Fréttablaðið - 03.10.2009, Blaðsíða 4
4 3. október 2009 LAUGARDAGUR
SAMFÉLAGSMÁL Mikið hefur verið
um tínslu ofskynjunarsveppa í höf-
uðborginni upp á síðkastið. Svepp-
irnir innihalda ofskynjunarefni
sem er á bannlista, og því er í raun
bannað með lögum að tína þá, eiga
og neyta – hvað þá selja.
Fréttablaðinu hafa borist ábend-
ingar um að mjög mikið sé um það
þessa dagana að svartklæddir menn
með hulin andlit sitji löngum stund-
um á hækjum sér á umferðareyj-
um og í vegköntum og tíni sveppi
í hundraðavís í poka. Þetta stundi
fólk jafnvel um hábjartan dag.
Neysla ofskynjunarsveppa sem
spretta á haustin innan borgar-
markanna hefur þekkst á Íslandi
árum saman, að sögn Þórarins
Tyrfingssonar, yfirlæknis á Vogi.
Þetta sé árlegur viðburður og sér-
staklega sé algengt að kannabis-
neytendur sæki í skynáhrifin sem
sveppirnir veita.
Sveppirnir innihalda psilocybin
eða psilocin, ólögleg ofskynjunar-
efni, sem hafa sams konar áhrif og
LSD. „Við höfum fengið til okkar
fólk sem er algjörlega sturlað eftir
svona sveppaát og áttar sig hvorki
á stað né stund,“ segir Þórarinn.
Sveppirnir valdi ekki fíkn en þó sé
algengt að ungt fólk sem kemur inn
á Vog hafi prófað þá.
Þórarinn segir ýmsar hættur
geta fylgt neyslu þeirra. „Í fyrsta
lagi eru til eitraðir sveppir sem
geta valdið skemmdum á líffær-
um og það getur verið erfitt að
greina þá frá öðrum,“ segir hann.
Alltaf deyi þónokkuð margir í Evr-
ópu vegna sveppaeitrunar á ári
hverju, þótt ekki séu dæmi þess
hér á landi.
Þá sé hægt að slasast undir áhrif-
um eða gera eitthvað sem ekki verð-
ur aftur tekið. Þriðja hættan sé sú
að víman ýti undir undirliggjandi
geðsjúkdóma.
Sögusagnir hafa lengið verið uppi
um að sveppir sem hafi dregið í sig
mikla umferðarmengun veiti sterk-
ari vímuáhrif en aðrir. Þetta segir
Jakob Kristinsson, dósent í eitur-
efnafræði við Háskóla Íslands, þó
tæpast geta staðist.
Karl Steinar Valsson, yfirmað-
ur fíkniefnadeildar lögreglunn-
ar, segir að mál tengd sveppum
hafi lítið sem ekkert komið inn
á borð deildarinnar, enda ekkert
sem bendi til þess að um skipu-
lögð eða stórfelld viðskipti með þá
sé að ræða. „Þetta hefur ekki verið
framarlega í forgangsröðinni hjá
okkur,“ segir hann. Vel geti þó
verið að skoða þurfi þennan kima
fíkniefnaheimsins betur.
Geir Jón Þórisson yfirlögreglu-
þjónn segir þó að sveppir séu reglu-
lega gerðir upptækir og lögreglan
reyni eftir föngum að stöðva fólk
við tínslu þeirra.
stigur@frettabladid.is
Tína ofskynjunarsveppi með
hulin andlit á almannafæri
Ofskynjunarsveppir sem vaxa í borginni innihalda eiturefni á bannlista og því er ólöglegt að tína þá og neyta
þeirra. „Við höfum fengið til okkar fólk sem er alveg sturlað eftir svona sveppaát,“ segir yfirlæknir á Vogi.
TÍNT UM MIÐJAN DAG Þessi maður hafði safnað dágóðu magni af sveppum í poka
þegar ljósmyndari Fréttablaðsins átti leið hjá í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Það skal tekið fram vegna myndbirt-
ingar með frétt blaðsins í gær um
lögregluníðing sem rauf endurkomu-
bann, að veitingastaðurinn Monte
Carlo tengist manninum eða árás
hans á tvo lögreglumenn, ekki með
neinum hætti.
ÁRÉTTING
SLYS Einn maður slasaðist lítil-
lega þegar björgunarskip Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar,
Hannes Þ. Hafstein frá Suður-
nesjum, fékk á sig brotsjó í fyrri-
nótt. Harðbotna björgunarbát-
ur slitnaði einnig frá skipinu og
hefur ekki komið í leitirnar.
Skipið var á leiðinni á lands-
æfingu Landsbjargar á sjó, sem
haldin verður fyrir utan Grund-
arfjörð í dag. Fimm skipverjar
voru um borð þegar brotið kom
á skipið með þeim afleiðingum
að skipstjóri björgunarskips-
ins kastaðist til og rak höfuð í þil
og þurfti að sauma nokkur spor.
Hann tekur engu síður þátt í
æfingunni í dag. - bs
Björgunarskip í brotsjó:
Skipstjóri slas-
aðist lítillega
HANNES Þ. HAFSTEIN Skipstjórinn rak
höfuðið í þil þegar brotið kom á skipið.
Auður Capital veitir fjárfestingaþjónustu
með áherslu á gagnsæi og áhættumeðvitund.
Við getum séð um
séreignarsparnaðinn þinn
Velkomin á opna kynningu til okkar
mánudaginn 5. okt. kl. 17:15,
Borgartúni 29, 3. hæð.
