Fálkinn


Fálkinn - 11.04.1962, Blaðsíða 26

Fálkinn - 11.04.1962, Blaðsíða 26
ÞAÐ VAR steinhljóð í herberginu. Doris sat eins og þrumu lostin við hlið Pedros. Pedro bjó sig undir að rísa á fætur. Julian vék sér beint að Doris: — Þú kemur strax með mér heim! Doris stóð skjálfandi á fætur og leit tortryggin í áttina til Ceciliu. Pedro reis á fætur. — Afsakið, hóf hann máls, — en ég hef kynnst dóttur yðar og vil gjarna ... Julian greip fram í fyrir honum. — Ef þér eigið erindi við dóttur mína þá getið þér heimsótt hana í hús mitt, sagði hann stuttaralega. — Þér eruð velkominn heim til okkar hvenær sem er, en mér geðjast ekki að því að þér séuð að hitta Doris á laun. — En kæri Julian, sagði Cecilia og tók fram silkivasaklút og þurrkaði sér um augun í ákafa. — Hvers vegna ertu að gera slíkt veður út af þessu? Ég er hrædd um, að þú vitir alls ekki hvernig þetta er allt saman í pottinn búið. — Ég veit allt um þetta, Cecilia. Og framvegis vildi ég mega biðja þig að skipta þér ekki af uppeldi dóttur minnar. , i Augu Ceciliu skutu gneistum. „Dóttur minnar“ hafði hann sagt. Hún var að því komin að móðga Julian, en þegar hún leit framan í hann, ákvað hún að þegja. ★ Þegar Julian fór frá Bursagasse, sátu konurnar tvær einar eftir í forstofunni. Bettina var mjög föl. — Má ég bjóða yður eitthvað að drekka? spurði Gabriela. Innst inni var hún hrædd við fyrri konu Julians, en á þessari stundu kenndi hún í brjósti um hana. Bettina svaraði játandi og Gabriela varð fegin að fá eitthvað til þess að sýsla við. Hún útbjó bakka með glasi og karöflu með sherry og lét sig síðan falla niður í stól sinn. Bettina dreypti á glasinu. Smátt og smátt færðist eðlilegur roði í kinnar henni. — Ég vona að þér séuð því ekki mót- fallin, að ég skuli hafa sezt að í íbúð- inni hérna, sagði hún loks. — Við þurf- um ekki að hafa svo mikið saman að sælda, þótt við búum í sama húsinu. — Þetta var víst bezta lausnin, eins og málum var háttað, sagði Gabriela lágt. — Annars flytjum við bráðlega, Julian og ég. Bettina hrökk svo snöggt við, að nokkrir víndropar féllu í kjólinn henn- 26 FÁLKINN ar. Ætlaði Julian að flytjast á brott frá Túbingen? Ákafur ótti óx innra með henni. •— Já, hélt Gabriela áfram og tók sígarettu úr hylki, sem lá á borðinu. — Julian hefur einmitt staðið í samninga- viðræðum við fyrirtæki, sem vill hefja framleiðslu á nýja hjartalyfinu hans. Bettina dró andann djúpt að sér. — En. . . en það er stórkostlegt svaraði hún. Gabriela hélt áfram: — Ég vona, að hér eftir geti Julian helgað allan tíma sinn vísindastörfum, og þurfi ekki að eyða kröftum í niður- drepandi brauðstrit eins og apótekara- starfið er í hans augum. — Dásamlegt sagði Bettina. — Ég á við.. þetta verður dásamlegt hjá ykkur. Gabriela drap í hálfreyktri sígarett- unni. — Við höfum í hyggju að flytjast til Stuttgart... Þá getið þér líka fengið allt húsið til yðar umráða. Bettina reis á fætur. Hendur hennar skulfu eilítið. Hún horfði rannsakandi á Gabrielu. — Já, allt verður þetta víst gott að lokum, sagði hún og fór. ★ Um tólfleytið næsta dag bankaði Julian á dyrnar á íbúð