Fálkinn


Fálkinn - 23.05.1966, Side 32

Fálkinn - 23.05.1966, Side 32
m „Haldið þér, að eitthvað sé til í þessu? Yður eru kunnar að- stæður hér. Haldið þér að hann láti verða af því að tala við þennan kvenmann?" Hún yppti öxlum, „Ég held, að fyrir hundrað dollara myndi þessi höfuðsmað- ur gera nærri hvað sem væri.“ Það leið dálítil stund, áður en hann gerði sér grein fyrir hinni dýpri merkingu í orðum henn- ar. „En höfuðsmaðurinn á ekki að fá peningana." „Ekki það?“ „Nei, þeir eru handa vínsölu- konunni, ef hún útvegar okkur upplýsingar.“ „Ég held ekki, að hann láti hana hafa hundrað dollara. Tutt- ugu kannski. Eða ekki neitt.“ „Yður er ekki alvara!“ „Þér spurðuð mig, hvað ég héldi í þessu máli.“ „Hann er ekki af þeirri mann- tegund. Hann hugsar um það eitt að þóknast yfirboðara sín- um. Það skuluð þér fá að sjá.“ Ungfrú Kolin brosti íbyggin. George svaf ekki mikið um nóttina. Varúðarráðstafanir þær, sem hann hafði gert með tilliti til veggjalúsanna, höfðu á ein- hvern hátt sannfært hann um að fjaðraramminn moraði í ó- þrifum. í myrkrinu gerði hann sér brátt í hugarlund, að lýsnar væru að ráðast á hann. Það var til einskis að hugsa um það magn af DDT, sem hann hafði notað. Balkan-veggjalýs átu það sennilega eins og rjómaís. Þeg- ar fjórða ofboðskennda rann- sóknin bar engan árangur, varð hann gripinn örvæntingu, hann hafði þrifið öll rúmfötin úr rúm- inu og ráðizt á ný til atlögu við dýnuna með skordýraúðar- anum. Það var farið að morgna, þegar hann loksins sofnaði. Hann vaknaði aftur um níu- leytið. Meðan hann sat yfir morgunverðinum í kaffistofunni barst honum bréf frá höfuðs- manninum. Sir. Konan heitir madame Vassi- otis, og hana er að finna í vín- kjallaranum í Rue Monténégrine. Hún á von á yður síðdegis. Seg- ið, að monsieur Kliris hafi sent yður. Minnizt ekki á mig. Henni hefur verið sagt^ hvers þér ósk- ið, og hún kann að hafa svar fyrir yður. Verðið er 150 doll- arar, en þér skuluð ekki fá henni þá, né minnast á þá. Ég vil sjálfur fá að ganga úr skugga um, að þér séuð ánægð- ur, áður en þér borgið. Þegar við höfum talazt við í kvöld og þér hafið lýst yður ánægðan, skal ég sjá um, að hún fái pen- ingana gegnum monsieur Kliris. Bréfið var skrifað á venjulegt bréfsefni og óundirskrifað. Ge- orge sýndi ungfrú Kolin það ekki . . . Rue Monténégrine var brött, óþrifaleg hliðargata í fátækra- hverfi bæjarins. Vínkjallarinn var efst í brekkunni. George og ungfrú Kolin gengu niður fáein þrep og voru þá stödd í vistlegri stofu með vínámum meðfram veggjunum og þungt tréborð í miðju. Þarna var svalt og ilmur af gömlu víni lá í loftinu. í kjallaranum voru tvær manneskjur. Önnur þeirra, gam- all maður í bláum léreftsbux- um, sat á bekknum við borðið og drakk úr vínglasi. Hin var madame Vassiotis. Hún var ótrúlega feit. Hún sat á skemli öðrum megin við dyr innst í stofunni. Þegar þau gengu inn, stóð hún á fætur hægt og með erfiðismunum og kom fram í ljósið af einmana- legum olíulampanum á borðinu. Hún muldraði eitthvað í kveðjuskyni. Ungfrú Kolin svar- aði. George hafði gefið henni fyrirmæli varðandi samtalið, og hún eyddi ekki tímanum í að þýða upphafsorðin. Hann sá ma- dame Vassiotis kinka kolli af skilningi og senda gamla mann- inum þýðingarmikið augnaráð. Maðurinn flýtti sér að ljúka úr glasinu og fara. Hún hneigði höfuðið örlítið í átt til Georges og gekk á undan þeim inn í bakherbergi. Hér voru tyrkneskar ábreiður á veggjunum og legubekkur með flosáklæði og fáein völt hús- gögn frá Victoríutímabilinu. Honum datt í hug dyngja spá- konu í umferðacirkus. Það vant- aði aðeins kristalkúluna. Madame Vassiotis hellti í þrjú vínglös, lét sig síga niður á legubekkinn og bauð þeim sæti á stól. Er þau höfðu setzt, spennti hún greipar í gríðar- legri kjöltunni, horfði á þau og beið átekta. „Spyrjið hana, hvort hún hafi getað útvegað svar við spurn- ingu monsieur Kliris.“ Madame Vassiotis hlýddi al- vörugefin á þýðinguna og kink- aði kolli. „Hún segir,“ sagði ungfrú Kolin, „að hún hafi haft tæki- 32 FALKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.