Fálkinn - 23.05.1966, Síða 40
K
4
TIL HREINGERN-
INGA OG I UPP-
ÞVOTTINN,
Heildsölubyrgðir
KRISTJÁN Ó.
SFAGFJÖRÐ HF.
Simi 24120
PANTIÐ STIMPLANA HJA
FÉLAGSPRENTSMIÐJUNNIHE
SPITALASTIG10 v.OÐINSTORG
SIMI 11640
• Leigubílstjóri
Framhald af bls. 21
ekki farið til Þingvalla. ,Ég er
menningarmaður,' sagði hann að
skilnaði. ,Ég fyrirlít ykkur bíl-
stjórana sem hafið ekki skilning
á verðmætum sögunnar og list-
arinnar.'
„Þó finnst mér sorglegast að
sjá ungar og fallegar stúlkur
drukknar, og það verður því
miður æ algengara. Ég ber virð-
ingu fyrir ungri og fallegri
stúlku, og allar ferskar og sak-
lausar stúlkur eru í mínum aug-
um fallegar, en þær skilja ekki
að það er ekkert fínt eða flott
við að drekka sig fullan. Oft
keyri ég þær á skemmtistaðina
til að dansa á kvöldin. Þegar
þær fara að heiman eru þær svo
sætar og indælar, fallega klædd-
ar og prúðar, það má hvergi
sjást blettur eða hrukka, og hár-
ið má ekki hreyfast á þeim. En
það er nú eitthvað annað á
heimleiðinni — þá eru þær ekki
mikið að hugsa um fínheitin.
Úfnar og tjásulegar með synd-
andi augu, flissandi út í loftið,
bjóðandi hverjum manni blíðu
sína, pilsin flett upp, annar fót-
urinn á framsætisbakinu—það
er annað en skemmtilegt þegar
maður er orðinn gamall að sjá
þetta glæsilega unga fólk okk-
ar veltast um eins og ræksni,
öskrandi og gargandi, bölvandi
og- dauðadrukkið. Stúlkurnar
verða örar og lauslátar og hugsa
ekkert um afleiðingar gerða
sinna sem oft verða lausaleiks-
börn eða vanhugsuð hjónabönd
. . fólk þyrfti helzt að vera
með réttu ráði þegar það velur
sér maka, annars er ekki við
góðu að búast.
„Mér dettur í hug kona sem
einu sinni pantaði bíl og bað
mig að keyra eitthvað út úr
bænum með sig. Hún var ekki
áberandi drukkin, en hafði
flösku með sér og saup á öðru
hverju. Bráðhugguleg húsmóðir
sem átti ágætan mann og þrjú
efnileg börn, laglegasta kona.
Þegar við vorum komin eitt-
hvað suður fyrir Hafnarfjörð
bað hún mig að stöðva bílinn.
.Komdu með mér héx-na út í
hraun, og við skulum elskast/
sagði hún.
„Ég var að vísu yngri þá, en
samt hefði manneskjan áreiðan-
lega aldrei stungið upp á svona-
löguðu ódrukkin. Þegar ég
reyndi að koma vitinu fyrir
hana æstist hún um allan helm-
ing. .Finnst þér ég kannski ljót?‘
sagði hún. ,Af hverju viltu mig
ekki?‘ Og hún fór að fletta upp
um sig pilsinu. Ég svaraði, að
hún væri ljómandi lagleg kona,
en þetta tilheyrði ekki mínum
verkahring sem bílstjóra. ,Ertu
þá náttúrulaus, greyið?‘ sagði
hún hæðnislega. ,Þú ert bara
enginn karlmaður, þess vegna
læturðu svona'.
„Það tók mig langan tíma að
sansa hana, og þá skipaði hún
mér að keyra sig til manns sem
hún sagðist halda við þegar hún
færi á það. Hún var fokvond út
í mig, og ég varð þeirri stund
fegnastur þegar ég var laus við
hana. Þótt erfitt geti verið að
fást við drukkna karlmenn eru
þó drukknar konur hálfu verri.
