Fálkinn


Fálkinn - 02.12.1963, Síða 14

Fálkinn - 02.12.1963, Síða 14
ÁKVEÐIÐ SJÁLF DREIVIG EÐA STHLKl Milljónir hafa óskað. — Alls kyns ráð hafa verið reynd frá örófi alda. — Vísmda- menn nútímans hafa komið með kenning- ar. Nú kemur danskur dýralæknir og segizt hafa fundið lausnina. Og æ fleiri vísindamenn hallast að því, að hann hafi rétt fyrir sér. Fólk geti nú loks ákveðið, hvort það eigmst dreng eða stúlku! Dyraíæknirinn Asger Lindberg er 58 ára gamall, með traust- vekjandi útlit og órjúfandi vissu um að hann sé búinn að finna lausnina á vandamálinu, sem mannkynið er búið að reyna að finna lausn á í þúsundir ára. Sé farið eftir kenningu hans, getum við sjálf ákveðið fyrir frjóvgunina hvort við viljum fremur eignast dreng eða stúlku. Með því aðeins að nota hitamæli og kunna svolítið að reikna. Asger Lindberg býr við enda krókóttrar götu í litla þorp- inu Smidstrup sem liggur nokkra kílómetra fyrir utan borgina Fredericia. Gata þessi er nú orðin fræg sökum þess að þarna býr dýralæknir sem sagt er að geti stjórnað happdrætti nátt- úrunnar og skapað börn eftir óskum. Daglega streyma til hans þakkarbréf frá hjónum, sem fylgt hafa ráðleggingum hans („þökkum kærlega fyrir fæðingu sonar okkar, ssíi- gleðstu okkur og drekktu okkar skál í meðfyigjandi sherry- sendingu“). — Þetta getur náttúrlega litið út eins og svarti- galdur og krukk, ef fólk hefur ekki skilið kenningu mína, segir Asger. — Og þess vegna var mér stefnt fyrir dóm. Það var iæknir í Vejle, sem hafði grun um að ég væri að kukla við galdra. Ákæran var sú að ég skaðaði viiðingu dýralækna- félagsins með þvi að útbreiða kennmgu mína. En dómararnir þrír, sem áttu að dæma málið gátu ekki orðið sammála um hvernig skyldi dæma málið — einn af þeim hafði nefnilega alltaf langað til að eignast son og langaði til að reyna kenn- ingu mina. Ef einhver annar fær Nóbelsverðlaunin fyrir upp- finningu mína, get ég þá ekki krafizt launa? spurði ég þessa þrjá heiðursmenn, en því gátu þeir ekki svarað. Að lokum '14 FÁLK.INN sýknuðu þeir mig. Já, mín synd var nú bara sú, að ég var 50 árum á undan minni samtíð. Nei, Asger Lindberg gerir sig ekki sekan um neinar galdra- kúnstir, gefur aðeins góð ráð fyrir þá, sem vilja fara eftir þeim, það hefur alltaf verið talið í sambandi við möguieikana til að ákveða sjálf kyn barnsins sé fjölskyldurannsókn. Hann hlær að kenningunni, að drengir skapist í tunglskini og köld- um norðanvindi, en stúlkur skapist í heitum sunnanvindi, allt eftir gamalli og „öruggri" uppskrift. Asger setur ekki fram kenningu sína á svo lausum grund- velli. Hann notar líffræði og stærðfræðireglur við útreikning sinn. Á þann hátt skapast barn, fyrir þá sem óska, út á Lind- bergs uppskrift. Það er konan og stundin fyrir getnaðinn, sem gerir út um þetta. Þetta er dýralæknirinn Lindberg orðinn viss um eftir að hafa rannsakað þetta í mörg ár Fyrst og fremst leggur hann áherzlu á, hve jafnt fæðist af stúlkum og drengjum í heiminn, en konan tekur alltaf yfirhöndina seinna meir. Konur lifa lengur en karlmenn. Af tíu persónum sem eru yfir 100 ára gamlar eru átta af þeim alltaf konur. Konur eru þannig ,,endingarbetri“. Það segir Lindberg, — orsakar að það er kvensáðfruman sem ákveður hvort barnið verði stúlka við frjóvgunina. En karlsáðfruman hreyfist aftur á móti hraðar og kemur örar til eggjastokksins, en lifir ekki eins lengi. Árið 1932 heppnaðist rússnesku tilraunakonunni Veru Schröder að skilja kvensæðin frá karlsæðinu með einfaldri rafmagnsaðferð. Hún skildi þau með rafmagnsvél þannig að þau skiptu sér eftir kynjum. Siðan frjóvgaði hún kaninur, með þeim frumum, er hún vildi, og gat á þann hátt ákveðið

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.