Fálkinn


Fálkinn - 02.12.1963, Blaðsíða 27

Fálkinn - 02.12.1963, Blaðsíða 27
EFTIR MARGARET LYNN í blaðinu í dag hefst ný og spennandi framhaldssaga eftir Margaret Lynn. Saga þessi er fyrst og fremst ástarsaga, saga lconu, sem hefur venð gift mikilsvirtum og ríkum lögfræðingi, sem á þá ósk eina í lífinu, að komast áfram til æðstu mann- virðinga og fórnar fyrir það heimilishamingju sinni. Hún. kynnist öðrum manni og ákveður að yfirgefa mann sinn. En sjálfur dauðinn kemur í veg fyrir hamingju hennar, eða svo virðist að minnsta kosti. En ekki skulum við fara að rekja söguþráðinn, aðeins er óhætt að lofa ykkur mjög spennandi og skemmtilegri sögu. Dagurinn hafði verið mildur og fallegur, en nú fór að kólna. Samt sem áður hafði ég bílrúð- una skrúfaða niður og lét loftið leika um hárið. Það var mjög hressandi að láta gustinn leika um sig, og ég skeytti því engu, þótt mjög fljótlega myndi skella á regn. Stórir og svartir skýjabólstrar höfðu þegar hrannazt upp í austri. Eftir stutta stund myndi ég vera komin á landareignina „Þrjú akurlendi“, næstum því nákvæmlega á þeim tíma, sem ég hafði lofað að koma á. Ég var að hugsa um það, sem biði mín, þegar ég kæmi þangað, blaktandi eldurinn í arninum — sem ekki var einungis kveiktur vegna veðurfarsins heldur einnig til að hafa það vistlegt; ísinn sem myndi kæla drykkinn í glösunum á litla borðinu fyrir framan arin- inn — og Johnny. Hugsunin Um Johnny hertók hug minn sérstaklega. Staður og stund skiptu engu máli fyrir mig, að- eins að vita að Johnny væri til, og vita að hann biði eftir mér. Fyrstu droparnir voru þegar farnir að falla á framrúðuna — smáir og fíngerðir. Nákvæm- lega svona hafði rignt í fyrsta skipti, þegar ég kom til „Akur- lendanna þriggja" með Jonny. Við höfðum neyðzt til að hlaupa í einum spretti inn í húsið til að verjast því að blotna. Á eft- ir höfðum við svo staðað við gluggann í löngu og mjóu stof- unni og horft á skýjafarið og horft á regnið mynda smá polla á veröndinni. Og þá hafði Johnny kysst mig í fyrsta skipti. Hann hafði þá ekki ver- ið öruggur um, hvort hann elsk- aði mig. Nú, þegar ég hugsa til baka, get ég ekki vitað ná- kvæmlega hvenær hann byrjaði að elska mig. Maður gat aldrei verið viss um Johnny. Og það kom fyrir stöku sinnum að mér fannst hann alls ekki vilja elska mig, og að hann berðist gegn ást sinni til mín, en ég var langt frá því að vera viss um það heldur. Það eina sem ég var viss um var að ég var fullkomlega ánægð þegar við vorum saman. Áður en við kynntumst, hafði ég ekki verið hamingjusöm. Þegar ég giftist Paul fyrir fimm árum síðan, var ég ung, og ákaflega ástfangin í honum, og uppfull af rómantískum draum- um um framtíð okkar. Saklaus og hamingjusöm hafði ég byrj- að hjónaband okkar, og dreymdi um kvöldin sem við Paul myndum sitja þétt saman fyrir framan arineldinn, og láta fara reglulega vel um okkur, um langar og skemmtilegar samræður, um góða vini, sem við myndum umgangast — aðeins vegna þess að okkur líkaði félagsskapur þeirra — en ekki af því að þeir gætu hjálpað Paul einu þrepi hærra í samfélaginu..... Mig hafði líka dreymt um börnin sem við myndum eign- ast, að fyrsti drengurinn skyldi verða alveg eins og faðir hans, og fyrsta stúlkan lík mér.... Allt þetta gerðist fyrir fimm árum. Fimm löngum árum, og engir drauma minna höfðu rætzt. Paul hafði ekki vantað eiginkonu. Þegar hann hafði gifzt mér var það af því að hann hafði vantað ráðskonu, sem gæti haft reglu á heimili hans, vakið eftirtekt gesta hans með persónutöfrum sín- um, öruggri framkomu og feg- urð.....Heimskonu, sem gæti styrkt aðstöðu hans útífrá. En hvers vegna hafði hann þá valið mig? Kannski af því að pabbi var ríkur maður og í góðu áliti hjá fólki, og gæti því sennilega hjálpað tengdasyni sínum í hinni trylltu baráttu hans fyrir upphefð í lífinu ... Paul var alltaf eins og hann væri her- tekinn af metnaðargirni. Eigin- konu, heimilislífi, lífsgleði — öllu þessu fórnaði hann til að komast framarlega í þjóðfélag- inu. Hann stóð sig líka mjög vel i sínu starfi, en ekki sem eiginmaður þvert á móti...... Hafði Paul nokkra hugmynd um hversu óhamingjusama hann hafði gert mig? Eða — hafði ég hann ef til vill fyrir rangri sök? Hafði þetta ekki verið allt öðru visi. fyrst eftir að við giftum okkur? Hafði hann ávallt sinnt mér svona lítið? Ég mundi það ekki lengur og vildi heldur ekki muna það. Ég var farin frá Paul núna og var á leið til Johnny. Þetta er alls ekki rétti tím- inn til að rif ja upp daprar minn- ingar, sagði ég við sjálfa mig, þegar ég ók greitt eftir veg- inum, meðan myrkrið varð stöðugt svartara. En ég hafði Framh. á bls. 42. 27 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.