Fálkinn - 23.05.1966, Síða 17
Topplögin 1959
1. HVÍTIR MÁVAR
2. PERSONALITY
3. WHAT YOU’VE DONE
TO ME
4. ÚTLAGINN
5. TJÁ TJÁ BAM BINA
Helena Eyjólfsdóttir
Layd Price
Micki og Paul
Óðinn Valdimarsson
Haukur Morthens
Listi yfir 5 vinsælustu lögin hérlendis 1959 mun birtast
öðru hverju í þættinum ásamt lið, sem ber yfirskriftina
STUTT OG LAGGOTT.
Eins og þið sjáið, eru 3 laganna flutt af ísl. söngvurum,
og eiga þau það sameiginlegt, að textarnir túlka allir ein-
hvers konar ástarsorg og allt eru þetta falleg lög, sem náðu
miklum vinsældum þetta umrædda ár.
Þar er fremst í flokki Hvítir mávar, sem hún Helena
syngur, en það var álíka vinsælt 1959 og Brúðkaupið var
á sl. ári og þá farið þið nærri um, hve oft það hefur heyrzt
í Ríkisútvarpinu.
Óðinn Valdimarsson syngur um raunir útlagans, sem er
ástfanginn í hreppstjóradótturinni, en strák-greyið verður
að híma í dimmum helli um nætur, því hann hafði hungr-
aður stolið sauð. Óðinn túlkar þetta lag með tregablandinni
röddu, og enn þann dag í dag, 7 árum síðar, má heyra það
í óskalagaþáttunum.
Það virðist sem saga ísl. útlagans sé vinsæll efniviður
í danslagatexta, því að lag með sama nafni, sungið af
Ragnari Bjarnasyni. gerði mikla lukku á sl. ári.
Lestina rekur ítalska lagið hugljúfa Tjá Tjá Bam Bina,
og auðvitað er það Haukur, sem syngur það.
Myndin er af Óðni Valdimarssyni, sem syngur á Hótel
Borg um þessar mundir.
sss
IsSsSiíSSSÍ®
lllliii
mMmíM
Íiiii:
iilMÍÉMÚMwáÍá
r> -*• :‘:‘í
iL
Hvert er
förinnl heftið?
Faxarnir rata
England, Skotiand, DanmÖrk, Noregur,
Færeyjar..,
Flugfélagið sér yður fyrlrjarl
á íslandi og um víða veröld
FLUGFELAG ISLANDS
/CELANDAIR
FALKINN
17