Fálkinn


Fálkinn - 11.04.1962, Page 4

Fálkinn - 11.04.1962, Page 4
séð & heyrt Köttur, sem málar Enda þótt glyrnan gul, sé viðsjárverð, leikur lítill vafi á því að kettir geta fleira en malað og drepið mýs. Þessi kisa heitir Topsy og það hefur komið í Ijós að hún getur teiknað og málað. Myndina, sem hún stendur við, hefur hún gert sjálf, og sýnir hana hjá Foyles í London. Topsy hefur málað margar aðrar myndir, en þessi er að allra dómi, sú bezta. Málverkið á annars að sýna sirkushest með reiðmanni. Þessi furðuköttur er í eigu dr. Coopers, en hann á einnig síamskött, sem er furðulegum hæfileikum gæddur. En sá köttur er ekki nógu vel lærður í listinni til þess að geta sýnt opinberlega. Furðulegar sápur 1 flestum löndum eiga foreldrar í erfiðleikum við að fá börn sín til þess að þvo sér bak við eyrun og yfirleitt fá þau til þess að þrífa sig. En nú hefur sápuverksmiðja í París sent á markaðinn sápu, sem á að sigra krakkana. Sápa þessi er þannig gerð, að inni í hverju stykki er falið örlítið leikfang. En þá fyrst er unnt að ná leikfang- inu, þegar búið er að nota alla sápuna. Nú spyrja menn, hvort börn- in muni ekki nota tækifærið og gera ekkert annað en^þvo sér. Dágoðar auglýsingar Þessi auglýsing var á Gallatin veitingahúsinu í Kaliforníu: Ef þér viljið njóta ánægjulegrar kvöldstundar á veitingahúsi, Þá er Gallatin staðurinn. Liggur mjög miðsvæðis, miðja vegu milli sjúkrahússins og fangelsisins. Auglýsing í biaði í Róm: ■— Vildi herramaður sá, sem kyssti mig og bað mín á laugardagskvöldið á spönsku tröppunum, gera svo vel að hafa samband við mig strax. Annars neyðist ég til að giftast þeim, sem ég er núna trúlofuð. Gestaleikir Hjónin voru bæði talin vingjarnleg og gestrisin. Og oft og tíðum komu vinir og kunningjar óvænt í heimsókn. En því var ekki að neita, til voru þau kvöld og þeir dagar, sem hjónin vildu vera ein. Þau voru ekki lengi að komast að því, hvernig bezt var að losna frá gestum. Ef þau vilja komast hjá því að taka á móti gestunum, fara þau einfaldlega í utanyfirföt og þykjast vera að fara út. En ef um skemmtilega gesti er að ræða og þau eru komin í yfirhafn- irnar, þá venda þau sínu kvæði í kross og segja við gestina: — Nei, en hvað þetta er heppilegt við vorum rétt í þessu að koma heim. Maður frá Texas hafði heimsótt Nigara fossana og lýsti þeim í bréfi til vinar síns með þessum orðum: — Þetta var dýrlegt — vatnið fossaði, sem kampavín. Lúðvík XVIII. Frakkakonungur, sem tók við völd- um eftir Napoleon mikla, átti áefri ár- um mjög erfitt með að ganga. Sjálfur vissi hann, að hann átti ekki langt ólif- að og sjálfur tók hann því með heim- spekilegri ró. Samt var það eitt, sem olli honum kvíða; sem sé, að bróðir sinn mundi taka við ríkjum eftir sinn dag. Þessi bróðir hans var Karl X. — Herra minn, sagði hann, dag nokkurn við herbergisþjón sinn. Ég veit, að margir Frakkar eru argir yfir því, að konungur þeirra er fótaveikur og getur ekki staðið í fæturna. En hvað munu þeir segja, þegar þeir fá brátt höfuðveikan kóng. ★ Margir álíta Dan- mörku vera osta- land, en þó er Frakkland enn meira ostaland og getur Danmörk ekki keppt við það. Hinn ágæti matmaður og sælkeri Raymond Lindon hefur ekki alls fyrir löngu skrifað bók um osta og osta- karla — þar nefnir hann 290 mismunandi ostategundir, sem hann hefur sjálfur bragðað Annars sendi hann bókina til Churchill, sem einnig kann vel að meta osta. Og gamli maðurinn sendi honum þakkarbréf, sem hlýtur að gleðja frönsk hjörtu: — Land, sem getur státað af 300 ostategundum, hlýtur alltaf að lifa. ★ Einn vinsælasti skemmtikraftur í bandarískum nætur- klúbbum er um þess ar mundir Jerry Lewis. — Vitaskuld kann forstjórinn lag ið á því að hafa hann góðan og ein- hverju sinni heiðr- aði forstjórinn hann með dásamlegum Rolls Royce, sem sérstaklega var inn- réttaður með síma og plötuspilara fyrir hæg- gengar plötur. — Finnst þér þetta ekki vera glæsilegt skip? spurði forstjórinn hann stoltur yfir göfugmennsku sinni. — Mjög svo, sagði hinn þakkláti Jerry, en hvar er skipstjóraklefinn, ef ég fer í lang- ferð. FÁLKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.