Fálkinn - 23.05.1966, Síða 27
FURÐUR
HIMINS OG JARÐAR
ÍSALDA
laganna ákvarði legu miðbaugs samkvæmt innbyrðis jafnvægis-
streitu sem veldur einhverjum snúningi á möndul-afstöðu hnatt-
arins. Og skyldu þessar ójöfnur eða afbrigði — á eða í jarð-
kúlunni — taka annarri skipan, mun hún byltast á snúnings-
möndli sínum unz hinar nýju ójöfnur og staðbundin þyngdaraf-
brigði hafa fundið sér innbyrðis jafnvægisstöðu kringum nýjai
miðbaug.
Samkvæmt þessu ber því að svara spurningunni um það
hvers vegna jörðin snúi nú öðruvísi á möndli sínum en hún
gerði fyrir 200 milljónum ára, á þann veg, að afbrigðilegum
þyngdarsvæðum hennar sé öðruvísi skipað nú en þá. Þetta er
fullkomlega frambærilegt svar. Einkum má telja sennilegt ac
þyngdarafbrigði innviðanna hafi umskipazt á síðustu 200 millj-
ónum ára.
HVERS VEGNA
SNÝR HÚN SVONA?
í bók sinni „Frontiers of Astronomy" víkur stjarneðlisfræð-
ingurinn Fred Hoyle að því, að ef til vill megi undarlegt virð-
ast að áður hafi engum dottið í hug að velta þeirri spurningu
í alvöru, hvers vegna jörðin „snýr eins og hún snýr.“ Hvers
vegna er Grænland í grennd við norðurskautið? Hvers vegn;
er Ceylon í grennd við miðbaug? Hann gerir ráð fyrir því, að
hefðu slíkar spurningar verið lagðar fyrir hann fyrir nokkrum
árum, hefði hann svarað sem svo, að áttastefnur jarðar væru
slíkar af hreinni tilviljun, þ. e. a. s. að tilviljun ein réði því,
að hún tók að snúast í þessari stöðu um það leyti er hún fékk
sína fyrstu mynd. En samkvæmt þessum nýju hugmyndum ei
slík tilviljun með öllu dæmd úr leik. Áttastefnur jarðar hljóta
hverju sinni að byggjast á niðurskipan hinna afbrigðilega
þyngdarsvæða hennar. Breytist þessi skipan munu áttastefnurnai
breytast til samræmis í jafnvægissókn hnattarins. Jafnvel þótt
eitthvert geimtröll tæki sig til og breytti legu jarðarkúl-
unnar á snúningsmöndlinum, mundi jörðin aftur — á nokkrum
áramilljónum, snúast til núverandi stöðu í þrotlausri viðleitni
sinni til jafnvægis.
SÓFASETT
VANDAÐ, STERKT OG STÍLHREINT
SÓFAR TVEGGJA-, ÞRIGGJA- OG FJÖGRASÆTA
VERÐ SERSTAKLEGA HAGSTÆTT
GÖÐ GREIÐSLUKJÖR
HNOTAN
HÚSGAGNAVERZLUN
ÞÓRSGÖTU 1 SÍMI 20820
FARLEY'S
FYRSTA
FASTA
FÆÐA
UNGBARNA
F A R L E Y ‘S kornkökur eru framleiddar úr korni, sykri og
fitu að viðbœttum ýmsum fjörefnum og steinefnum. Með
réttri notkun fullnœgir FARLEY'S öllum nœringaþörfum
ungbarna. FARLEY'S í heilum kökum eru einnig tilvalið
skólanesti fyrir börn.
FARLEY'S barnamatur i Eggjahvituefni 7.0g Sykur oq Dexlrín 31,Oq nniheldur: f 100 grömmum vítamfn B1..... 0,28mg Vítamfn B2 0,53mg
önnur kolvetni 48,2g Fita Ó.Oq Steinefni 1,3g Voln 7.0g Kalorfur ( 100 Nikótfnsýra 7,0 mg Vítamín D 700 a.e. Járn 21 mg Kalk 350 mg grömmum: 396
IATH. FYRIR ELDRA FÓLK EÐA LASBURÐA eru FARLEY'S
Kornkökur. Lleyltar { mjólk, mjög holl og auðmolt fœSa.