Fálkinn - 24.02.1964, Blaðsíða 32
RSTHANDiMl
IÆSTUR
Geysilega mörg bréf hafa borizt til rithandarlestrar
Fálkans, svo mörg að ekki er viðlit að sinna nema broti
af þeim. Hefur því verið ákveðið að taka að nokkru upp
nýjan hátt á þessum þætti, þ. e. að gefa fólki kost á því
að senda greiðslu með sýnishornunum og jafnframt nafn
og heimilisfang. Mun rithandarlesarinn þá senda úrlausnir
sínar til viðkomandi aðila. Greiðsla sú, sem senda þarf
með, er 200 krónur, og munið að senda hana í ábyrgðar-
bréfi, því eins og kunnugt er er óheimilt að senda peninga
í almennum bréfum. Hvorki við né pósturinn, getum tekið
neina ábyrgð á þeim peningum, sem sendir eru í almennum
bréfum. Ef þið viljið fá sérstaklega nánar upplýsingar væri
mjög æskilegt að þið senduð litla mjmd (passamynd) með
bréfinu.
Þótt þetta fyrirkomulag sé tekið upp, verður einnig unnt
að senda bréf eins og áður til blaðsins, án greiðslu og án þess
að gefa upp nöfn og hcimilisföng, en þá eigið þið það líka
á hættu, að ekki verði unnt að svara bréfum ykkar vegna
hinnar miklu aðsóknar. Vonum við svo, að þið hagnýtið
ykkur þetta nýja tilboð, og bréf ykkar eru velkomin —
með greiðslu og án greiðslu.
Rithönd yðar bendir til að þér séuð nokkuð hæglynd
kona og nokkuð óframfærin. Það kemur fyrir að þér skiptið
skapi en það kemur sjaldan upp á yfirborðið,
Þér virðist geta verið ákaflega glaðvær og skrafhreyfin
í vinahóp en nokkuð óframfærin við ókunna.
Mér virðist þér eiga dökkhærðan eiginmann og ég gæti
trúað að hjónabandið verði jafngott áfram og það hefur
verið þó þér hafið nokkrar óþarfa áhyggjur af honum en
það virðist nú oft vera fylgikvilli 'njá ungum konum þó
þær séu búnar að vera giftar í nokkur ár.
Mér virðist þér hafa verið nokkuð stutt á æskustöðv-
um yðar en hafa búið á tveim stöðum síðan.
Móðir yðar virðist vera á lífi og faðir yðar annaðhvort
sjúklingur eða látinn fyrir mörgum árum síðan.
Þér virðist hneigjast mjög til friðsældar og rólegheita
en samt virðist rjúka upp í yður sterk löngun til þess að
vera innan um fjölmenni og gleðskap, en það virðist samt
ekki vera mjög oft.
Eg get ekki séð vel hvaðan þér eruð en mér virðist það
vera í nokkuð stóru þorpi með sterku sjávarlofti og fugla-
gargi og löng sandfjara á hægri hönd við bústað yðar.
Þetta gæti ef til vill verið á fæðingarstað yðar sem ég
lýsi núna því hugur yðar virðist vera nokkuð reikull er
þér skrifið þessar línur.
Um þessar mundir virðist yður umhugað um nokkuð
þrekvaxinn eldri mann en það fer allt betur en á horfist.
En mér virðist þér bráðlega fá miður góðar fréttir úr
fjarlægu byggðarlagi. Þér skuluð ekki láta það koma yður
á óvart.
Framtíðin mun yerða vður mjög björt næstu árin þótt
fortíðin hafi verið nokkuð skellótt.
Þér skuluð ekki !áta þunglyndið ná neinum tökum á
yður.
Þér virðist nokkuð taugasterk manneskja og þér eigið
til með að finna til nokkurra óþæginda í höfðinu og nokk-
urn slappleika og ég gæti trúað að það stafaði af blóð-
leysi. Þér finnið líka ti1 óþæ^inda í hægri fætinum en
ég vona að það lagist h-íð1"'*-
Kær kveðja.
HVAÐ GERIST j NÆSTU VIKU ?
Hrátsmerkiö (21. marz—20. aprll).
Þér skuluð ekki hafast mikið að I þessari viku
sem fer í hönd. Takið lífinu með ró og dveljist
heima við ok forðist að taka allar stór ákvarðanir.
Nautsmerkiö (21. apríl—21. maí).
Þessi vika verður fremur róleg ok fátt mikils-
verðra atburða mun Kerast. Þér ættuð að nota
þessa róleKu tíma til að lagfæra það sem miður
kann að hafa farið að undanförnu.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní).
Þér ættuð að reyna að hagnýta yður þau tæki-
færi sem yður bjóðast í þessarl viku þvi óvíst
er að yður muni Kefast önnur tækifæri betri.
FimmtudaKurinn verður sérstæður.
KrabbamerkiÖ (22. júní—22. júli).
Gætið þess vel í þessari viku að krefjast ekki of
mikils af öðrum reynið heldur að koma til móts
við þá sem þér umKanKist mest. Eyðið ekki um
efni fram.
LjónsmerkiÖ (23. júli—23. ágúst).
Þér ættuð að nota þessa viku til að búa yður
vel undir að mæta þeim erfiðleikum sem fram-
undan eru. Ef þér eruð vel undir þá búnir mun
yður farnast vel.
Jómfrúarmerkiö (2i. áaúst—23. sept.).
Þér ættuð að hafa það huKfast um þessar mund-
ir að ekki er sopið kálið þó i ausuna sé komið.
Gætið þess vel að spilla ekki fyrir yður með
fljótfærni um þessar mundir.
Voqarskálamerkiö (24. sept.—23. okt.).
Þessi vika verður skemmtileK með ýmsu móti
þótt ekki verði mikið um stóratburði. Úm helKÍna
ættuð þér að lyfta yður upp ok Kera yður glaðan
daK bví til þess eru afstöðurnar heppileKar.
Sporödrekamerlciö (24- okt.—22. nóv.).
Gætið þess vel að særa ekki fólk að ástæðu-
lausu þvi það Ketur haft mjög hættuleKar afleið-
inKar í för með sér. Minnist þess að stilla orðum
yðar i höf og forðist vandræði.
Boaamannsmerkiö (23. nóv.—21. des.).
Þér skuluð hafa vei hugfast í þessari viku að
skjóta ekki of hátt yfir markið. Gætið þess að
takast ekki of mikið i fang heldur ætlið yður
vel af ok þá mun allt fara vel.
SteinaeitarmerkiÖ (22. des.—20. janúar).
Nú ættuð þér að legK.Ía yður allan fram til
þess að hagnýta sem bezt þær heppilegu afstöður
sem nú eru. Þér munuð sjá mjög eftir því síðar
ef þér misnotið þessar afstöður.
Vatnsberamerlciö (21. janúar—18. febrúar).
Þér ættuð ekki að skapa yður áhyggjur að
ástæðulausu. Reynið að bægja frá því þunglyndi
sem á yður sækir um þessar mundir. Gerið yður
glaðan dag og siáið hvort það bætir ekki úr.
Fiskamerkiö (19. febrúar—20. marz).
Yður hættir stundum til þess að vera of mál-
gefinn t. d. ef síminn er annars vegar. Þér ættuð
að forðast þetta. I ástarmálunum getur þessi vika
orðið vður hagstæð
fálmnn
ó. s.