Auður fyrir þig
Eignastýring - Fjárfestingar - Fyrirtækjaráðgjöf - Séreignarsparnaður
audur.is - 585 6500
FRAKKLAND, AP Atvinnuleysi fer
vaxandi innan aðildarlanda Efna-
hags- og framfarastofnunarinn-
ar (OECD), samkvæmt samantekt
stofnunarinnar á atvinnuleysi í
júlí, sem birt var í gær.
Atvinnuleysið var mest á Spáni,
17,6 prósent, en minnst í Hol-
landi, 3,2 prósent. Á Íslandi var
atvinnuleysið í júlí 8,0 prósent, en
7,7 prósent í ágúst. Atvinnuleysið
var svipað í Þýskalandi, 7,7 pró-
sent, og Bretlandi, 7,9 prósent.
Á evrusvæðinu mældist
atvinnuleysi að meðaltali 9,6 pró-
sent. Í Kína sýna opinberar tölur
4,3 prósenta atvinnuleysi, en rétt
tala er trúlega tvöfalt hærri. - bj
Mælingar aðildarlanda OECD:
Atvinnuleysi í
heiminum vex
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
-12
26°
16°
21°
15°
13°
16°
18°
18°
14°
15°
28°
17°
22°
32°
6°
19°
26°
11°
1
Á MORGUN
3-8 m/s
MÁNUDAGUR
5-10 m/s
5
5
6
6
6
8
10
11
6
10
10
3
0
1 1
3
1
4
6
5
-4
0
-1
1
41 44
1
BEST SYÐRA
Þessa helgina eru
ágætar veðurhorfur,
sérstaklega sunn-
an til. Eru horfur á
norðlægum áttum,
yfi rleitt hægum en
þó núna fyrir hádegi
verður strekkingur
austast á landinu.Él
verða á Vestfjörðum
og norðanlands og
austan en þurrt og
bjart veður syðra. Víða
verður næturfrost en
að deginum verður
hitinn á bilinu 0-6
stig, mildast sunnan
og suðaustan til.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
FÓLK Aðdáendur EVE Online-fjölþátt-
tökutölvuleiksins fylla Laugardals-
höllina þessa dagana, en þar stendur
nú yfir árleg ráðstefna aðdáenda leiks-
ins. Rúmlega þúsund manns tóku í dag
þátt í ýmsum viðburðum, segir Diljá
Ámundadóttir, framleiðandi hjá CCP
sem hannaði og selur tölvuleikinn.
Lokahnykkurinn á þessari upp-
skeruhátíð verður í kvöld, þegar fram-
úrstefnulegt lokapartí verður haldið
í Höllinni. Laugardalshöll allri hefur
verið gjörbreytt að innan, og lítur nú
út eins og geimstöð úr tölvuleiknum,
segir Diljá.
Alls komu á milli sjö og átta hundruð
erlendir gestir á hátíðina, auk íslenskra
aðdáenda leiksins. - bj
Rúmlega þúsund manns taka þátt í ráðstefnu aðdáenda EVE Online-tölvuleiksins:
Framúrstefnulegt lokapartí í kvöld
LEIKIÐ Tölvuleikurinn gerist í sýndarveruleika í geimnum og þessir leikmenn því
væntanlega mörg ljósár í burtu í huganum, þótt líkaminn sæti við tölvuskjá í
Laugardalshöllinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Tekjur RÚV lækka um 10%
Greiðslur ríkisins til RÚV munu lækka
um 357 milljarða, eða 10 prósent, ef
fjárlagafrumvarpið verður að lögum
óbreytt. Áformað er að innheimta
3.575 milljónir króna í útvarpsgjald,
en RÚV fær til sín 3.218 milljónir
króna, segir í tilkynningu frá RÚV.
ALÞINGI
GENGIÐ 02.10.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
234,4279
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
124,94 125,54
198,07 199,03
181,64 182,66
24,395 24,537
21,445 21,571
17,733 17,837
1,3971 1,4053
196,95 198,13
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Sveppirnir sem um ræðir kallast trjónupeðlur.
Trjónupeðlan er lítill hattsveppur, nokkrir senti-
metrar að stærð, og vex víða í ágúst, september
og allt fram í október. Algengt er að hún sjáist á
umferðareyjum og öðrum grasbölum í þéttbýli.
Til að ná fram vímuáhrifunum er hægt að neyta
þeirra ferskra, þurrka þá fyrst eða sjóða úr þeim te.
Einnig þekkist að þeir séu reyktir með kannabis-
efnum.
Að því er segir í samantekt Jóhannesar Berg-
sveinssonar yfirlæknis eru skynvilluáhrif sveppanna svip-
uð og áhrifin af LSD, en eru þó vægari og verka skemur.
Áhrifin koma fram um 20 til 30 mínútum eftir neyslu,
þeirra á meðal roði í andliti, vöðvaslökun, hraðari
hjartsláttur, útvíkkun sjáaldra, munnþurrkur og ógleði.
Skyntruflanir koma meðal annars fram í miklum
afbökunum á rúm- og tímaskyni og geðslagsbreyt-
ingum. Stórir skammtar geta framkallað ofsjónir og
afbakanir á snerti- og sársaukaskyni.
Afbakanirnar geta verið skemmtilegar og þægi-
legar fyrir neytandann, en geta líka verið mjög ógn-
vekjandi, valdið ofsahræðslu og jafnvel framkallað
bráðasturlun. Andlit vina, ættingja og ókunnugra
geta sýnst breyta um lit eða lögun, eða skyndilega
elst ógnvænlega, að því er Jóhannes fullyrðir í sam-
antektinni. Þetta geti gerst meðan á neyslu sveppanna
stendur eða eftir á og staðið yfir lengi.
Bráðavíman varir í um það bil sex klukkustundir og
eftir hana kvarta neytendur oft um lasleika, mjög mikla
þreytu og djúpt þunglyndi.
AFBAKA RÚM- OG TÍMASKYN