Fálkinn - 14.11.1962, Síða 27
'Jíétttá aí-
iientukrawA
úr baMi
Efni: Tré- eða pappahringUr með göt-
um á til að festa bastfléttuna í og svo
þarf auðvitað bast, helzt óbleyjað. í
tómstundabúðum fást oft svona tré-
hringir. en sé maður dálítið handlaginn,
ætti að vera hægðarleikur að útbúa þá
sjálfur, annaðhvort úr krossvið eða
þykkum, stífum pappa. Teiknið hring-
inn eftir tveim diskum — öðrum stærri.
Hringurinn þarf að vera 2—3 cm.
breiður.
Aðferð: Bleytið bastið og fléttið
slétta og jafna fléttu, nál.l cm. breiða.
Festið fléttuna í krók eða annað hald,
þá er auðveldara að flétta hana jafna.
Athugið að bæta bastþráðum í, ef flétt-
an mjókkar, en hún þarf að vera jöfn.
Endar sem kunna að stingast út klippt-
ir af á eftir. Með því að bæta nýjum
þráðum inn, getur íléttan orðið eins löng
og vill. Gangið ekki frá endanum fyrr
en þér hafið fullvissað yður um að hún
sé orðin nógu löng.
Leggið fléttu við innri gataröð
hringsins, jafnið úr byrjuninni, svo að
hún fylli ekki of mikið. Saumið svo í
gegnum fléttuna og götin á hringnum
með grófri nál og fínum bastþræði. Látið
fléttuna snúast upp og saumið fléttu-
raðirnar saman þar til hringurinn er
nál. 4 cm. hár. Þynnið fléttuna út, þegar
hætt er. Varpið yfir samskeytin.
Saumið hliðstæða flétturöð á ytri brún
hringsins.
Festið að lokum þunna fléttu utan
á hringbrúnina til að hylja hana.
Fyllið kransinn með rökum leir og
skreytið hann með greni smáum
könglum og t. d. þurrkuðum eilífðar-
blómum, að ógleymdum kertunum
fjórum, sem eru tendruð, hvert á fætur
öðru, aðventusunnudagana.
KJÖTDEIG8VEFJUR MED FYLLINGUM
300 g. saxað nautakjöt.
100 g. saxað svínakjöt.
3 msk. brauðmylsna.
1 soðin, rifin kartafla.
1 dl. rjómabland.
1 egg.
Salt, pipar.
Öllu hrært saman í skál. bætið rjóma-
blandinu varlega saman við því deigið
má ekki verða of lint.
Breitt út á blautt bretti, skipt í jafna
ferhyrninga, sem ýmist er hægt að
fylla með: kryddsíld og kapers — ost-
bita, sem á er stráð salvie — smátt
söxuð steinselja — steinlausri sveskju
og eplabitum — blöndu af söxuðum
lauk og steiktu fleski — eða piparrótar-
smjörbita.
Kjötið vafið saman, vefjurnar lokaðar
vel, steiktar við góðan hita fyrst, síðan
gegnsteiktar við hægan hita. Bornar
fram með sósu, sem búin er til á þann
hátt að pannan er soðin út með rjóma,
soði og söxuðum tómötum eða tómat-
krafti.
FALKINN
27