Fálkinn


Fálkinn - 11.04.1962, Blaðsíða 25

Fálkinn - 11.04.1962, Blaðsíða 25
 ■i mmMsm g. inn að uppruna og líklega stæði hann í einhverju sambandi við frjósemis- dýrkun og trúna á eggið sem frjósemis- tákn: Páskaeggin voru vanaleg skreytt með litskrúðugum myndum og eru Suður-Evrópubúar snillingar í að mála páskaegg. Páskaegg úr súkkulaði eða marsipani eru hins vegar uppfinningar hugvitssamra sælgætisframleiðenda, er hafa séð, að í þessum sið var talsverð fjárvon, ef unnt var að koma því á, að menn keyptu egg úr súkkulaði eða einhverju öðru sælgæti, í stað þess að kaupa fuglaegg. Rétt fyrir heimsstyrjöldina síðari mun framleiðsla á páskaeggjum úr súkkulaði hafa byrjað hér á landi. í fyrstu var smátt farið af stað og aðeins nokkur hundruð hafa verið framleidd; enda voru peningaráð manna ekki eins mikil þá og þau eru nú. En á stríðsár- unum jókst þessi neyzla mjög og tóku æ fleiri sælgætisverksmiðjur að fram- leiða þessi egg, en það mun hafa verið sælgætisgerðin Freyja, sem hóf fram- leiðsluna hér á landi. Okkur langaði mjög til að kynnast framleiðslunni á þessum vinsælu eggj- um, sem venjulega eru afgreind frá öðrum eggjum með því að kalla þau páskaegg. Við brugðum okkur því upp í sælgætisgerðina Nóa og lituðumst þar um. Súkkulaðið, sem notað er í páska- eggin, er unnið þarna á staðnum. í það eru notuð m. a. kakóbaunir og sykur, ásamt mjólk og ýmsum bragðefnum. Kakóbaunirnar eru unnar þarna á staðn- um. Eftir að búið er að laga súkkulaði- blönduna, þá er hún hrærð saman í geysistórum potti, en þaðan er hún leidd í pípum að miklu færibandi, þar sem á eru mótin, sem súkkulaðisteng- urnar eru steyptar, en að þessu sinni er súkkulaðið látið renna í páskaeggja- mót. Mótin renna svo á færibandi í gegnum kæliklefa, þar sem súkkulaðið storknar og við enda færibandsins taka tvær stúlkur við mótunum og slá ,,skeljarnar“ úr, en tvær ,,skeljar“ Frh. á bls. 34. ■ ' ' .v iiii ■

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.