Fálkinn


Fálkinn - 14.11.1962, Síða 7

Fálkinn - 14.11.1962, Síða 7
upp á marga fiska, þegar sjálf húsmóðirin leggist svo lágt að lesa leynilögreglusögur. Ég var nú ekki aldeilis á því að samþykkja þetta kjaftæði og maðurinn minn ekki heldur og vorum við sammála um, að leynilögreglusögur væri hollur lestur. Hvað finnst ykkur? Svar: Okkur liefur verið sagt, aö ef leynilögreglusaga er vel upp byggö, þá eigi hún aö skerpa hugsunina. Snjall liöfundur kann oft aö spinna svo lopann, aJÖ ógjörningur viröist í fyrstu aö greina sökudólginn, en svo greiöir hann smátt og smátt úr flœkjunum, liö fyrir liö, og í sögulok er sökudólgurinn fund- inn á mjög óvenjulegan hátt. Fyrir þeirri lausn færir hann svo gild rök, sem vekja lesand•• ann til umhugsunar á því sem á undan er gengiö. ViÖ mœlum því meö leynilögreglusögum sem lestrarefni í tómstundunum. Atf lesa í rúminu. Það virðist almennt vera kominn sá tími, sem fólk eyð- ir mest í lestur því að hér er annað bréf um sama efni: Kæri Fálki. — Mikið skelf- ing langaði mig til þess að vita, hvort það væri hættu- legt að lesa í rúminu á kvöld- in. Ég gét aldrei sofnað, nema ég hafi eitthvað til að glugga í áður. Vinur minn einn, mikill sérvizkupúki, tjáði mér, að þetta væri stórhættu- legt. Hvað segið þið úm málið, er það hættulegt eða ekki? Svar: Varla ef þér hafiö gott Ijós. Kabyssan og Adamson. -----— Mér finnst Adam- son núna helmingi betri en áður. Hann minnir mig á þá gömlu góðu daga, þegar maður gat hlegið af hjartans lyst yfir bókstaflega engu. Þessir kabyssubrandarar minna mann ósjálfrátt á þá gömlu góðu daga ... Svar: Já, þaö er gott aö geta lilegiö aö engu. Símalyfseðlar. Kæri Fálki. Fyrir nokkru var allmikið rætt um hin svokölluðu deyfi- lyf í dagblöðum borgarinnar og voru þeir er rituðu ekki á eitt sáttir um hvernig mætti stemma stigu við óhófsnautn þessara lyfja. Hvað um það, skömmu síðar fyllast þing- menn vorir eldmóði og spyrja heilbrigðismálaráðherra, hvað sé hæft í skrifunum. Og síðan lét framtakssemin ekki á sér standa. Borin er upp tillaga þess efnis, að banna skuli símalyfseðla með öllu — Þetta hygg ég vera vanhugs- aða tillögu, því að það er ákaflega hentugt fyrirkomu- lag að fá lyfseðla í gegnum síma. Bæði er það, að margir þeir, sem á lyfjum þurfa að halda, hafa ekki urmul af sendisveinum í kringum sig og svo kannski eiga þeir erfitt með að komast sjálfir. Reseptus. Svar: Því skrifar bréfritari ekki þeim háttvirta alþingismanni, sem bar fram tillöguna og sýnir honum fram á meö rökum, aö tillaga lians sé vanhugsuöf Framhaldssaga fyrir börn. Kæri Fálki. — Um leið og ég þakka þér þína góðu fram- haldssögu, Rauðu festina, ásamt öðru góðu efni, geri ég að tillögu minni að höfð verði, framhaldssaga fyrir börn líka eða eitthvað skemmtilegt fyrir þau meira en aðeins „Panda og safnarinn mikli“, svo að hægt sé að segja með sanni, að Fálkinn sé fyrir alla fjölskylduna. Móðir. Svar: Viö viljum benda bréfritara á, aö Ottó, myndasagan, er líka œtluö börnum og unglingum. Annars höfum viö tekiö þessa uppástungu til atliugunar. Predikarinn og púkinn. Kæri Fálki. — Ykkur að segja, finnst mér bara blaðið hafa verið gott, (þetta á ekki að birtast), en mér finnst, ef predikarinn á að líkjast að einhverju leyti meistara Jóni Vídalín, þá Þyrfti hann að vera ögn tannhvassari. Við skulum láta púkagreyið eiga sig. Hann verður aldrei annað en púki. X-db. Svar: Þaö var alls ekki ætlunin aö láta predikarann líkjast meist- ara Jóni, enda félli þaö áreiöan- lega ekki í góöan jaröveg hjá lesendum, ef þeir yröu varir viö, aö predikarinn væri aö boöa þeim ógnir helvítis. Söluumboð: Pétur 0. Nikulásson, Vesturgötu 39, Sími 20110. FALKINN 7

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.