Fálkinn


Fálkinn - 15.02.1961, Page 33

Fálkinn - 15.02.1961, Page 33
álsins, tilkynnti hann mér, að ítalir hefðu samið sérfrið við vesturveldin. Ég sagði honum, að nú ætti að skjóta mig, en hann sagði að það væri bull. Nú færi hann til Kesselrings marskálks í Norður-Ítalíu, en ég ætti að verða eftir og brenna öll skjöl. Hann ætlaði að skilja eftir handa mér mótorhjól, sem ég gæti skrönglazt á norður, þegar ég væri búinn að brenna. Ég gerði þetta sem aðmírállinn bað mig um, og sprengdi þýzku herstöðina í loft upp, með öllu, sem í henni var. Áður en reykskýið var blásið burt, var ég seztur á hjólið og ók af stað — ekki norður í land, heldur beint til Róm. Þar bjóst ég við að fá húsaskjól hjá frændfólki mínu. FANGI ÍTALA. Nú var allt á tjá og tundri. Þrjá kíló- metra fyrir utan Róm rakst ég á ítalska riddarasveit. Ég var stöðvaður og leidd- ur fyrir ítalska kapteininn og gerði grein fyrir mér. Kapteinninn var töfrandi náungi og talsverður heiðursmaður. Hann tók öllu vel. Þegar hann spurði, hvort ég teldi mig fanga, sagði ég að það gæti ég varla verið, úr því að ég væri banda- maður ítala. — Nei, svaraði hann. — Þér getið ekki verið bandamaður, því að nú berst ég gegn Þjóðverjum. Ég hef fengið nýj- ar skipanir. Ég svaraði honum, að ég væri Aust- urríkismaður og fús til að berjast við alla Þjóðverja, sem yrðu á vegi mín- um. Hann varð dálítið hissa. — Þá er auðséð, að þér eruð njósn- ari, sagði hann. — Ég verð að skjóta yður! Mér tókst að sannfæra hann um, að ég væri hvorki njósnari né óvinur. En hann hélt því fram, að ég yrði að vera fangi hans, og úr því að hann var svona alúðlegur, féllst ég á það. Hann setti mig upp á pallbíl ásamt tólf ítölskum dátum, tveim undirfor- ingjum og einum liðsforingja til að gæta mín. Þetta var svo ósvikið ítalskt. Ég var fyrsti fanginn, sem þeir tóku, og þeir voru ótrúlega hreyknir af mér. Ég drakk vín með liðsforingjanum alla leið til ítölsku stöðvanna í Róm. Mér tókst að sanna hver ég væri. Einn frændi minn var ofursti í ítalska flughernum, og hann sagði strax, að þessi Trauttmansdorff gæti orðið þeim að liði. Svo var mér fengin byssa frá 1896 og ég brenndi þýzka einkennis- búninginn minn fyrir augunum á ítöl- unum. Þeir grétu og föðmuðu mig og kysstu á báðar kinnar og innrituðu mig í vara-herdeild hjá sér. Svona atvikaðist það, að einn góðan veðurdag var ég kominn á vörð við aðalbrautarstöðina með nokkurra manna sveit, í öllu óðagotinu sem þá var í Róm. Mér lá við að hlæja að þessu. Fyrir- liðinn okkar skipaði okkur að hefja skothríð til þess að verja stöðina, því að nazistasveit var að skjóta á hana sí og æ. En svo skaut upp öðrum ítölskum foringja, sem skipaði okkur í bræði að hætta að skjóta á bræður okkar Þjóð- verja. Það var ekki auðvelt að átta sig á þessu, og foringinn okkar komst að þeirri niðurstöðu, að réttast væri að við hypjuðum okkur heim í herskálann. En um leið og við héldum af stað, kom sveit þýzkra fallhlífarhermanna fyrir hornið á móti okkur. Liðþjálfinn þeirra var öskuvondur og hafði ástæðu til að vera það, því að margir menn höfðu verið drepnir af honum í skothríðinni. Hann skipaði okk- ur í röð og lét okkur þramma inn í sundurskotið hús. Og svo hótaði hann að skjóta tíunda hvern úr okkar hóp, nema þeir sem höfðu skotið mennina hans gæfu sig fram. í FELUM HJÁ FRÆNDFÓLKI. Ég sá mér fljótt leik á borði. Á bjag- aðri þýzku sagði ég, að enginn okkar hefði skotið. Ég benti á hús fyrir hand- an götuna, sem var fullt af ítölsku fas- istaliði, og sagði að skotin hefðu kom- ið þaðan. Liðþjálfinn var freyðandi af vonzku og skipaði mönnum sínum að gera at- lögu að húsinu. Meðan verið var að fara með okkur í fangelsið — sem hefði kostað mig lífið — gat ég ekki annað en brosað að sprengihvellunum