Fálkinn


Fálkinn - 02.12.1963, Blaðsíða 25

Fálkinn - 02.12.1963, Blaðsíða 25
GURVAKA leita ráða því flugvélin þeirra var talstöðvarlaus. Skýföll, sem þetta, vara sjaldan lengur en hálf- tíma í Angóla. Þegar óveðrinu loks slotaði, rign- inguna stytti upp og sást til jarðar að nýju, hef- ur báðum flugmönnunum ábyggilega létt stórlega smástund. En aðeins smástund, þangað til þeir fóru að skoða nánar landið, sem þeir voru yfir. Þangað til þeir spurðu hvorn annan: Hvar erum við eiginlega? Acacio Lopes da Costa og Carlos Lopes Fern- * andes höfðu ætlað sér að fljúga sjónflug, enda höfðu þeir engan útbúnað til blindflugs. Og nú höfðu þeir villzt út af réttri leið. Enginn veit, , hvort örvæntingin hefur þá þegar náð taki á þeim. Hvort þeir hafa flogið um í krókum og snúið við aftur og aftur og þannig eytt hinu dýrmæta elds- neyti, eða hvort þeir héldu alla tíð fullum sönsum. Vafasamt má raunar telja, að sterkar taugar og nákvæm yfirvegun hefðu nokkru getað breytt um lok þessa æfingarflugs. Tveim stundum eftir brottförina og einni stund eftir lok óveðursins, var eldsneytið búið. Nauðlending! Nauðlending í skóg- arkjarri. 104 dögum síðar fór Joaquim Antonio Marques, verkfræðingur við fiskniðursuðuverksmiðju á Atlantshafsströndinni, á hlébarðaveiðar. Er hann ■kom að yfirgefnum bækistöðvum skógarhöggs- mannanna, í um það bil 25 kílómetra fjarlægð frá ströndinni, fann hann spor eftir „onca“, en því nafni nefna Portúgalir hlébarðann. Hann ákvað þegar að fylgja sporunum. Þau lágu í áttina til fjalla, inn til hásléttunnar Serra da Neve. En áður en verkfræðingurinn hafði fylgt sporunum í heilan kílómetra, sá hann allt í einu, aðeins steinsnar frá sér, flugvél inni í skógarkjarrinu. Hafði hún hrapað niður? Nei, hún virtist mjög lítið skemmd. Aðeins frambrúnir vængjanna virtust dálítið dæld- aðar, og hjólaútbúnaðurinn hafði eitthvað bognað í lendingunni. Þarna var bersýnilega um nauðlend- ,ingu að ræða. Gammar hnituðu hringa yfir vél- ; finni. tf Marques gekk nær. Þá stirðnaði hann upp. Út ■n um dyrnar á flugmannaklefanum hékk hryllilega ■ horaður mannsfótur. ; i Marques leit sem snöggvast inn um rúðuna. ■.rj^Hann sá lík tveggja skinhoraðra manna. Og kring- ruum þá lágu pappírsblöð. Á blöðin var eitthvað . skrifað. Ruglingsleg orð, skrifuð af mönnum, sem •j: voru komnir að örvílnun. Nokkurs konar dagbók, sá Marques. Hann byrjaði að stafa sig fram úr krotinu. ÍJC ■ 2. dagur í kjarrinu. ,,Ég held að öll von sé úti um okkur,“ skrifar Lopes da Costa. flugkennari, daginn eftir nauð- lendinguna. „Þetta er engum manni að kenna, þetta eru örlögin. Við bíðum átekta. Við fórum einu sinni út, til þess að kanna umhverfið. Til- gangslaust. Hæðir, ekkert annað en hæðir. Hæðir alveg út undir sjóndeildarhringinn.“ Hjálparlausir og ráðalausir. Da Costa var nýlega ■kominn frá Portúgla. Nemandi hans, Fernandes, var að vísu Angólabúi, en hann var borgarbúi. Þeir voru kjarklausir, fullir ótta yfir hinni fram- andi þögn, sem umlukti þá, og var aðeins einstöku sinnum, þá helzt að nóttu til, rofin af óþekktum Þarna í skógarkjarrinu háðu þeir dauðastríð sitt í litlu Piper-Colt flugvélinni, að- eins 600 metrum frá bæki- stöðvum skógarhöggsmann- anna, og 25 kílómetra frá ströndinni. En þeim fannst öruggast að vera kyrrir í vél- inni, þeir hræddust óbyggð- irnar... Da Costa og fjölskylda. „Ég bið konu mína að gifta sig ekki aftur.“ öskrum. Þeir þorðu ekki að fara langt frá flugvélinni, en í henni fannst þeim þeir þó hafa nokkurt skjól. Hefðu þeir farið 600 metra til suðurs, hefðu þeir fundið bækistöðvar skógarhöggsmannanna. 25 kílómetra í vesturátt var ströndin. En þeir þorðu ekki að fara burt úr flugvélinni. 5. dagur í kjarrinu. „Daglega flýgur áætlunarflugvélin á leiðinni Luanda — Benguela — Bandeira yfir höfðum okkar, en enginn tekur eftir okkur. í dag flugu auk þess þrjár þotur yfir. Voru þær að leita að okkur? Þær flugu svo hátt að þess var engin von, að flugmennirnir tækju eftir okkur. Þetta er hræðilegt. Ég er viss um, að það verður aðeins einn, sem finnur okkur hér. Dauðinn.“ Það er ótrúlegt en satt, að engin merkjabyssa var um borð í Piper- Colt vélinní. Hefðu þeir getað skotið einu einasta rauðu ljóSimerki fyrir framan áætlunarflugvélina, hefði lífum þeirra verið borgið. En ekkert slíkt var um borð. Nú hefur stjórnin í Angóla sett um það strangar reglur. En of seint — fyrir þá félaga. 12. dagur í kjarrinu. „Ég held þetta ekki lengur út. Hann (Fernandes) deyr brátt, ef Guð vill verða honum náðugur. Við höfum eiginlega ekkert til að borða og alls ekkert til að drekka. Það er svo heitt!“ Annars var þorstinn ekki versta kvöl hinna nauðlentu flugmanna. Framhald á b’s. 31. bÁLKINN 25

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.