Fálkinn - 29.11.1965, Blaðsíða 20
auglýsir:
Einsmcmnssvefnsófi, stœrð 145 cm lengist
upp í 185 cm meS púðunum, sœngurfata-
geymsla undir, stólar fóst í stíl við sófann.
húsgagnaverzlun
Hverfisgötu 50 — Sími 18830.
Winther þrih|ól
- fást í þrem stærðum
□ RNIN N
SPÍTALASTÍB B -
SÍMI 14661 -
PDSTHÓLF 671.
|| Is3“JI — pi1II'á£m
Hrúturinn, 21. marz—20. apríl:
Þó mikið liggi við hjá þér að ljúka þeim
verkefnum, sem þú hefur þegar hafið mátt
þú til með að sjá af einhverjum tíma til
að sinna fjölskyldu þinni og gera henni
eitthvað til skemmtunar. Þú munt verða
ánægðari með siálfan þig á eftir.
Nautifl, 21. apríl—21. maí:
Vinir þínir munu vilja leggja á ráðin fyrir
þig, en það er óvíst að þeir hafi betra lag
á viðfangsefnunum heldur en þú sjálfur.
En það er þér í hag ef þú gefur þér tíma
til að líta á málin frá fleiri en einni hlið.
Tvíburarnir, 22. maí—21. júní:
Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú tek-
ur mikilvægar ákvarðanir í fjármálunum.
Þú munt finna í þessari viku þann hlekk
sem þig hefur vantað í keðjuna til að geta
lokið aðkallandi verki sem þú hefur þó
lengi glímt við.
Krabbinn, 22. júní—23. júlí:
Ættingiar þínir eða nágrannar munu
virka dáiítið óþolinmóðir í þinn garð.
Reyndu að komast að því hvað veldur
óþolinmæði þeirra. Þú ættir að vera tíman-
iega í jólaundirbúningi þínum því þér er
ekki gefið að geta flýtt þér á síðustu stundu.
LjóniS, 21. iúlí—23. dpúst:
Það má búast við að þetta verði sérstak-
lega annasöm vika hjá þér því þú hefur
ætlað þér að koma mikiu í verk og ert
ákveðin í að liúka því öllu. Láttu svart-
sýni annarra ekki hafa áhrif á að Þú náir
þínu markmiði.
Mevian, 21. ác/úst—23. sevt.:
Þér er þörf á góðum og skemmtilegum
félagsskap, og það er tilgangslaust hjá þér
að bera á móti því, en taka Þess í stað vel
þeirri viðleitni binna nánustu til að gera
þér lífið sem íiölbreyttast og skemmtilegast.
Vopin, 21. sevt.—23. okt.:
Löngun þín til að gera öðrum greiða fær
þig til að gefa Þig að fólki sem þú hefur
ekki miklar mætur á. Sérstök viðskiptamál
gætu farið út um þúfur ef þú gætir ekki
mikillar varkárni. Taktu ekki að Þér eitt-
hvað það, sem bú getur ekki framkvæmt.
Drekinn. 21. okt.—22. nóv.:
Þú ert í vafa um hvernig þér beri að
levsa visst verkefni, það væri heimskulegt
að revna að framkvæma Það án þess að
vera fuHkomlega viss um hvernig beri að
levsa það. I ástamáiunum verðurðu að gera
þér grein fvrir hvað bú raunverulega vilt.
a-Vdg
BoqmaSurinn, 23. nóv.—21. des.:
Þetta er ekki rétti tíminn til innkaupa
því þú hefur tilhneigingu til að eyða of
miklu í óþarfa á kostnað þess sem kemur
þér reglulega á óvart.
Steinaeitin, 22. des.—20. janúar:
Fjármálin virðast vera þín aðal vandamál
eins og er og þú verður að reyna að koma
auga á leiðir þeim til lagfæringar. Treystu
fremur á þína eigin getu heldur en hjálp
annarra. Þó þér reynist kannski erfitt að
ráða úr þessu sjálfur verður þú ánægðari.
Vatnsberinn, 21. ianúar—19. febrúar:
Þú ættir ekki að vera of þunglyndur yfir
því ef þér hefur ekki tekizt að ná Því marki,
sem þú settir þér. Það eru margar leiðir
færar þótt þessi hafi ekki reynzt það. Hertu
upp hugann og byrjaðu á ný.
Fiskarnir, 20. febrúar—20. marz:
Skiptu ekki um skoðun aðeins til þess að
þóknast öðrum heldur skaltu halda fast við
þína jafnvel þótt þú eigir vísa reiði ein-
hverra vina þinna. Vertu þess minnugur
að þú verður ávallt að ætla þér mikinn
tíma til að Ijúka hverju verkefni.