Fréttablaðið - 03.10.2009, Qupperneq 2
2 3. október 2009 LAUGARDAGUR
FÓLK Ríflega 77 prósent fólks með
erlent ríkisfang á Íslandi teljast til
tveggja áhættuminnstu lánshæf-
isflokkanna, A eða B. Hjá íslensk-
um ríkisborgurum er sambærilegt
hlutfall 55 prósent. Þá eru erlend-
ir ríkisborgarar í þessum flokki
yngri að meðaltali en íslenskir, 36
ára á móti 55. Þá eru erlendir rík-
isborgarar síður á vanskilaskrá.
Það er fyrirtækið Creditinfo sem
tekur þessar tölur saman. Rakel
Sveinsdóttir forstjóri segir þetta
skýrast af tvennu. Annars vegar
séu erlendir ríkisborgarar minna
skuldsettir en annar almenningur.
Þá beri þessi hópur annað viðhorf
til lántöku almennt, hafi annan
bakgrunn þegar að lánum kemur.
Lántaka þeirra byggi meira á
eignastöðu lántakandans en hér
hefur þekkst og meiri varkárni
ríki í þessum efnum. Erlendir rík-
isborgarar teljast því að mestu
mjög skilvísir greiðendur.
Rakel segir fólk erlendis víðast
hvar mun betur upplýst um sína
eigin greiðslugetu og stöðu gagn-
vart lánveitandanum. Þar sé fólk
upplýst um eigið lánshæfismat og
þannig umhverfi verði að koma á
hér á landi.
„Hér á landi var horft til
greiðslugetunnar þá stundina sem
lánið var tekið. Þannig sáum við 18
ára ungmenni með bílalán og 500
þúsund króna yfirdrátt. Það sér
maður ekki erlendis, því þar verð-
urðu að hafa byggt upp viðskipta-
sögu við bankann áður en þú færð
lán og sú saga hefur áhrif á lána-
kjörin. Þú getur verið með litla
veltu en staðið í skilum og fengið
betri lánakjör.“
Rakel segir
ekki ólíklegt að
erlendir ríkis-
borgarar hafi
þau viðhorf til
lána sem þekk-
ist erlendis og
það skýri betri
stöðu þeirra hér
á landi. Það sé í
raun mun heil-
brigðara viðhorf
til lántöku.
Á Íslandi eru 20.312 með erlent
ríkisfang, þar af 3.090 börn undir
18 ára aldri. Pólverjar eru lang-
flestir hér, tæplega 4.000, þá Lit-
háar, um 1.400, og loks Þjóðverjar,
en þeir eru ríflega 1.000 hér.
Stærstur hluti erlendra ríkis-
borgara býr á höfuðborgarsvæð-
inu, ríflega 15.000. Sem hlutfall af
íbúum hvers landsvæðis eru hins
vegar flestir erlendir ríkisborg-
arar á Reykjanesi, 10,1 prósent af
íbúafjöldanum. Á Vestfjörðum eru
erlendir ríkisborgarar 9,7 prósent
íbúafjöldans. Hlutfallslega fæstir
eru þeir á Norðurlandi vestra, 3,6
prósent. kolbeinn@frettabladid.is
Innflytjendur með
hærra lánshæfismat
Fólk með erlent ríkisfang er með betra lánshæfismat en íslenskir ríkisborgarar
og eru líklegri til að standa í skilum. Hafa mun heilbrigðara viðhorf til lántöku,
segir forstjóri Creditinfo. Hér eru ríflega 20 þúsund erlendir ríkisborgarar.
FÓLK Erlendir ríkisborgarar standa betur í skilum af lánum sínum en íslenskir. Þá eru
þeir með hærra lánshæfismat. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
RAKEL
SVEINSDÓTTIR
KAUPMANNAHÖFN, AP Barack
Obama Bandaríkjaforseti brá
sér til Kaupmannahafnar í gær
ásamt eiginkonu sinni til að
freista þess að sannfæra alþjóð-
legu Ólympíunefndina um ágæti
þess að halda Ólympíuleikana
árið 2016 í Chicago.
