Fálkinn - 06.01.1964, Side 35
Stjörnurnar
sindra
Kringlótti dúkurinn.
Eíni: Nál. 55X55 cm. blátt
javaléreft með þráðþéttleikan-
Um 10 þræðir á hvern 1 cm.
mælt á báða kanta efnisins.
Nál. 160 cm. hvítt bómullarská-
band til að brydda með, auk
þess þarf hvítt áróragarn til
að sauma með.
Teiknið fyrst á pappír hring
um 53 cm. þvermál. Merkið
fyrir 8 stóru stjörnunum á
pappírnum. Brjótið hringinn í
tvennt eftir miðju svo myndist
hálfhringur, tvíbrjótið pappír-
inn á í, svo brotin verði skörp.
Sléttið úr pappirshringnum og
setjið merki með blýanti 6 cm.
frá brún í hvert hinna 8 brota.
Miðja stóru stjarnanna á að
koma þar sem blýantsmerkið
er.
Festið pappírnum á mitt efn-
ið, þannig að annað hvert brot
fylgi nákvæmlega þráðarlegu
efnisins. Merkið á efnið, hvar
stjörnurnar eiga að vera.
Mynstrið er saumað yfir
skýrinamyndinni með heilum
krosssaumssporum nema yztu
sporin, sem saumuð eru með
hálfum krosssaumssporum.
Saumið hvert spor yfir 2 þræði
í efninu.
Mitt á milli stóru stjarnanna
eru litlu stjörnunrnar saumað-
ar, einnig með heilum og hálf-
um sporum yfir 2 þræði.
Útsaumurinn pressaður á
röngunni og nú er dúkurinn
sniðinn hringlaga eftir pappírs-
sniðinu. Skábandið brotið tvö-
falt og það þrætt á brún dúks-
ins, þannig að hún sé hulin í
skábandinu. Saumið skábandið
við í hendinni fyrst á réttunni
síðan á röngunni.
Borðrenningurinn: Sama efni
og í ljósadúknum nálega
15^X116% cm.
Saumið eftir miðju efnisins
14 stórar stjörnur, hafið 42
þræði milli hverrar stjörnu
talið frá utasta spori mynsturs-
ins.
Merkið fyrst fyrir miðlinum
efnisins eftir þræði, teljið síðan
21 þráð til beggja handa frá
miðlínunni, sem dregin var eftir
lengd efnisis. Merkið með títu-
prjónum í þessa staði, en þar
á að byrja að sauma stóru
stjörnurnar (örvarnar á skýr-
ingamyndinin). Saumað eins og
á Ijósadúknum.
Saumið litlu stjörnurnar I
Tnillibilunum eftir langhliðun-
um, þær eiga að vera um 3%
Framhald á bls. 37.
Skenimtileg
borðskreyting
Hér er skemmtileg hugmynd,
auðveld og fljótgerð við að
að skreyta jólaborðið.
Kaupið jólakúlur og mis-
mundan stærð og lit. Kaupið
einnig málmþráð, má ekki
vera þykkri en svo, að hægt sé
að beygja hann með hendi, og
útbúa fót til að standa á borði
meið beinum teini upp úr. Jóla-
kúlurnar þræddar upp á tein-
inn, fyrst þær stærstu, síðast
þær minnstu, stingið að lokum
grenigreinum og könglum undir
neðstu kúlurnar.
FrninlegBii*
jwlaórói
Lítið, en gott ráð
Ef hendurnar hafa orðið rauðar og
hrjúfar í jólahreingerningunum er skyn-
samlegt að meðhöndla þær á eftirfai>
andi hátt:
Heilið 1 msk. af olíu (möndlu-oliu*
jarðhnetu) í lófann, setjið 1 msk. af
grófu salti þar í. Núið hendurnar kröft-
uglega með þessu. Skolið síðan hend-
urnar með heitu vatni síðan ísköldu.
Þessi aðferð mýkir ekki hendurnar að-
eins í augnablikinu, en örvar líka blóð-
rásina í höndunum og varnar því rauð-
um höndum í framtíðinni.
Finnið frumlegan lurk
eða grein úti í garði eða
niðri i fjöru. Bindið við
hana svarta snúru í jafn-
vægispunktinn, skreytið
hana síðan með ýmsu
jólalegu. T. d. rauðum
hjörtum af ýmsum stærð-
um, glaðklakkalegum
sveinum, englum köngl-
um, svo eitthvað sé nefnt.
Festið þessu á greinina
með örmjóum þráðum.
FALKINN
35