum mér því í hljóði, að ég skyldi kaupa ryk- sugu hið allra fyrsta. Það var heldur ekkert gaman að hugsa til þess að hafa alla sambýlismennina 23 á móti sér. Dagur Anns. Bara fjögur - Framh. af bls. 12. leitt hvenær sem þau gátu komið því við. Þegar þriðja barnið kom í heiminn, spurði Lassi: — Ég skil ekki, hvernig þú berð þig að þessu. Hver er það eiginlega, sem þú hefur í takinu? Þú ert vissulega dug- leg. Ég sé þig aldrei með öðrum karl- mönnum en Petersen og svo mér. — Þagnarheitið, sagði Selma. — Gleymdu því ekki, Lassi. — Ég hef ekki talað um þetta við nokkra lifandi manneskju, sagði Lassi, en nú fer ég að verða forvitinn. Hefurðu kannski í hyggju að hleypa offjölgun í litla þorpið okkar? FÁLKINN 31

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.