Fálkinn - 11.04.1962, Blaðsíða 33
Bjóðið
JViwtdolene
velkownið9 of/
keeðjið
eninsfötunn 1
Húsmæður, sem fylgjast með tíman-
um, eru löngu hættar að nota vatns-
fötu og kúst við gluggaþvottinn.
Þær nota hið vinsæla Windolene.
Rúðan verður hrein
og fín með
Wín dolene
Sutton Roll On, svitalögurinn, rekur hina hvimleiðu
svitalykt á flótta, en skapar í staðinn yndislega
blóma angan og vellíðan.
*
Einkaumboð á íslandi.
SUNNUFELL H.F.
Höfðatúni 10. — Sími 13649.
HrútsmerkiS (21. marz—20. apríl).
Látið ekki peningaáhyggjur spilla gleðinni í þessari
viku. Reynið að taka hlutunum með ró, enda þótt.
eitthvað ami að. Gætið þess enn fremur að sýna alúð
og hjálpsemi heima fyrir, því að það kemur í ljós að
þér hafið sinnt heimilinu of lítið.
Nautsmerkið (21. apríl—20. maí).
Ef heilsa yðar hefur valdið yður áhyggjum, þá er
allt útlit fyrir að þér munuð öðlast skjótan og góðan
bata. Gætið þess aðeins að fara vel með yður. Bréf
eða upphringing getur annaðhvort valdið gleði eða
vonbrigðum.
Tvíburamerkið (21. maí—21. júní).
1 þessari viku getið þér loksins hvílzt algerlega
með fjölskyldu yðar. En vissulega er ýmilegra óvæntra
atvika að vænta og bæði giftir og ógiftir munu varla
komast hjá því að lenda í einhverju óvenjulega
skemmtilegu.
Krabbamerkið (22. júní—22. júlí).
Um nokkra hríð hefur starfið átt allan huga yðar.
Reynið að gefa fjölskyldu yðar meiri gaum og hlynna
henni eftir beztu getu, því að satt að segja hafið
þér vanrækt hana alltof mikið upp á síðkastið.
Ljónsmerkið (23. júlí—22. ágúst).
Þér munið fá mörg góð tækifæri og það er um að
gera að grípa þau og færa sér þau í nyt. En þér skuluð
ekki gera ráð fyrir neinu fyrirfram, þá mun allt
ganga vel. Stjörnurnar segja, að ástamálin munu
leika í lyndi um helgina.
Jómfrúarmerkið (23. ágúst—22. sept.).
Þessi vika mun verða mjög hagstæð, bæði með til-
liti til vinnu og einkalífs og þér fáið got.t tækifæri
til þess að auka tekjur yðar. Takið samt ekki að yður
meiri vinnu en þér eruð fær um að leysa, því að þér
þurfið áreiðanlega að hvíla yður svolítið.
VogarskdlarmerkiS (23. sept.—22. okt.).
Einhver vandræði munu koma upp í lok vikunnar,
en þér munuð auðveldlega komast í gegnum þau, ef
þér sýnið heiðarleika í hvívetna. Yður til mikillar
undrunar mun persóna nokkur, sem þér hafið hingað
til álitið vera yður óvinveitta, reynast vinur í raun.
Sporðdrekamerkið (23. okt.—21. nóv.).
I þessari viku er um að gera að lofa ekki meiru en
þér getið efnt með góðu móti. í lok vikunnar er allt
útlit fyrir að yður muni berast fréttir af vini, sem
þér hafið ekki lengi haft tækifæri til að hitta.
Bogamannsmerkið (22. nóv.—22. des.).
Stjörnurnar segja, að þessi vika verði mjög góð á
öllum sviðum, f jölskylduvandamál munu leysast á
mjög skemmtilegan máta. Þér ættuð að reyna að vera
ögn samvinnuliprari við samstarfsmenn yðar. Enginn
vafi leikur á því, að þér mun verða vel launað.
Steingeitarmerkið (22. des.—20. jan.).
Undanfarna daga hafið þér verið niðursokkinn í
eigin hagsmunamál og þess vegna ekki sinnt vinnu
yðar sem skyldi. Þetta eigið þér auðvelt með að laga.
Sú snurða, sem hljóp á þráðinn, í ástamálunum mun
enda með því að sætt verður gerð.
Vatnsberamerkið (21. jan.—19. febr.).
í þessari viku munu þér fá tækifæri til nokkurs,
sem yöur hefur lengi dreymt um; sem sé að losna við
ys og þys hversdagsleikans, en upplifa eitthvað nýtt
og spennandi. Það getur verið að um sé að ræða
ferðalag.
Fiskamerkið (20. febr.—20. marz).
Það verður æði mikið að starfa í þessari viku. Þér
þurfið að skipuleggja allt að nýju. Það er á skipu-
Íaginu, sem kerfið hefur strandað, ef hægt er að kalla
það kerfi. Varið yður á lítilli dökkhærðri konu. Hún
get.ur orðið hættuleg.
FÁLKINN 33