Þær sleppa gersamlega taum-
haldi á sér og eru vísar til hvers
sem er.
„Hvaða kona myndi hegða sér
svona allsgáð? Brennivínið u.m-
breytir fólki og gerir það að
hálfgerðum djöflum. ,Ö1 er innri
maður', segir máltækið, en það
er ekki alltaf rétt, ,öl er annar
maður' mætti segja, og sá maður
er verri en persónan sjálf.
„Ég gæti tekið hvert dæmið
af öðru og haldið áfram allan
daginn. Og þó er allt öðruvísi
að lýsa svona hlutum fyrir öðr-
um eða sjá og reyna þá sjálfur.
Ég hef séð fólk hrynja niður
andlega og líkamlega af of-
drykkju, heimili leysast upp, og
börnin, vesalings litlu börnin
bíða þess kannski aldrei bætur.
Það er verið að tala um þessa
miklu taugaveiklun hjá ungling-
unum, en hver veit hvaða áhrif
það hefur á viðkvæmar barns-
sálir að horfa á foreldra sína
dauðadrukkna, jafnvel í slags-
Kæri Astró!
Ég er fædd 1950 og er í 3. bekk í gagnfræðaskóla. Mig langar
til að vita, hvort ég tek gagnfræðapróf. Ég er með strák, sem
ég er búin að vera með í 9 mánuði. Á ég eftir að giftast hon-
um? Hann er sjómaður. Verður hann það alltaf. Við erum bæði
þrjózk. Nú langar mig til að vita, hvort ég verð hamingjusöm.
Hvort ég giftist snemma og hvort ég eignast mörg börn.' Ég er
ekki heilsuhraust. Á það eftir að batna? Ég vona, að þú svarir
mér fljótt.
Með kærri kveðju og fyrirfram þökk.
Tóta.
Svar til Tótu:
Þú skalt endilega taka gagn-
fræðapróf. Þú munt sjá eftir því
síðar, ef þú hefur sleppt því
tækifæri. Ef þú ert eins metn-
aðargjörn og flestir ljónsmerk-
ingar, fellur þér ekki vel að
vera ekki sæmilega vel að þér.
Einnig vegna þess, að það er
mjög hagstætt tímabil framund-
an hjá þér, sem þú verður að
nota sem bezt, og maður notar
tímann vart betur en til að
læra. Þið eruð svo sannarlega
þrjózk bæði tvö, pilturinn, sem
þú minntist á og þú. Bæði vilja
ráða. Svona mundi það ávallt
verða, ef þið ættuð að búa sam-
an, sem ég býst ekki við að
verði, en það myndi verða hvor-
ugu ykkar til góðs. Það eru að
vísu viss tengsl á milli ykkar,
en það vegur ekki upp á móti
því sem er neikvætt. Þú munt
líka verða dálítið óstöðug í ásta-
málum og hann er mjög af-
brýðisamur og tilfinningaríkur.
Þið munuð hreint og beint ekki
geta komizt hjá því að vera sí-
fellt að rífast. Fremúr fáir
ljónsmerkingar telja sig ham-
ingjusama í hjónabandi. Kann-
ski vegna þess að þeir krefjast
of mikils af makanum og muna
ekki eftir því, að einnig þeir
þurfa eitthvað að leggja af
mörkum til að skapa þá ham-
ingju, sem þeir kjósa. Þú munt
þurfa töluvert fjárhagslegt og
félagslegt öryggi til að vera á-
nægð, en það er fyrst og fremst
þú sjálf, sem skapar þína eigin
hamingju. Eftir þeim tíma sem
þú gafst upp, muntu giftast
fremur seint, eftir því sem kall-
að er nú, eða eftir tvítugt, og
börnin verða ekki mörg, en þó
fer það einnig eftir því, hvernig
stjörnukort mannsins þíns verð-
ur, það getur breytt tölu barn-
anna. Ég held að síðastliðin tvö
ár hafi verið dálítið erfið fyrir
þig og þá kannski’einna helzt
heilsufarslega, en á árinu 1967
gæti orðið breyting til batn-
aðar.
40 FÁLKINM