Fálkinn - 14.11.1962, Qupperneq 13
„Síðumúli. — Her findes, foruden
mange nyere Ligstene, en særdeles
gammel og forslidt af raat Arbejde;
den ser omtrent saadan ud;
Det er ikke let at sige, hvad et saa-
dant Arbejde skal forestille; den siges
ellers i sin Tid at være lagt over en
anselig Mand, som blev formedelst
Jalousi myrdet Brudenatten af hans
Rival. Denne styrtede sig efter fuldendt
Gerning i Síðumúlahver, en kogende
Springkilde, som derved forsvandt og
opkom paa den anden Side af Hvitaaen,
ved Gaarden Hurðarbak. — Denne
Legende er for saa vidt ikke uden
Interesse som man endnu (kan) se
tydelige Levninger af en udt0rret, varm
Kilde paa det angivne Sted, og det nu
ved senere Iagttagelser er godtgjort,
at saadanne Kilder i Island meget
hyppigt har forandret Sted, og flytter
dem i Tidens Længde maaske alle
sammen“.
Af þessari minnisgrein Jónasar má sjá
að þar í Hvítársíðunni hefur honum
verið sögð munnmælasaga — áþekk
ofanskráðri þjóðsögu sem færð var í
letur síðar en þetta var. Eitthvað hefur
hún samt verið frábrugðin sögunni um
Jón murta í Þjóðsögunum, þar sem
Jónas telur hverinn hafa flutt sig við
það að morðinginn steyptist í hann, —
þótt samkvæmt alþýðutrú séu viðbrögð
hversins í báðum tilfellunum reyndar
sama eðlis: fordæming á ódæðinu.
En hverfum nú frá því að kanna vit-
undarlíf og viðbrögð hvera, enda nóg
af því sagt; það heyrir til þjóðtrúar-
þokunni — og seint verður fyrir víst
vitað hver hvílt hefur undir steininum
í Síðumúla. Ekki er samt ómögulegt að
steinninn hafi átt sinn þátt í að varð-
veita minninguna um morðverk Jóns
murta í Síðumúla, og sé þá ef til vill
legsteinn hins myrta; því þess er að
gæta að morðið er staðreynd, og skal
nú drepið á það mál.
4
Einn mesti valdamaður á íslandi á
16. öld var Eggert lögmaður og hirð-
stjóri Hannesson. Vegur ættar hans hér
á landi hófst með Eggert Eggertssyni
lögmanni í Víkinni í Noregi; árið 1488
sæmdi konúngur Eggert þennan riddara-
nafnbót og gaf honum „fríheitabréf með
svoddan atkvæði, að hann gefur honum
og hans réttum ektabörnum og afkvæmi
fríheit og frelsi, sem aðrir riddarar og
sveinar hafa í Noregs ríki til ævinlegrar
tíðar með skjöld og hjálm, og þar út í
merktur og málaður hálfur hvítur ein-
hyrningur í blátt feld ofan á hjálmin-
um og annarr á skildinum“. Sonur
Eggerts var Hannes, sem höfuðsmaður
var á íslandi í nokkur ár, faðir Eggerts
lögmanns, en ætt þessi hefur, geysifjöl-
menn og dreifð orðið um land allt.
Eggert Hannesson tók sýsluvöld um
Vestfirði 1545, en það var nokkurs
konar erfðaríki frá Birni í Ögri, móður-
föður hans. Þótti Eggert hinn héraðs-
ríkasti og hinn mesti málaseggur. Þar
Framh. á bls. 34.
FALKINN
13