Fálkinn


Fálkinn - 02.12.1963, Blaðsíða 34

Fálkinn - 02.12.1963, Blaðsíða 34
Vanti yður hugmynd að lítilli persónulegri jóla- gjöf eða lítinn dúk til að hafa á jólaborðið, er hér fallegt stjörnumynstur, sem hægt er að nota á ýmsa vegu. T. d. má nota það í smádúka með til- heyrandi millileggssnittu, í langan jóladúk eða lítið bókarmerki. Veljið jólalega liti, gult, rautt, blátt og hvítt, bæði á efnið og garnið. HANDÁ ÞEÍM YNGSTA. Baðslá hefur marga kosti fram yfir venjulegt stórt baðhandklæði. Sníðið frotté efni eftir stærð- unum, sem gefnar eru á litlu teikn- ingunni. Fyrst og fremst ferhyrn- ing 75X75 cm og síðan aukahorn- ið. Bryddið fyrst langhlið þríhyrn- ingsins með skábandi, þræðið hann síðan á eitt horn aðalstykk- isins, Bryddað allt í kring með skábandi. Athugið að skábandið verður að vera suðufast, en af því þarf um 3,60 metra. HANDA ÞEIM FÓTKÖLDU. Efni: Nál. 70 g gróft ullargarn. Prjón- ar nr. 4. Mynstrið: 1. umf.: 1 sl., ★ slegið upp á, 1 1. laus fram af, 1 sl. ★, endurtekið frá ★—.★ 2. umf.: 1 br., ★, prjónið bandið, sem slegið var upp á í fyrri umf. og næstu 1. sl. saman, 1 br., endur- tekið frá ★—★. Endurtakið þessar 2 umf. Aðferð: Fitjið upp 8 1. og prjónið 8 cm með garðaprjóni, haldið áfram að prjóna garðaprjón en aukið jafnt út í lok hverrar umf. um 1 1., þar til 40 1. eru á. Prjónið mynstrið og prjónið um 80 umf. beint, þá er garðaprjón prjón- að á ný og jafnframt tekið úr í lok hverrar umf. með því að prjóna 2 1. saman, þar til 8 1. eru eftir. Að lokum eru prjónaðir 8 cm garðaprjón. Fellt af. Frágangur: Stykkið brotið saman á miðju. Sokkarnir saumaðir saman á ristinni og að aftan verðu, böndin hnýtt. Lítil slaufa fest framan á sokk- ana, er hún búin til úr snúru, sem hekluð er úr sama garni. • V V ! 34 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.