Fálkinn


Fálkinn - 23.05.1966, Side 11

Fálkinn - 23.05.1966, Side 11
Kyrrðin var svo hlý, að mað- ur heyrði þegar mjólkurbílar Kaupfélags Árnesinga voru ræstir niðri á Selfossi, staddur að Skeggjastöðum i Hraungerð- ishreppi eina 10 km. í burtu. Niðri við fjárhúsin blandaðist jarmurinn í kindunum við fugla- söng loftsins, í hinni þúsund ára gömlu íslenzku vorsinfóníu. Syrtlingur gaus úti í hafsauga eins og hann er vanur, dumb- ungur í lofti, fölnuð sina á jörðu og þíðuilmur úr jörð. Svo er sagt að silungurinn sé farinn að veiðast hingað og þangað í hinum og þessum lækjum með alls konar græjum af alls kyns fólki. Gunnar Halldórsson bóndi að Skeggjastöðum í Hraungerðis- hreppi í Flóa, er að byggja yfir sig hús. Hann ætlar ekki að byggja steinhús, heldur timbur- hús og hann ætlar að hafa á því bárujárn, þrátt fyrir yfirlýsing- ar húsasmiða um að það séljótt. Gunnar segir hinsvegar að báru- járn sé alls ekki ljótt, sé það aðeins málað og um það geta vist flestir verið sammála. Á meðan hann er að byggja, býr fjölskyldan í kjallaranum, sem búið er að steypa. Gamli bærinn, sem Gunnar fæddist í hefur verið rifinn, en í kjallar- anum er eins vistlegt og hægt er að ætlast til hjá fólki, sem stendur í húsasmíðum. En af hverju erum við allt í einu komnir austur að Skeggja- stöðum og gripnir rómantískri vorstemningu? Jú, það er vegna þess að fróð- ir menn hjá Búnaðarfélaginu tjáðu okkur, að þar væri hægt að sjá það, sem kæmist einna næst því að vera hið svokallaða „vísitölubú", sem er hinsvegar ekkert annað en reikningslegt hugtak eins og svo margt annað í þjóðarbúinu okkar blessuðu. Gunnar hefur búið á Skeggja- stöðum síðan árið 1955, er hann tók við búi þar af móður sinni og er hann fjórði ættliður, sem situr jörðina. Skeggjastaðir til- heyra hinsvegar Hraungerðis- torfunni og eru kirkjujörð, enda mála sannast að drottinn alls- herjar sé mestur bóndi á ís- landi. Gunnar er kvæntur Sig- riði Guðjónsdóttur frá Bolla- stöðum, sem er svo til næsti bær og þau eiga þrjú börn: Skeggja, 6 ára gamlan sem aldrei hefur komið í bíó. Krist- ínu 10 ára, sem hefur einu sinni komið í bíó í Reykjavík og svo er það hún Halldóra litla, sem er ekki nema tæplega ársgömul og ekki farin að hugsa til bíóferða. Bústofninn er 13—14 mjólk- andi kýr, 100 kindur, 27 ha. tún, tvær dráttarvélar með tilheyr- andi tækjum og tveir reiðhestar. Þannig lítur þá „vísitölubúið" út svona nokkurn veginn ogeig- inlega mætti bæta því við að fjölskyldan er líklega eitthvað nálægt því að vera hin svokall- aða „vísitölufjölskylda“. Gunnar er léttur í máli um búskaparbaslið. Vorið er erfið- asti tíminn, þegar sinna þarf sauðburði og öðrum vorverkum. Vinnutíminn erlOtilll stundir á sólarhring allan veturinn, en fer upp í 12 til 14 stundir í vor, segir hann. Hjónin vinna ein að búskapnum, því ekkert barnanna er komið á þann aldur, að þau geti orðið að teljandi liði. Og Gunnar heldur því fram, þvert ofan í fullyrðingar dagblaða- spekinga og fleiri alvitringa, að 11—12 ára börn séu fullfær um að aka dráttarvélum við góðar aðstæður. Enda segist hann ekki vita til þess að fleiri slys hafi orðið á börnum við dráttarvéla- akstur, en á fullorðnum mönn- um. Börn á þessum aldri láti líka vel að stjórn yfirleitt. Krökkum á gelgjuskeiði sé gjarnara að sýna af sér ýmiss konar glannaskap og óhlýðni. Hvort ekki eigi að taka upp samvinnubúskap, auka þannig afurðirnar og lækka verðið til neytendanna? Efri myndin er af hjónunum á Skeggjastöðum og börnum þeirra. Kristín litla er lengst til vinstri, þá Sigríður húsfreyja, sem heldur á Halldóru litlu i fanginu og Gunnar bóndi með Skeggja á kné sér. Á neðri myndinni hefur skipt um svið. Skeggi og Kristín eru komin niður í hestagirðingu, þar sem unga heimasætan gælir við einn af reiðhestum föður síns en Skeggi skeggræðir að því er virðist við Lappa, hundinn sem eiginlega átti að heita Skeggi, af því að hann er með hökutopp. FALKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.