Fálkinn


Fálkinn - 14.11.1962, Síða 9

Fálkinn - 14.11.1962, Síða 9
eftirlitsflugi meðfram ströndinni. Flug- vélinni var rennt á fullri ferð niður að kafbátnum og djúpsprengjurnar látnar detta í ca. 30 metra hæð; flugvélin „rifin“ upp aftur og vegsummerki at- huguð. Stundum voru loftbólur og olíu- brák það eina sem sást, en í önnur skipti laskaðist báturinn ekki meira en svo að hann kom upp á yfirborðið og hóf skothríð á flugvélina. Þá komu vélbyssurnar í góðar þarfir og á ný renndi flugvélin sér niður að kafbátnum gegn kúlnahríð hans og í vissri hæð sendu sex vélbyssur eldgusur niður í hinn gráa búk bátsins. Og þessi leikur endaði stundum með sigri annars hvors stríðsaðilans, en stundum með ósigri beggja. Heima í Corbett Camp var herbúða- lífið komið í fastar skorður, ef hægt er að taka svo til orða um hermenn í stríði. Hinsvegar ágerðist drykkjuskap- ur og óregla og slagsmál voru tíð. Þá lentu nokkrir úr herdeildinni fljótlega í því að vera teknir höndum af íslenzku lögreglunni og skýrslur um afbrotin voru send yfirmönnum í Carbett Camp. Það kom í hlut Njarðar, sem eina mannsins í herdeildinni sem skildi ís- lenzku, að þýða þessar skýrslur úr ís- lenzku á norsku, á nóttunni, því á dag- inn biðu önnur störf. En þótt árekstrar við íslendinga yrðu alltíðar er leið á sumarið. voru þó slagsmál hermannanna innbyrðis tíðari og í ágúst var Njörður Snæhólm skipaður lögreglustjóri í liði hans hátignar Hákonar Noregskonungs á íslandi og fékk sér til fulltingis átján hrausta Norðmenn. Ástæður fyrir drykkjuskap og slags- málum hermannanna voru aðallega tvenns konar. í fyrsta lagi lélegur að- búnaður, vondur matur og næringar- rýr svo og lélegt húsnæði og í öðru lagi sú sálarlega kreppa sem skapast hjá þeim mönnum, sem glaðir vilja leggja líf sitt í sölurnar til þess að frelsa land sitt en eru settir til ýmissa starfa, sem eru nauðsynleg, en ekki að sama skapi hermannleg eða hrein barátta. f flug- deild er það aðeins lítill hluti hópsins sem flýgur og kemst í snertingu við óvininn. Margfalt fleiri vinna á jörðu niðri við viðgerðir á flugvélum og önnur störf. Leiðindi sækja að, óvissa um ættingja og vini. AUt virðist tapað og tilgangslaust, því þá ekki að láta hverri stund nægja sína þjáning? Það sem gerði ástandið enn verra, var að sumir yfirmanna gengu oftar og rækilegar á vit Bakkusar konungs, en hinir, sem lægra voru settir. Við slíkar aðstæður tóku Njörður og hans menn til starfa, en urðu að sinna sínum venju- legu störfum að auki. Lítill fangaklefi var útbúinn og fáar nætur var þar gesta- laust eftir að lögreglan tók til starfa. Ef taka þyrfti mann höndum. sem ekki var gert fyrr en í síðustu lög, kostaði það ávallt átök, því hermenn láta ekki taka sig höndum án bardaga. Menn voru teknir og dæmdir og settir inn, en drykkj uskapur, slagsmál og þjófnað- ir héldu áfram, unz nýr yfirmaður kom í herbúðirnar og hann féllst á tillögu Njarðar að sýna enga linkind við handtökur og meðhöndlun. Og það sýndi sig að þetta var það eina sem dugði. Fyrstu vikuna eftir þetta voru margar tennur slegnar úr og margir vöknuðu með glóðarauga til viðbótar við timburmennina eftir svallnótt og smátt og smátt dró úr ólátunum. Norska lögreglan hafði í'mörgu að snúast og auk varðstöðu í herbúðunum í Naut- hólsvík annaðist hún eftirlit í Reykja- vík og jafnvel í Hafnarfirði, þar sem Hótel Björninn hafði hið mesta aðdrátt- arafl fyrir hermennina. Var þá unnið með íslenzku lögreglunni og þeirri brezku, en norska lögreglan hafði þá sérstöðu umfram þá brezku, að geta tekið yfirmenn fasta ef þeir gáfu til- efni til. Eflaust hefur sumum norsku flugliðunum þótt hart í ári að þeirra eigin landsmenn og lögregla skyldi taka svo ómjúkum tökum á þeim og þegar komið var fram á vorið 1942 var lög- reglusveit Njarðar aldrei kölluð annað en „Gestapó" meðal Norðmanna. Ekki varð þetta þó til að spilla vinfengi manna, enda sáu allir að sér er af þeim rann. Eftir að Njörður var gerður að yfirmanni lögreglunnar, fór hann færri flugferðir en áður en flaug þó alltaf öðru hvoru. Dag nokkurn um haustið var Njörð- ur kallaður á fund yfirmanns flugdeild- arinnar og sagt að hann yrði sendur á lögregluskóla í Kanada þá fyrr en seinna. Við þessu var ekkert að segja, skipun er skipun og í stríði þýðir ekki að malda Framh. á bls. 28. FALKINM 9

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.