Síðar í gær kom svo úrskurður
Ólympíunefndarinnar. Leikarnir
verða ekki haldnir í Chicago, því
Rio de Janeiro varð fyrir valinu.
Ákvörðun nefndarinnar þykir
mikill ósigur fyrir Obama, sem
greinilega hafði lagt mikla
áherslu á að Bandaríkin hrepptu
hnossið. - gb
Obama í Kaupmannahöfn:
Hafði ekki er-
indi sem erfiði
Hjörtur, voru framkvæmdirnar
algjör langloka?
„Já, og þær voru miklu lengri en við
áttum von á.“
Hjörtur Aðalsteinsson, eigandi Super Sub
við Nýbýlaveg, hefur boðist til að greiða
Kópavogsbæ langlokur í stað fasteigna-
gjalda. Hann er ósáttur við það hversu
langan tíma endurbætur á Nýbýlavegin-
um tóku.
UMHVERFISMÁL Svandís Svavars-
dóttir umhverfisráðherra hvetur
forsvarsmenn Samtaka atvinnu-
lífsins (SA) til að sýna yfirvegun í
viðbrögðum við úrskurði hennar.
Líkt og Fréttablaðið greindi frá í
gær telja SA ráðherra hafa fellt
ólögmætan úrskurð þegar hann
felldi úr gildi ákvörðun Skipulags-
stofnunar um að ekki skyldi fara
fram sameiginlegt mat á umhverf-
isáhrifum á framkvæmdum tengd-
um álveri í Helguvík.
„Það þarf að skoða þessi mál
ofan í kjölinn og það er mikilvægt
að vinna þessa vinnu af yfirveg-
un í hverju skrefi. Við megum ekki
falla í þá freistni í skjóli kreppunn-
ar að gefa afslátt af vinnubrögðum.
Þarna eru stórir og ríkir hagsmun-
ir til langs tíma,“ segir Svandís.
SA kvartaði yfir því að hafa ekki
fengið andmælarétt og farið hafi
verið fram yfir tímafresti. Svandís
segir það rétt varðandi tímafrest-
ina, en engin dæmi séu um að það
hafi fellt úrskurð úr gildi nema um
nokkur ár sé að ræða. SA sé hins
vegar ekki aðili að málinu og eigi
því ekki andmælarétt.
Svandís segir menn leggja mis-
munandi skilning í stöðugleika-
sáttmálann. Hún telji ljóst að hún
eigi ekki að gefa afslátt af sinni
stjórnsýslu. Vilhjálmur Egilsson
hafi talað eins og Þjórsárvirkjan-
ir séu forsenda sáttmálans. Enginn
ráðherra í ríkisstjórn deili þeirri
skoðun. - kóp
Umhverfisráðherra segir Samtök atvinnulífsins verða að sýna yfirvegun:
Gef ekki afslátt af stjórnsýslu
UMHVERFISRÁÐHERRA Segir að ekki
megi falla í þá freistni að gefa afslátt af
vinnubrögðum í skjóli kreppunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
NEYÐ Björgunarmenn leituðu í gær
að fólki sem hafði grafist undir þegar
skriðurnar féllu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÍTALÍA, AP Í það minnsta tuttugu
létust í aurskriðum sem féllu í
kjölfar mikilla aurskriðna í borg-
inni Messina á Sikiley í gær.
Flytja þurfti um það bil 40 manns
á spítala, og um tuttugu er enn
saknað. Hundruð þurftu að flýja
heimili sín vegna hamfaranna.
Björgunarmenn með hunda
leituðu í gær í húsarústum í
úthverfum Messina og nærliggj-
andi þorpum. Björgunaraðgerð-
ir gengu illa þar sem vegir höfðu
víða farið í sundur. - bj
Flóð og aurskriður á Sikiley:
Í það minnsta
tuttugu látnir
KÖNNUN Stuðningur við ríkisstjórnina mælist 47 pró-
sent í nýjum þjóðarpúlsi Capacent Gallup. Fram-
sóknarflokkurinn mælist nú með hæsta fylgi sem
mælst hefur frá því í júlí 2003, að því er fram kom í
kvöldfréttum RÚV.
