Fálkinn


Fálkinn - 06.01.1964, Síða 10

Fálkinn - 06.01.1964, Síða 10
SMÁSAGA EFTIR GÍSLA ÁSTÞÓRSSON FYRRI HLUTI Albert A. Bogesen klóraði sér á hökunni. Seisei jú, sagði hann, ég hef vasast í pólitík, væni. Það var þegar við vorum fyrir vestan, á kreppuárunum. Ég átti ekki annars úrkostar. Annað mál er það að pólitík passar ekki við mitt eðli. Ég er ekki nógu séður liggur mér við að segja, eða kænn. Annars getur ólíklegasta fólk skarað fram úr í pólitík. Hún Jóhanna mín til dæmis. Hún verður seint sökuð um að klofvaða vitið, og þó hefur hún einhverja þá skörpustu pólitisku sjón sem ég hef kynnst. En ég hafði ekkert upp úr minni pólitík nema amstrið, og ég fer ekki aftur út í pólitík þó ég verði hundrað ára, og þó ég verði hundrað og fimmtíu ára snerti ég hana ekki framar ótilneyddur. Ég var (hélt hann áfram) búsettur i Þrönguvík og nýkvænt- ur henni Jóhönnu greyinu til góðs eða ills. Hún var dóttir Manga lummu sem svo var kallaður, og Mangi vildi fyrir aila muni koma henni út áður en hann hrykki upp af. Þau gómuðu mig þannig að þau buðu mér til lummuveizlu með súkkulaði. og Jóhanna má eiga það að hún er snillingur að baka lummur. Síðan sýndi Mangj mér húsið og sagði: „Sjáðu, ailt þetta muntu eignast eftir minn dag ef þú villt losa mig við hana Jóhönnu greyið.“ „Hún kann að baka lummur. því er ekki að neita,“ sagði ég varfærnislega. „Hefurðu tekið eftir því,“ sagði Mangi, „að þetta er eina húsið hér um slóðir með kvisti.“ „Ég hef líka tekið eftir kvistunum á henni Jóhönnu," sagði ég og hló kuldahlátri. En það varð úr að ég kvæntist henni samt, enda er kreppa kreppa og hús hús. Skömmu seinna kom tengdapabbi að máli við mig og spurði hvað ég hyggðist leggja fyrir mig. Ég sagði honum sem var að ég værj búinn að ganga á milli kaupmannsins og kaupfélagsins, það er að segja Heródesar og Pilatusar, síðan um áramót og fengi ekki vinnu frekar en aðrir. „Af hverju býðurðu þig ekki fram í bæjarstjórnarkosning- unum?“ segir tengdapabbi. „Bjóða mig fram?“ hvái ég steinhissa. „Ef þú kemst í bæjarstjórn.“ segir tengdapabbi, „þá ertu vís með vinnu.“ 10 FÁLKINN Pólitík er þannig löguð atvinnugrein að þeir sem gefa sig að henni verða að gera ýmsa hluti sem þeir gætu ekki verið þekktir fyrir sem óbreyttir borgarar. Það var fimm manna bæjarstjórn í Þrönguvík, og samkvæmt útreikningum okkar tengdapabba þurfti ég að fá fjörutíu og tvö atkvæði til þess að komast að. Við tengdapabbi vorum tvö atkvæði og Jóhanna greyið það þriðja þó gölluð væri og kerlingin hún amma hennar var fjórða atkvæðið og systkini kerlingarinnar voru átján atkvæði í kippu, svo að þarna höfðum við tuttugu og tvo örugga kjósendur á hendinni. Svo átti tengdapabbi víxil á Sigga seglasaumara og skrúfu á Þórhall í Smárakoti, því hann vissi hvar Þórhallur geymdi bruggtækin sín. Siggi og Þórhallur skiluðu ellefu atkvæðum með mökum og löglegum afkvæmum, svo að þar voru komin þrjátíu og þrjú atkvæði. Þá var að múta Jóhönnu gömlu í Bolabás, sem var vitlaus í herta þorskhausa, og síðan hvíslaði ég að Dodda í Skuld að ef ég næði kosningu í bæjarstjórn, þá þyrfti hann