og hljóð- unum úr fasistahúsinu. Ég varð að flýja. Nú var farið með okkur á brautarstöðina aftur, en þar þekkti ég alla rangala út í æsar. Undir- göngin sem verið var að byggja, voru uppáhalds-athvarf fólks, sem var í ást- arævintýrum og ég þekkti þennan stað vel. Ég hafði oft notið skjóls þar. Ég beið þangað til varðmennirnir litu af mér augnablik, en þá vék ég mér til hliðar og hvarf á svipstundu inn í ein göngin. Beið þar þangað til dimmt var orðið og laumaðist svo af stað til Plaza Navona, þar sem ættingjar mínir, prinz og prinzessa Lacellotti, áttu heima. Þau tóku mér opnum örmum. Og sama gerði Natalia dóttir þeirra, yndisleg stúlka, sem ég var mjög hrifinn af. Lancellotti prinz faldi fjóra syni sína og ýmsa aðra fyrir Þjóðverjum. Hann lét mig fá tvenn falleg föt — ég hef aldrei átt jafnfalleg föt, fram á þennan dag — og sá mér fyrir frambúðar felu- stað hjá Apron nokkrum barón, sem var sendifulltrúi Ungverjalands í páfa- garði. Það fór vel um okkur heima hjá bar- óninum. Vindlarnir og koníakið fyrsta flokks. Einn daginn þegar mér var sagt að fela mig í baðklefanum, rak ég aug- un í hnípinn mann, sem sat á brúninni á baðkerinu. Ég varð hissa. Þetta var gamall vinur minn — Aspreno Colonna prinz. Við vorum þarna í baðklefanum í tvo mánuði, meðan barizt var sem heift- arlegast. Alltaf komu nýjar og nýjar birgðir af koníaki frá Búdapest. Við höfðum gaman af að hlera þegar hús- bóndi okkar var að tala við gesti sína úr þýzka sendiráðinu. Eitt kvöldið kom Apron barón inn til okkar og afsakaði sig. Hann gæti því miður ekki hýst okkur lengur, en í staðinn ætlaði hann að gera okkur að munkum! Spaða ás - Framh. af bls. 23. sagði hún, að við kynnum ekki öll að meta hve riddaralega honum hefði far- izt. En maðurinn hennar tók fram í fyr- ir henni ef til vill hefur hann ekki verið jafn sanntrúaður og hún á allt það, sem hún kallaði forsjón guðs. En hann sagði að hann væri hróðugur af að hafa kynnzt öðrum eins manni og Carruthers. í rökkrinu sama dag að kvöldi lenti ég í annað skipti á þessum stað. Hjálp- arvélin var full af mexikönskum her- mönnum frá Veru Cruz. Ég hafði fengið sæti með því að segja að ég væri mág- ur Carruthers. Tengdir eru þungar á metunum í Latnesku-Ameríku. Enginn kom út á völlinn til að taka á móti okkur, fremur en um morgun inn. Liðsforinginn í vélinni léði mér skammbyssu, og svo héldum við í fylk- ingu að tollskýlinu. Indíánarnir höfðu komið og voru farn- ir. Carruthers var dáinn -—- tvær kúl- ur í líkinu. Þeir höfðu skorið af hon- um höfuðið og haft burt með sér, og eftir blóðpollunum að dæma, höfðu þeir misst menn og haft þá með sér á burt. Við sváfum í skýlinu um nóttina og grófum Carruthers fyrir sólaruppkomu, vegna flugnanna. Gröfin var bæði stutt og þröng. Veslings Carruthers! Þeir skutu úr byssum yfir gröfinni, sumpart til heiðurs hinum látna, sumpart til þess að fæla Indíánana frá. Þegar við gengum inn í skálann aft- ur til að fá okkur kaffi, sagði liðsfor- inginn: „Hann var hetja, þessi mágur yðar!“ Ég féllst á það. Liðsforinginn var laglegur, lítill maður, með mein- leysisleg rádýrsaugu. Svo rétti hann mér feimnislega ofurlítinn böggul. í honum var það, sem þeir höfðu fundið í vösum Carruthers. Hvort ég héldi að eitthvað vantaði? Ég þakkaði honum fyrir og opnaði böggulinn. Tóm vasabók og fóðrið rifið úr. Mynd af Carruthers, hnarreistum á hestbaki. Nokkrir lyklar og vasaklút- ur. Pípan hans. Tveir reikningar — ann- ar frá London, hinn frá gistihúsi í Guate- mala City. Og að síðustu — eitt spil. Liðsforinginn var að segja eitthvað, en ég man ekki hvað það var. Ég hló. Ég vona að hann hafi ekki haldið að ég væri að hlægja að sér. Spilið var spaðaás. FALKINN 33

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.