Fálkinn


Fálkinn - 23.05.1966, Síða 16

Fálkinn - 23.05.1966, Síða 16
i I • BENEDIKT VIGGÓSSON skrifar fyrir unga fólkið • Þeir flytja óð æskunnar Rabbað við Engilbert Jenssen Þegar Engilbert hætti hjá Hljómum, misstu þeir góðan söngvara og það skarð hefur ekki verið fyllt aftur. Hins veg- ar er það staðreynd, að Pétur Östlund er bezti trommuleikari íslands og þó viðar væri leitað. Hver man ekki eftir laginu Bláu augun þín, en það var einmitt Engilbert, sem söng það inn á fyrstu plötu Hljóma. Nú er Engilbert söngvari og trommuleikari með hljómsveit sem ber hið rammíslenzka nafn, ÓÐMENN (ÓÐUR = lag). Þeg- ar hljómsveitin lék í Glaumbæ á dögunum rabbaði ég stuttlega við þennan fyrrverandi „Hljóma“-mann. Hljómsveitin er alveg ný af nálinni? Já, hún er stofnuð í febrúar 1966 í Keflavík, en við eru allir þaðan. Ég byrjaði hins vegar að syngja með skólahljómsveit i gagnfræðaskólanum þar 1956. Síðan fékk hún nafnið hljóm- sveit Guðmundar Ingólfssonar og kom hún fram í 5—6 ár við góðan orðstír. Á þessu stutta tímabili, sem Óðmenn hafa kom- ið fram, höfum við leikið að HVOLI, í STAPANUM, nú og hér í Glaumbæ, en okkur líkar sérstaklega vel við fólkið, sem sækir Glaumbæ. Hvað heita piltarnir? Það er Jóhann Jóhannsson bassaleikari, en hann var áður með Straumum. Bróðir hans spilar á sólógítar; Eiríkur Jó- hannsson. Valur Emilsson á rythmagítar, nú og ég hamra á trommurnar. Hins vegar syngj- um við allir. Að lokum máttu geta þess, að Valur og Eiríkur hafa ekki spilað áður opinber- lega, en eru mjög efnilegir. TEXTINN VIÐ „Á SJÓ“ ER EFTIR ÓLAF RAGNARSSON í viðtali við Þorvald Halldórsson í 12. tbl. varð sú leiða prentvilla, að Ómari Ragnarssyni var eignaður textinn við lagið Á SJÓ, en hann er eftir ungan Sigl- firðing, Ólaf Ragnarsson að nafni. En Þorvaldur lagði mikla áherzlu á það, að þessi haglega gerði texti ætti stærstan þátt í vinsældum lagsins. Þá má geta þess, að Ólafur er starfsmaður íslenzka sjónvarpsins. Er Proby búinn að láta klippa sig? Þetta þótti óvefengjanleg staðreynd, þegar myndin hér til hliðar birtist í Berlingske Tidende, en myndum skal treysta varlega, því nú hefur komið í ljós að þetta var brella. Proby greiddi hárið slétt aftur og hefur sennilega not- að við það kynstur af hárkremi. A.m.k. var árangurinn góður, því nú leit hann út eins og nýkominn af rakarastofu. Um þetta segir hann: „Ég hef ekki látið klippa mig, en það er aldrei að vita nema ég geri það ein- hvern daginn." Hin myndin sýnir P. J. Proby eins og hann er í dag. 16 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.