Litlar breytingar eru á fylgi stærstu flokkanna.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 29 prósenta fylgi,
Samfylkingin með 26 prósent og 22 prósent segjast
myndu kjósa Vinstri græn yrði gengið til kosninga
nú.
Alls sögðust 18 prósent þeirra sem þátt tóku
í könnuninni styðja Framsóknarflokkinn. Fylgi
Hreyfingarinnar mælist hins vegar um helmingur
af fylgi Borgarahreyfingarinnar áður, tæplega þrjú
prósent.
Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra fékk bestu
útkomuna þegar spurt var um ánægju með ráð-
herra. Tæplega helmingur aðspurðra sagðist
ánægður með hennar störf. Steingrímur J. Sigfús-
son fjármálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra og Gylfi Magnússon efnahags- og við-
skiptaráðherra mælast öll með rúmlega 40 prósent.
Helmingi færri sögðust ánægðir með Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra nú en í könnun í
febrúar, alls 30 prósent. Aðeins tólf til þrettán pró-
sent sögðust ánægð með störf Jóns Bjarnasonar
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Kristjáns
L. Möller samgönguráðherra. - bj
Fylgi Framsóknarflokks ekki mælst hærra í þjóðarpúlsi Gallup síðan í júlí 2003:
Um 47% styðja ríkisstjórnina
ÁNÆGJA Mest ánægja er með störf Rögnu Árnadóttur
dómsmálaráðherra. Tæpur þriðjungur er ánægður með störf
forsætisráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAMGÖNGUR Nýr heilsársveg-
ur um Arnkötludal var opnaður
fyrir umferð í gær. Að vetrar-
lagi mun vegurinn stytta leiðina
milli Hólmavíkur og Reykjavíkur
um 40 kílómetra og er nú bundið
slitlag á allri leiðinni, sem er um
230 kílómetrar. Vegurinn stytt-
ir að sama skapi leiðir að sunnan
vestur í Ísafjarðardjúp. Vegurinn
um Arnkötludal liggur úr Stein-
grímsfirði að norðan í Króksfjörð
að sunnan.
Skafrenningur var um það leyti
sem vegurinn var opnaður í gær.
Víða var hálka norðanlands í gær
og ófært eða þungfært um heið-
arvegi. - gar
Þjóðleið stytt um 40 km:
Umferð hleypt
á Arnkötludal
VÍGSLA Í SÓLLANDI Duftker Ásbjörns
Björnssonar jarðsett. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓLK Nýr duftgarður var vígður í
Sóllandi við Fossvogskirkjugarð
í gær með greftrun Ásbjörns
Björnssonar, fyrrverandi for-
stjóra Kikjugarðs Reykjavík-
urprófastsdæma. Ásbjörn er nú
vökumaður garðsins. Samkvæmt
gamalli trú er vökumaður hvers
kirkjugarðs sá sem þar er fyrst
jarðsettur og verður eins konar
gæslumaður garðsins.
Það var Karl Sigurbjörnsson,
biskup Íslands, sem vígði garð-
inn. Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, forseti borgarstjórnar, var
meðal þeirra sem viðstaddir voru
athöfnina. Garðurinn tekur yfir
30 þúsund duftker og er ætlað að
endast fram á næstu öld. - gar
Nýi duftgarðurinn vígður:
Vökumaðurinn
lagður til hvílu
FÆREYJAR Ósætti er í landstjórn
Færeyja um fjárlög ársins.
Jørgen Niclasen, formaður Fólk-
aflokksins, sagði við færeyska
ríkissjónvarpið að stjórnin gæti
sprungið.
Fólkaflokkurinn sakar Jóann-
es Eidesgaard, formann Jafnað-
arflokksins og fjármálaráðherra,
um að hafa leitað eftir stuðningi
stjórnarandstöðunnar við lögin,
líklega til að þurfa ekki að semja
við Fólkaflokkinn. Þessu neitar
Jóannes. - kóþ
Færeysk stjórnmál í uppnámi:
Slitum hótað
SPURNING DAGSINS