Fálkinn - 24.02.1964, Side 34
Á síðari árum hefur notkun súrmjólkur farið mjög
í vöxt, sem vel er, því að súrmjólk er að mörgu leyti
I hollari en nýmjólk. Hún er auðmeltari en nýmjólk,
því að mjólkursýran virkar á eggjahvítu mjólkurinnar.
* Hún er auðug af mjólkui'sýrugerlum og B-vítamíninu,
sem auka starfsemi þarmanna. Súrmjólk er því einkar
•' holl sem morgunverður ýmist til drykkjar eða borin
| j fram með t. d. Corn-Flakes eða rifnu rúgbrauði.
En úr henni er einnig hægt að útbúa ágætis spóna-
mat og ábætisrétti, sem oft eru auðtilbúnir.
Súrmjólkursúpa.
1% 1. súrmjólk
45 g hrísmjöl
Kanelbiti eða rifinn sítrónubörkur
2 msk. rúsínur
2 msk. sykur.
Hrísmjöl og súrmjólk hrært kalt saman í potti. Þeytt,
þar til suðan er komin upp. Þá er rifnum sítrónuberki,
rúsínum og sykri bætt út í. Soðið í 10—15 mínútur.
Köld súrmjólkursúpa.
1 1 súrmjólk
1 Yz msk. sykur
| 10 möndlur
Y2 tsk. vanilla
1 dl þeyttur rjómi
Möndlurnar flysjaðar og saxaðar smátt. Súrmjólkin
þeytt, einnig rjóminn. Öllu blandað saman. Súpan borin
fram vel köld ásamt litlum tvíbökum.
Súrmjólkurbúðingur.
% 1 súrmjólk
8 bl. matarlím
20 sætar möndlur
60 g sykur
Rifinn sítrónubörkur
3 dl rjómi
Appelsínur
Bananar
Epli
Matarlímið lagt í bleyti í kalt vatn í 5 mínútur. Undið
upp úr vatninu, brætt við gufu. Möndlurnar flysjaðar
og saxaðar smátt. Súrmjólkin þeytt með sykrinum,
möndlunum og sítrónuberkinum hrært saman við. Þegar
matarlímið er ylvolgt er því hrært út í súrmjólkina.
Þegar búðingurinn er að byrja að hlaupa er % hluta
af þeytta rjómanum hrært saman við. Hellt í skál sem
brytjaðir ávextir hafa verið settir í. Dálítið af ávöxt-
unum tekið frá til að skreyta með. Eftir 1 klukkustund
er búðingurinn skreyttur með afgangnum af þeytta
rjómanum og ávöxtunum. f staðinn fyrir ávextina er
gott að bera ávaxtasósu með þessum búðingi.
Eggjasúrmjólk.
Þeytið saman 1 eggjarauðu og 1 msk. af sykri, rifn-
um berki af 1 sítrónu hrært saman við ásamt 1 glasi
af ískaldri súrmjólk. Eggjahvíta stífþeytt blandað saman
við. Borið fram sem eftirréttur t. d. með ávöxtum, sem
staðið hafa stundar korn með sykri.
Súkkulaði-súrmjólk.
Þeytið saman 1 egg og 1 msk. af sykri, 1 bolla af
ísköldu, bragðsterku súkkulaði eða kakó hrært saman
við og að lokum 1 glas ísköld súrmjólk.
Framhald á bls. 37.
34
FÁLKINN