Fálkinn


Fálkinn - 02.12.1963, Side 43

Fálkinn - 02.12.1963, Side 43
Nýtt Toni með tilbúnum bindivökva liðar hárið á fegurstan hátt Auðveldasta og fljótvirkasta heima permanentið, sem völ er á, er hið dásamlega Toni með nýja tilbúna bindivökvanum. Allur bindivökvinn, sem þér þarfnist er tilbúinn til notkunar í sérstakri plastflösku. Vatn ónauðsynlegt. — Ekkert duft, sem þarf að hræra í vatni. Með því að þrýsta bindivökvanum úr plastflös- kunni er öruggt að hver einstakur lokkur fær jafna óaðfinnanlega liðun, án þess að liðirnir verði hrokknir og broddar myndist. Toni bindivökvinn lífgar einnig hár yðar, gerir það mjúkt, gljáandi og auðvelt í meðförum. Nú má leggja hárið á hvern þann hátt, sem þér óskið, hvortheldur stóra eða smáa liði. Toni fæst í þremur styrkleikum:— Super (Sterkt) ef liðaáhárið mikið,Regular (Meðal sterkt) ef liða skal í meðallagi og Gentle (Veikt) ef liða skal litið, —og þannig má velja þá tegund sem hentar yður bezt. Toni, stór pakkning Tip Toni, minni pakkning, til að til að liða allt hárið. liða hluta hársins eða stutt hár. VATN ÓNAUÐSYNLEGT —EN61N ÁGIZKUN—ENGIR ERFhÐLEIKAR Mjög auðvelt. Klippið spíssinn af flöskunni og bindivökvinn er tilbúinn til notkunar. Með nýja Toni bindivök- vanum leggið pér hvern sérstakan lokk jafnt og reglulega og tryggið um leið betri og varanlegri hárliðun. Eins og þjófur á nóttu eftir, hugsaði ég með mér, þeg- ar ég beygði inn á aðalgötuna í þorpinu. Göturnar voru ein- kennilega mannlausar. Það var enn alls ekki orðið áliðið kvölds, en hvergi sást mannvera á ferli, og það voru heldur engir aðrir bílar á ferð eftir götunni. Ég heyrði engin önnur hljóð, en suðið frá bílvélinni. Ég ók dá- lítið hægar. Jafnvel ljósum prýddi bar- inn á horninu var alveg mann- laus, og ég gat heldur ekki kom- ið auga á neinn af þjónustufólk- inu. Svo beygði ég inn í götuna, þar sem gamla kráin var. Þar var heldur hvergi lífsmark að sjá. Engum bíl var lagt þar fyr- ir utan, og í gegnum stóran gluggann sem sneri út að göt- unni, sáust heldur engir gestir í matsalnum. Mér fannst þetta einkennilegt. Jæja, þá voru bara sjö kíló- metrar eftir. Þrír fjórðu hlut- ar úr mílu til Johnny. En það urðu þeir lengstu sjö kílómetr- ar, sem ég hafði nokkru sinni ekið. Ég þekkti veginn vel (hversu oft hafði ég annars ekið hann?), en ég mundi ekki að það væru svona margir beinir, langir kaflar á honum. Vegvísarnir glömpuðu í ljósunum — Ells- worth 6 kílómetrar Ellswort 5 kílómetrar, Ellsworth 4 kíló- metrar .... Mér fannst alltaf verða lengra og lengra milli vegvísanna, og ég fylltist ótta við að komast ekki á áfanga- stað í tæka tíð. (Framh. í næsta blaði).

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.