Fálkinn - 23.05.1966, Side 10
Hvemig er þetta „Vísitölubú“ sem sýknt
og heilagt er verið að staglast á í útvarpi,
blöðum og alls konar yfirlýsingum frá
bænda- og launþegasamtökum? Þeir hjá
Búnaðarfélagi íslands urðu ekki beint
klumsa, þegar við Ieituðum frétta af þessu
atriði. Heldur sögðu þeir sem svo, að „vísi-
tölubúið“ væri í rauninni ekki til. Það væri
ekki annað en reikningsleg viðmiðun, eitt
af mörgu sem hafa þarf í huga, þegar
reiknað er út afurðaverð til bænda og þar
með Iaun erfiðis þeirra. Hins vegar sögðu
þeir, að á Skeggjastöðum í Flóa gætum við
séð bú, sem kæmist einna næst því að vera
„vísitölubú" af þeim jörðum, sem þeir
vissu af hér í nágrenninu. Þar sem hér er
um forvitnilegt atriði að ræða, sem snertir
alla landsmenn, líklega hvar í flokki sem
þeir standa, lét Fálkinn ekki á sér standa
og fór á vettvang til að kynna sér málið.
í eftirfarandi grein er spjallað lauslega
við Gunnar Halldórsson á Skeggjastöðum
og húsfreyju hans, Sigríði Guðjónsdóttur
frá Bollastöðum. Þau eiga þrjú börn, Krist-
ínu, Skeggja og Halldóru, svo talið sé í ald-
ursröð, þannig að hér er einnig á ferðinni
eins konar „vísitölufjölskylda", eða þessi
fræga „fimm manna fjölskyhla'*.
10
FALKINN