Fálkinn - 24.02.1964, Qupperneq 31
Sorgarhatturinn
Framhald á bls. 28
court. Frænka var næstum því
orðin sjálfri sér lík aftur. Hún
brosti heiðu og mildu brosi.
„Maður á ekki að gráta yfir
þeim dánu. Þegar góðar mann-
eskjur deyja, fara þær upp í
himininn þar sem er svo gott
að vera. Ekki satt, stúlkan
mín?“
„Jú, en segðu mér nú, hvern-
ig ykkur gekk við jarðarför-
ina.“
Skyndilega varð frænka óró-
leg. Hún flögraði stefnulaust
yfir stofuna. Svo hvarf hún út
í eldhúsið. Eftir langa þögn fór
ég þangað. Hún sat á stól,
barnslega ringlaður svipur á
hennar góða, heiðarlega andliti.
„Þessi jarðarför — eh — hún
misheppnaðist alveg.“ Hún fitl-
aði vandræðalega við svunt-
una sína og bjó til músastiga
úr fellingunum. Eftir dálítið
bros og pínulítið fliss, byrjaði
hún: „Ég verð víst að segja
þér alla söguna. Sjáðu til, um
morguninn fór ég út til að
kaupa blóm. Það áttu að vera
Rósir — alveg eins og nafnið
á kæru litlu Rósu. Ég stanzaði
til að snýta mér fyrir utan
hattaverzlunina hérna á horn-
inu. Ég leit inn um gluggann
og féll í stafi yfir hatti, sem
var búinn til úr fjölda, fjölda-
mörgum pínu- angalitlum rauð-
um rósum. — Þá, já, þá kom
þetta skyndilega yfir mig. Ég
hugsaði: Er það ekki heimsku-
Kæri Astró.
Stjörnurnar eru dásamlegar,
ég trúi á þær og þekki fáeinar,
en þvi miður kann ég ekki að
lesa framtíð mína úr þeim og
þess vegna leita ég til þín. Mig
langar að vita eins mikið og
hægt er um framtíðina. Undir
hvaða merki er bezt að tilvon-
andi maki sé fæddur. Ég er
fædd klukkan 16.45. Er æski-
legt að ég giftist manni fædd-
um undir merki „Meyjarinnar“.
Fyrir hvaða starf hef ég mesta
hæfileika? Menntun mín er
landspróf og svo hef ég dvalið
erlendis til að læra ensku. At-
vinna mín er það, sem fáar
stúlkur leggja fyrir sig en það
er varðandi viðskipti og verzl-
un. Mér líkar það vel og hef
líka áhuga á margs konar list
og hef verið í Handíða og
myndlistaskólanum. En fyrst
og fremst langar mig að vita
hvað ég á að forðast. Mér
finnst það skipta mestu máli.
legt að kaupa lifandi rósir fyrir
þann sem er dáinn? Sá dauði
sér þær sko ekki — og rósir
deyja líka fljótlega. Ekki satt?
— Þær standa aðeins augna-
blik. En sjáðu til, rósirnar á
hattinum þarna, þær geta hald-
ist. Væri þá ekki miklu betra
að ég keypti hattinn — og
hugsaði svo um þessa kæru
sál, í hvert skipti sem ég bæri
hann? Þetta — já þetta fannst
mér vera fögur hugsun ...
Sem sagt, ég keypti hattinn.
Hann var voða fínt vafinn inn
í gegnsætt sellófan, eins og
blóm — og nú sýndust rósirnar
alveg lifandi. Tvær ætlaði ég
að klippa af, svo Maximin og
ég gætum hvort kastað einni í
gröfina.
En svo var allt umstangið
við að komast af stað. Það var
hræðilegt ástand. Þú veizt, að
hlutirnir hafa þá áráttu að fela
sig fyrir mér svona daglega,
og þegar maður þarf svo að
fara í svona mikið ferðalag.
Ég gat hvorki fundið skærin
né hvíta hálsklútinn. — Þetta
með hálsklútinn var nú reynd-
ar ekki svo skrítið, því hann
var sjálfur búinn að láta hann
á sig — og manni dettur nú
ekki í hug að leita á manneskj-
um... Jæja, við komumst þó
þangað úteftir. Ég var með
hattinn í sellófaninu. Það var
víst mjög fallegt og hátíðlegt
í kirkjunni — en ég var of
taugaóstyrk til að vera reglu-
lega ... Það skrjáfaði hræði-
lega í þessum sellófanfínheit-
um, þegar ég opnaði.. meðan
ég bað til hins góða guðs, reyndi
Ég vonast eftir að fá spána í
afmælisgjöf í síðasta janúar-
eða fyrsta febrúar-blaðinu.
Viltu gera svo vel og sleppa
fæðingardegi, mánuði, ári og
stað.
Með beztu kveðju.
Saturn.
Svar til Saturnusar:
Bezt væri makaval fyrir þig
úr merki Vogarinnar frá 24.
sept. til 23. okt. og einnig
undan þínu eigin merki frá 21.
janúar til 19. febrúar. Merki
Meyjarinnar, sem þú talar um
er hvorki gott né vont með til-
liti til Vatnsberamerkisins og
telst því fremur hlutlaust.
