Fálkinn


Fálkinn - 02.12.1963, Blaðsíða 36

Fálkinn - 02.12.1963, Blaðsíða 36
PANDA □□ TÖFRAMAÐURINN MIKLI Goggi hafði unnið sér traust Plútanusar með hinni undarlegu hegðun sinni. „Hættu þessari vitleysu, Goggi,“ sagði Panda taugaóstyrkur. „Verðirnir halda að við séum vitlausir.“ „Þessir bjánar ytra heims skilja ekki innri tilfinningar,“ andvarpað Goggi. „Viturlega mælt,“ greip Plútanus fram í, þar sem hann sveif hægt um loftið. „Eigum við að láta þá hverfa Góðgjarn leiðsögumaður?“ „Hvers vegna hverfum við ekki?“ svaraði Goggi. „Svo skal verða," sagði Plútanus og gerði nokkrar dularfullar hreyfing- ar. Á því augnabliki komu verðirnir þjótandi með fangelsislækninn. Fangarnir hurfu úr klefanm. Læknirinn, sem fann að ætlazt var til að hann kæmi með einhverjar skýringar á þessu, ræskti sig. „Hmm,“ tautaði hann. „Þetta er greinilega felusjúkdómur.“ Brátt voru þremenningarnir komnir í kyrrlátan skemmtigarð. Panda, sem var ekki slíkum ferðalögum vanur, hallaði sér ringlaður að tré. „Þú ert fölur, ungi utangarðsbúi,“ sagði Plútanus, sem hafði aftur tekið sér sína eftirlætisstöðu. „Drekktu dögg, það gefur þér kraft.“ Töframaðurinn hristi daggardropa af laufi og setti hann á hatt sinn. Hann tautaði nokk- ur óskiljanleg orð yfir hattinum og skyndilega komu daggardorparnir fljúgandi úr öllum áttum. „Gott,“ hrópaði Panda. „Hvernig fórstu að því, herra Plút- anús?“ „Mjög einfalt,“ svaraði töframaðurinn. „Drop- inri í hattinum dregur að alla aðra dropa .... Goggi lagði við hlustirnar. „Skyldi hann geta gert það sama við bankaseðla?" Meðan Panda drakk döggina, byrjaði Goggi að leita í vösunum. Loks dró hann fram bögglaðan seðil. „Gott að ég átti einn eftir,“ sagði hann ánægður. „Sjáðu til,“ sagði hann við Plútanus, sem sveif í loftinu. „Það væri athyglisvert ef þú endurtækir þetta með seðilinn. Settu hann í hattinn og láttu hann draga til sín alla seðla í nágrenninu.“ „Hvaða tilgangi þjónar þessi seðill,“ spurði töframaðurinn. „Utangarðsmenn nota hann til að þjóna sínum innri hvötum,“ sagði Goggi. Plútanus setti seðilinn strax í hatt sinn....Eftir okkrar sekúndur komu seðla- bunkar fljúgandi að úr öllum áttum. „Þetta er ólýsan- lega fallegt,“ andvarpaði Goggi. „En hvaðan koma þeir?“ spurði Panda. 36 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.