Bettinu. Bettina kom sjálf til dyra. Hún var mjög áhyggjufull á svip. Hún vissi, að kvöldið áður hafði Julian haft Doris heim með sér, en hún hafði enn ekki séð hana. Julian sagði henni alla söguna í stuttu máli. — Grunur þinn reyndist sem sagt réttur, sagði hann í lok frásagnar sinnar og brosti eilítið, og þegar hann sá hversu óttaslegin hún var á svip, lagði hann handlegginn um axlir hennar til þess að róa hana. Fáein andartök voru þau rétt eins og þau væru orðin hjón aftur. Julian hafði'gert þetta ósjálfrátt, en jafnvel þótt hann áttaði sig, lét hann þetta gott heita. — Áttu við að Cecilia. .. hrópaði Bettina. — Já, það er einmitt það sem ég meina. Og satt að segja hafði þessi ungi piltur mjög góð áhrif á mig, bætti hann við og lét handlegginn síga. Hann virti hana fyrir sér. — Ég er ekki alveg viss um, að þú hafir á réttu að standa í þessu máli, Bettina, sagði hann eftir stundar þögn. — Það er ómögulegt að sjá annað en Doris og þessi Pedro elski hvort annað, og... og það er ekki svo auð- velt að ráða við ástina. Við höfum jú sjálf verið ung einhvern tíma ... Bettina roðnaði Minningarnar frá æskudögum hennar birtust henni hver af annarri, en allt í einu varpaði hún þeim öllum frá sér og sagði kaldri og ákveðinni röddu: — Þú þekkir ekki Pedro, Julian. Það er ekki einvörðung sagan um ensku stúlkuna. Það er um margar fleiri að ræða. Já, alltof margar, þótt þær hlytu ekki jafn átakanlegan endi og hún. Julian stóð á fætur. — Það er einmitt þess vegna, sem ég er kominn til þín. Sannleikurinn er sá, að einmitt á þessari stundu situr Pedro Gonzales niðri í skrifstofu minni. Hann er kominn til þess að biðja um hönd Dorisar. Það er ef til vill bezt, að þú komir og talir við hann . . . ★ Pedro stóð við gluggann og sneri baki í Julian og Bettinu, þegar þau gengu inn í herbergið. — Bettina, kallaði hann. — Ég er kominn hingað til að . . . bætti hann við ákafur, en Bettina greip fram í fyrir honum. — Já, já, ég veit það. Maðurinn minn var einmitt að segja mér frá því. Hún stanzaði og uppgötvaði allt í einu, að hún hafði sagt „maðurinn minn“. Hún hafði sagt þetta svo ósjálf- rátt og eðlilega og hún sá á svipbrigð- um Julians, að hann hafði einnig tekið eftir þessu. Hann var mjög áhyggju- fullur á svip. — Ég efast ekki hið minnsta um, að þú og Doris séuð ástfangin hvort af öðru, hélt hún áfram. — En geturðu sagt mér, af hverju þið ætlið að lífa? Þú ert ekki einu sinni hálfnaður með nám þitt, og Doris raunar ekki heldur. Þú hlýtur að skilja, að við getum ekki sagt já og amen við þessu að svo komnu máli. Pedro rétti úr sér: — Ég er ekki eins bláfátækur og þú heldur. Ég á peninga, sem ég hef erft eftir móður mína. Það er að vísu ekki mikið, en það ætti að nægja okkur fyrst um sinn. — Ég veit nákvæmlega hvað þú átt mikið af peningum, sagði Bettina. —• Það dugar kannski í eitt ár, í mesta lagi tvö, ef þið eruð sparsöm, og það ert þú að minnsta kosti ekki. En það er ekki aðeins þetta atriði, sem er í veginum. Það veizt þú eins vel og ég. Pedro roðnaði og hvítnaði á víxl.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.