Fálkinn


Fálkinn - 11.04.1962, Blaðsíða 22

Fálkinn - 11.04.1962, Blaðsíða 22
cwi«- réttir Mörgum finnst egg og páskar eiga samleið. Hér eru því nokkrar eggjaupp- skriftir. Sólauga. 4 hráar eggjarauður. 4 msk. saxaðar, sýrðar rauðrófur. 2 msk. saxaður laukur. 2 kryddsíldarflök. 4 msk. söxuð steinselja. Sítrónusafi. Rifin piparrót. Allt saxað, en haldið aðskildu. Setjið 4 tómar eggjaskurnir á lítið fat, raðið rauðrófum, lauk og síld utan með svo myndist hringir í kringum þaer. Fjar- lægið skurnina, setjið eggjarauðu í stað- inn. Steinseljan sett á fatið, pressið dá- litlum sítrónusafa yfir hana. Egg með ansjósu. Harðsoðin egg. Ansjósur eða kryddsíld. Tómatar. Majonnes. Kapers. Smjörsteikt brauð. Harðsjóðið eggin, látið þau í kalt vatn. Takið skurnina utan af. Skerið af gnn- an endann, takið rauðuna varlega úr. Merjið hana ásamt síldinni. Fyllið eggið með kreminu á eftir. Hrærið það út með majonnes og smyrjið því á kringl- óttar steiktar brauðsneiðar. Leggið tó- matsneið þar ofan á. Sprautið majonnes í kring og stráið kapers yfir. Hvolfið egginu, í miðjuna. Ostfrauð. 100 g smjöi'líki. 40 g hveiti. % 1. mjólk. Salt, pipar, muskat. 4 egg. 100 g bragðsterkur ostur. Bræðið 75 g af smjöri, hrærið hvéit- inu saman við, þynnið út með heitri mjólkinni. Soðið 5 mínútur. Kryddað. Hrærið afganginum af smjörinu saman við ásamt rauðunum, einni og einni í senn. Eggjahvíturnar stífþeyttar, blandað varlega í deigið. Síðast er rifna ostin- um blandað í. Hellt í smurt, eldfast mót (með beinum kanti), sett strax inn í meðalheitan ofn 200°. Bakað í 25—30 mínútur. Borðað undir eins. Harðsoðin egg í skál. Harðsoðin egg í skál. 160 g hveiti. 100 g smjörlíki. 1 egg. Ögn af salti. 3 dl. soðin hrísgrjón. 1 dl. majonnes. 1 tesk. karry. Harðsoðin egg. Karsi eða steinselja. Smjörlíkið mulið og hveitið, vætt í með egginu. Hnoðað. Flatt út. Þekið innan tertumót með deiginu, stingið það með gaffli og bakið það við góðan hita. Kælt. Fyllt með hrísgrjónum, sem majonnes og karry hefir verið hrært saman við. Stingið heilum harðsoðnum eggjum ofan í. Skreytt með karsa eða steinselju. Kökunppskriftir Frh. af bls. 19 fram, annars linast þær. Þeytið rjóma og eggjahvítu, hvert fyrir sig. Blandið eggjahvítunni varlega saman við rjóm- ann. Sprautað inn í rúllurnar frá báð- um endum. Úr þessari uppskrift fást um 30 rúll- ur, sem geymast vel svo fremi að köku- kassinn sé vel loftþéttur. 22 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.