Fálkinn


Fálkinn - 02.12.1963, Blaðsíða 21

Fálkinn - 02.12.1963, Blaðsíða 21
og við hjálpuðum honum til þess, ef satt skal segja. Það var einmuna gott veður kvöldið, sem hann réri í land á bát stýrimannsins. Stýrimaðurinn svaf og bað okkur að vekja sig, ef eitthvað kæmi fyrir. Pueerto Rico maðurinn átti að fara til Reykjavíkur og tala við þá í sendiráðinu, vegna þess að við fengum ekki landgönguleyfi. Við fylgdumst með honum róa í land og þegar hann kom upp á veginn kom þar að heybíll sem hann stökk aftan á. Þá fórum við og sögð- um stýrimanni tíðindin, að nú hefði Pourto Rico mað- urinn stolið bát hans og róið í land. Stýrimaður brá illa við og varð spólandi vondur. Daginn eftir kom Puerto Rico maðurinn uppeftir aftur og hafði meðferðis ný blöð fyrir skipperinn. Ekki hafði hann gert neitt í landgöngumálinu og hann slapp alveg við hegningu. Svo fórum við að undirbúa ferð til Reykjavíkur. Einn daginn fórum við af stað ég og Krúsi, en vinur minn Alli átti að róa með bátinn út aftur. Þegar við erum að fara af stað kallar Lordinn í okkur og spyr hvort við séum að fara í land. Hann var að væflast í járnum á þilfarinu, og þegar við sögðum honum að við værum jú að fara í land, sagðist hann ætla að koma með og smokraði sér úr járnunum. Þegar við komum í land náðum við fljótlega í áætlunarbíl úr Borgarnesi og héldum með honum í bæinn. Strax og við komum í bæinn ákváðum við að fara í Sendiráð Bandaríkjanna og reyna að gera eitthvað í landgöngumálinu. Við fórum upp á Laufás- veg og spurðum eftir sendiherranum. Þeir tóku okkur vel og spurðu um erindið. Við sögðum þeim sem var. Þá báðu þeir okkur að bíða dálitla stund, á meðan þeir væru að athuga málið. Svo biðum við og biðum, og þegar við vorum orðnir óþolinmóðir bönkuðum við á dyr út úr herberginu til að forvitnast hvernig málið gengi. Og það stóð heima. Rétt í því að við opnuðum dyrnar snöruðust inn nokkrir herlögreglu- menn og fóru með okkur í burtu. Þa3 var farið með okkur niður í Hafnarhús og þar hófust yfirheyrslur. Við sögðum ekki annað en sann- leikann, en þeir virtust ekki ánægðir með hann. Ég held helzt að þeir hafi viljað að við játuðum á okkur njósnir, en því var ekki til að dreyfa. Seinna um daginn fengum við að fara út í sjoppu þarna rétt hjá og fá okkur að borða. Einn herlögreglumaður var sendur með okkur með alvæpni. Þarna inni á sjopp- unni var einn kunningi minn og hann kallaði til mín hvort ég væri í vandræðum. Ég hvað nei við. Um kvöldið var farið með okkur upp í Hvalfjörð og þar biðu okkur heldur kuldalegar móttökur. Fram í skipinu var fangageymsla og þegar við erum að borða í messanum kemur stýrimaður og segir að við verðum að flýta okkur því við eigum að fara í grjótið. Við töfðum að sjálfsögðu eins og við frekast gátum og rétt í því að við getum ekki tafið meira kemur bátur að skipshliðinni með þau skilaboð, að sigla eigi um morguninn, og ekkert varð úr fangelsisvist- inni. — Og svo var siglt um morguninn? — Já, við fórum snemma þennan morgun og hann verður mér lengi minnisstæður þessi morgun, vegna þess að veðrið var sérstaklega fallegt. Við sigldum út eftir smá ræmu milli tundurduflanna og ég stóð við stýrið. Þessi renna var mjög þröng og þessi stóri dallur svingaði mikið. Svo var rennan að baki og siglingin tók við. — Þið fóruð norður fyrir Horn? — Já, við fórum grunnt vestur með landi og fyrir Hornbjarg og þaðan í haf út í norðaustur. Við höfð- um ekki siglt lengi, ég held í tvo eða þrjá daga, þegar við sáum fyrstu þýzku flugvélina. Hún flaug mjög hátt en samt var byrjað að skjóta á hana. Kaupskipin voru vel vopnum búin. Fjórar vélbyssur fram á, fjórar á brúnni og tvær stórar kanónur aftan á. Eftir tals- verða skothríð hvarf svo þessi vél á brott. En við þurftum ekki að bíða lengi eftir fyrstu árásinni og flug- vélarnar komu í hópum. Þær flugu fyrir skipin og sendu kúlnademb- una yfir okkur. Sumar þeirra köstuðu niður stórum, segulmögnuðum sprengjum, en þær ollu ekki neinu tjóni. Við vorum norðarlega og aftarlega í lestinni og yfirleitt byrjuðu vélarnar á öftustu skipunum. Þegar við nálguðumst Noreg hertu þeir árásirnar og nú komu stærri vélar með tundurskeyti. Þær komu aftan að lestinni og flugu lágt inn á milli skipanna og skutu skeytunum aftur úr sér. Þær flugu svo lágt að erfitt var að koma byssunum við. Alltaf voru nokkrar þeirra skotnar niður en það var bara eins og dropi í hafið. Einu sinni töldum við það víst að nú væri verið að koma að okkur. Ein vélin stefndi aftan að okkur og við bjuggumst við okkar síðasta þegar vélin flaug inn á milli skipanna. En hún leit ekki við okkur heldur sendi skeytið á einn Panamadall og aðra eins sprengingu hef ég aldrei séð. Dallurinn bókstaflega tættist í sundur. Það var ljótt að sigla innan um sökkvandi skipin og heyra köll sjómannanna um hjálp. Við máttum ekki hægja á ferðinni til að tína þá upp. Korvetturnar sigldu inn á milli og tíndu þá upp. Korvett- urnar voru svo litlar, að Þjóðverjarnir eyddu ekki skotum á þær. Og þannig hélt lestin áfram í skothríðinni. Alltaf voru stöðugar árásir á okkur og alltaf fækkaði skipunum. Þjóðverjarnir sögðust ætla að tortíma þessari lest algjörlega. Framhald á bls. 30.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.