Fálkinn - 24.02.1964, Blaðsíða 7
Fyrir utan dyrnar.
Kæri Fálki.
Það er ekki oft sem ég fer
út á veitingahús að gera mér
dagamun. Þó kemur það fyrir
og þessar ferðir eru venjulega
mikil upplyfting. Eitt laugar-
dagskvöld fyrir stuttu síðan fór
ég út á veitingahús svona upp
úr þurru ef svo má segja. Ég
hafði ekki ætlað mér að fara
en svo komu gestir í heimsókn
og það varð til þess að við
hjónin fórum með þeim út. Við
vorum nú heldur seint fyrir og
þegar komið var á skemmti-
staðinn beið þar fyrir utan
mikill fjöldi fólks og satt að
segja varð ég hneykslaður á
framkomu þeirra er fyrir utan
biðu.
Dyravörðurinn átti í miklum
vandræðum með að opna hurð-
ina til að hleypt út fólkinu og
þeir sem stóðu á stéttinni fyrir
utan ýttu á og vildu troðast
inn. Margir voru með Ijótan
munnsöfnuð sem beindist að
dyraverðinum rétt eins og hann
ætti sök á því hvernig málum
var háttað. þó var „sök“ hans
ekki önnur en sú að hann
reyndi eftir fremsta megni að
standa í sinni stöðu.
Það er kannski óþarfi að
taka það fram að allir þeir —
eða að minnsta kosti flestir —
er fyrir utan biðu þóttust hafa
horð. Sumir létu það uppi með
miklum bægslagangi rétt eins
og þeir ættu staðinn sjálfir. Þá
voru nokkrir sem héldu því
fram að annað hvort konan sín
eða maðurinn sinn væri inni
og það væri hart að fá ekki inn-
göngu einnig. Svo ef dyrnar
opnuðust þá var ýtt á og reynt
að troða sér inn. Það tókst að
sjáifsögðu ekki því dyravörð-
urinn stóð fastur fyrir.
Það er einkennilegt af fólki
þegar það vill komast inn á
skemmtistaði að geta ekki sýnt
smávegis kurteisi rétt á meðan
það er að berjast fyrir þessari
inngöngu sinni. Áreiðanlega er
það miklu heillavænlegri að-
ferð heldur en að vera með
frekju og ólæti. Það er einnig
leiðinlegt að sjá drukkna menn
röflandi fyrir utan dyrnar. Svo-
leiðis menn á að fjarlægja.
Samkomustaðir Reykvíkinga
eru mjög furðulegir.
Með þökk fyrir birtinguna.
Gestur.
Svar:
Já, hátterni manna er oft furöu-
legt fyrir utan dyr veitingahús-
anna.
Ágætur útvarpsþáttur.
Kæri Fálki.
Ég ætla að skrifa hér nokkr-
ar línur til að koma á fram-
færi þökkum mínum fyrir
ágætan útvarpsþátt Sveins Ás-
geirssonar „Hver talar“. Þetta
var reglulega skemmtilegur
þáttur og verður gaman að
fylgjast með honum í framtíð-
inni. Þeir sem reyna að finna
þann sem talar eru allir
skemmtilegir menn og það á
ekki hvað minnstan þátt í að
gera þetta að skemmtilegum
þætti.
Norðlendingur.
Byssuleyfi.
Fálkinn, vikublað.
Reykjavík.
Getur þú sagt mér hvert
maður á að snúa sér til þess að
fá byssuleyfi? Og hvað þarf
maður að vera gamall?
Með þökk fyrir svarið.
A. S.
Svar:
Byssuleyfi eru gefin út af lög-
reglustjórum, bcejarfógetum og
sýslumönnum. MaÖur þarf aö vera
oröinn 21 árs til aö geta fengiö
slikt leyfi og hafa ekki gerzt brot-
legur viö lög. Annars veita þessir
aöiiar allar upplýsingar í málinu.
faiiir
móéir
dóttir
sonur
FALKINN
7