ekki framar að hafa áhyggjur af hafnsögumannsembættinu sem hann var búinn að sækja um stanzlaust síðan um aldamót. Doddi réði yfir fimm atkvæðum með hyski sínu og Jóna átti tvær dætur pipraðar á kosningaaldri, svo að þarna lágu þá fjörutíu og eitt atkvæði alls eða aðeins einu færra en ég þarfnaðist til þess að ná kosningu. „Þú heldur ekki að einhver kjósi mig út á andlitið?" spurði ég tengdapabba þegar við fórum yfir listann. „Hvaða.andlit?" spurði hann og glotti. Það hefur sjálfsagt setið í honum brandarinn sem ég sagði á kostnað Jóhönnu, en auk þess var hann meinfýsinn skratti. Hvað um það; hann sagði að í pólitík dygðu engar hugsjónir. „Jafnskjótt og þú ferð að hafa hugsjónir,“ sagði hann, „að ég nú ekki tali um hugsjónir um andlitið á þér, þá ertu kolfallinn." Nú, við byrjuðum að líta í kringum okkur hvort við eygðum hvergi fertugasta og annað og úrslitaatkvæðið, en hvar sem við bárum niður voru hinir frambjóðendurnir búnir að koma okkur í forkaupið. Finna barnakona var komin með spánýtt sjal og Kristján frá Læk var loksins búinn að eignast yfir- frakka og það rann ekki af Steinþóri á Hvoli, svo að ekki þurfti maður að eyða tíma í hann. Þetta leit afleitlega út. Kosningasmalar andstæðinganna voru búnir að fínkemba plássið, og hvar sem við renndum og hverju sem við beittum á krókinn, þá var sama ördeyðan alls staðar. Ég virtist vera dæmdur til að verða fallframbjóðandi út á eitt atkvæði. Ég leyni því ekki að ég var beiskur. Mér fannst það hart og nánast grátlegt að eiga að bíða pólitískt skipbrot vegna annars eins smáræðis. Það er allt i lagi eins og alþjóð er kunn- ugt að gerast strandkapteinn eftir að maður er búinn að tryggja sér verðugan sess í pólitík. En að verða pólitísk- ur strandkapteinn og komast yfirleitt alls ekki á flot, það er fyrir neðan allar hellur. Það er gert grín að manni og stelp- urnar hía á mann og strákarnir kasta í mann þorskhausum eins og kom fyrir mig einn daginn þegar ég var að dorga. Um kvöldið sagði ég við tengdapabba: „Á ég að trúa því, tengdapabbi, að í allri Þrönguvík sé ekki ein einasta ærleg sál á kosningaaldri sem ekki er búin að selja samvizku sína?“ „Við skulum líta aftur á listann,“ sagði tengdapabbi. „Það þýðir ekkert að liggja yfir neinum djöfuls listum,“ sagði ég. „Þetta er tapað spil.“ „Talaðirðu við hann Dóra?“ spyr tengdapabbi. „Hékk yfir honum í allan morgun,“ segi ég. „Bauðstu honum sorphreinsunarbitlinginn ef þú kæmist i bæjarstjórn?" spyr tengdapabbi. „Bauð honum meir en það,“ segi ég. „Bauð honum að auki ókeypis kastskeyti og aðstoðarmann eftir eigin vali árið um kring til þess að jaska út.“ „Úr því Dóri beit ekkj á þetta agn, þá er óhætt að afskrifa hann,“ segir tengdapabbi „Enginn maður er svo sterkur á svellinu að hann geti hafnaS sorphreinsunarbitlingnum með kastskeyti og undirtyllu, nema honum hafi þá boðist tvenn kastskeyti og tvennar undirtyllur. sem er annað mál.“ „Jú,“ segir Jóhanna sem kemur utan úr kálgarði rétt í þessu másandi og blásandi. „Hvað áttu við, skepnan mín,“ segir tengdapabbi.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.