Fálkinn - 23.05.1966, Qupperneq 4
X DOMl/lCE 7241
Domestos er sterkt, fjölvirkt, sýklaeyðandi
hreinsiefni. Notkun þess tryggir hreinlæti.
Tvær flöskur af Domestos ættu ávalt að
vera til á hverju heimili. Ein í eldhúsinu—
önnur í baðherberginu.
Domestos
DREPUR ALLA þEKKTA SYKLA
DOMESTOS
Drepur
sy/da/
Prestur nokkur átti 2 grimma
hunda. Biskupinn var í vísi-
tasíuferð og kom fyrst til ná-
grannaprestsins, sem kvartaði
sáran yfir grimmu hundunum
hans stéttarbróður síns. Og þeg-
ar biskupinn kom til hunda-
prestsins sagði hann:
— Hundarnir yðar eru sjálf-
sagt dálítið varhugaverðir . . .
— Nei.
— Það gæti hugsazt að sókn-
arbörn yðar væru hrædd við að
koma til yðar, vegna þeirra . . .
— Nei, það er öðru nær.
■ — Svo mikið er víst að hann
er hræddur við þá hahn stéttar-
bróðir yðar. Þér ættuð að skjóta
þessa hunda.
— Ef ég ætti að skjóta allt
sem hann er hræddur við, yrði
ég að byrja á yður. Því að ekk-
ert er hann eins hræddur við
og biskupinn.
Samúel gamli var rukkari og
þótti þaulsætinn í starfinu.
Stundum var hann látinn bíða
heila klukkutímana eftir áheyrn,
en alltaf þraukaði Samúel. Hann
var flestum hvimleiður og sjálf-
ur var hann orðinn leiður á líf-
inu og öllu snattinu, sem hann
varð að hafa fyrir aðra. Svo fór
hann einu sinni að rekja raunir
sínar fyrir hjartagóðum manni,
sem reyndi að hugga hann og
sagði:
— Þetta breytist allt, Samúel
minn, þegar þú kemur til
himnaríkis. Þá áttu sífellda
sæludaga í vændum. •
En Samúel var orðinn böl-
sýnn og vildi ekki trúa því:
— Ætli það fari ekki svo, að
þegar fer að kvölda þar, verði
mér skipað að gljáfægja tunglið
og hengja upp allar stjörnurn-
ar.
Frú Grímsness tekur við bréfi
hjá ármanninum á gistihúsinu,
opnar það og tekur miða upp úr
umslaginu og segir svo: — Mað-
urinn minn skrifar að sér líði
vel, að hann sakni mín, að
verzlunin gangi vel og hann
elski mig meira en allt annað í
veröldinni.
Ármaðurinn: — Og hefur
hann getað komið öllu þessu
fyrir á þessum litla miða?
Frú Gr.: — Já, þetta er 1200
króna ávísun og hún þýðir allt
þetta.
4
FALKINN