Hinsvegar er Máni staddur
þarna á fæðingarstund þinni,
en tengsl við mann fæddan
undir þessu merki benda
til svonefndra „karmiskra“
tengsla, en það er skyldleiki
ykkar á milli, sem ekki tilheyr-
ir núverandi persónugerfum
ég að rífa rósirnar tvær af með
nöglunum. Nei, það lánaðist
ekki, það var víst stálvír í
þeim . . .
Þá var það úti við gröfina
— innan um allan fólksfjöld-
ann kom ég auga á gamla
Moniseur Dublois. Það var
lausnin. Ég veit að hann hefur
alltaf vindlaskæri í vasanum.
Þau varð ég að ná í. Ég rétti
Maximin pokann með hattin-
um. Ég gat ekki skýrt neitt
fyrir honum. Maður getur ekki
æpt þannig upp í kirkjugarði..
Og svo — nú kemur það
hræðilegasta ... Það var líka
svo margt fólk, svo það tók
tíma að komast þangað og aftur
til baka, og Maximin var ekki
þar — ja — jú, alveg upp við
opna gröfina .. . var einmitt að
ganga framhjá til að kasta
blómum og — og — ég sá
Maximin kasta hattinum mín-
um! Ég varð svo utan við mig,
að ég gat alls ekki komið auga
á Róbert. Ég bara togaði í
Maximin til þess að komast af
stað. ÆÆ, hvað ég grét — Ég
sem hefði borið hattinn hvert
einasta sumar, til minningar
um elsku litlu Rósu dána ...“
Ég stökk niður af eldhús-
borðinu. „En frænka,“ hrópaði
ég, „þú ert sú indælasta, mest
utangátta manneskja í allri
veröldinni. Það er ekki Rósa
heldur Róbert, sem er dáinn!“
Frænka gapti: „En heilaga
guðsmóðir — er þetta satt?
Hvers vegna hefurðu ekki sagt
þetta fyrr? Rósa litla er lifandi!
Veiztu hvað ég geri, stúlka
mín? Ég fer strax til hennar
ykkar. Svo að samkvæmt því
gætuð þið hafa verið hjón
áður, samkvæmt kenningum
Austurlandanna.
Fjármálin koma talsvert
undir áhrif Mánans í stjörnu-
sjá þinni þar eð hann var stadd-
ur í öðru húsi á fæðingar-
stundinni. Það eru því horfur
á að ástandið í þeim efnum
verði nokkuð misjafnt og
breytilegt eins og diskur Mán-
ans á himninum.
í tíunda húsi er Marz, Saturn
og Úranus. Marz þarna bendir
til þess að þú búir yfir starfs-
og atorku til að vinna þig upp
til álits og mannvirðingar.
Saturn þarna bendir til þess
að þú munir hrapa jafnóðum
í virðingarstiganum. Úranus
þarna bendir til þess að þér
fari bezt sjálfstætt starf og
einnig að þú þurfir oft að
breyta starfsaðferðum þínum
og háttum. Störf þín verða með
óvenjulegum hætti yfirleitt.
til að segja henni, \að þegar
hún deyi, kaupi ég annan hatt
með rósum, til að minnast
hennar. Það er þó fallegt, að
hún fái að vita það, meðan hún
er á lífi, er það ekki?“ Frænka
reis á fætur. í dyrunum snerist
hún á hæli: „Og hugsa sér, að
Róbert gamli fékk dömuhai
með sér í gröfina!"
Og frænka flissaði himir
lifandi.
Skíðaíþróttin
Framhald af bls. 19.
til gagns og gamans, ungurr
sem gömlum, allt fram á 20.
öldina og svo er enn og ekki
sízt á norðurhveli jarðar, í
þeim löndum, þar sem mikill
snjór liggur yfir öllu, meiri
hluta ársins.
í hernaði hafa skíðin og
skíðaíþróttin komið víða við
sögu og má t. d. nefna að árið
1675, á stjórnardögum Dana í
Noregi, voru stofnaðar skíða-
herdeildir í Þrándheimi og á ð
1716 er send ein slík skíðah >
deild til orrustu við Karl !2.
Skíðastafir virðast ekki hafa
þekkst framan af öldum, en
þó er getið um þá að minnria
kosti árið 1767.
Árið 1888 vann Friðþjófur
Nansen það afrek að ganga á
skíðum yfir þveran Grænlandr-
jökul og skrifaði hann á sínum
tíma bók um þetta ferðalag
sem heitir á norsku „Pá ski
over Grönland“ og var húr
þýdd á mörg tungumál.
Framhald á bls. 37.
Venus og Júpiter eru í hag
stæðum afstöðum sín á mill
en húsa staða þeirra bendir til
þess að þú getir aflað mikils
fjár með vinnu þinni og oít
án þess að hafa neitt fyrir þvi.
Störf þar sem listsköpunarhæfi
leikar þínir nytu sín væru til-
valin fyrir þig eins og t. d.
það sem kallað er á ensku
„Commercial Art“ eða auglýs-
ingalist. Annars á verzlun og
sölumennska yfirleitt vel við
þig, sérstaklega ef þú getur
starfað sjálfstætt. Hinsvegar
skaltu ekki láta þér bregða þó
þú sért fjárþrota einn daginn
og flugrík þann næsta, þannir
eru áhrif stjarnanna þinna.
FÁLKINN 31