Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.10.2009, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 03.10.2009, Qupperneq 8
8 3. október 2009 LAUGARDAGUR 1. Hvað heitir forsætisráðherra Finnlands? 2. Upp á hvað héldu Kínverjar í vikunni með miklum bravúr? 3. Hver er þjálfari Fylkis í efstu deild karla í knattspyrnu? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 74 INDÓNESÍA, AP Tveimur var bjargað úr rústum húsa á Indónesíu í gær, nærri tveimur sólarhringum eftir að þær grófust undir. Önnur þeirra var nægilega hress til að bjóða fram fimm fingur í kveðjuskyni á móti hönd björgunarmanns meðan hún var borin burt. Björgunarfólk vann í kappi við tímann, en litlar vonir þykja til að fleiri finnist á lífi úr því sem komið er. Óttast er að þrjú þúsund manns eigi eftir að finnast látnir, en sá fjöldi bætist þá við þau rúmlega 700 lík sem nú þegar hafa fundist á vestanverðri eyjunni Súmötru. Rotnunarlyktin var stæk þegar tugir líka voru lagðir í röð á stétt- ar borgarinnar Padang, þar sem tjónið varð mest. Erfitt hefur reynst að veita fólki nauðsynlega læknishjálp og víða hafa ekki einu sinni björgunar- menn komist á staðinn. Ástæða var þó til að fagna þegar konurnar tvær fundust á lífi í rúst- um skólabyggingar í Padang. Ratna Kurnisari Virgo er 19 ára ensku- nemi en hin er kennari í málaskól- anum, Suci Revika Wulan Sari. Sari hafði legið innan um lík nemenda sinna í nærri tvo sólar- hringa, en virtist ekki hafa orðið mikið meint af. „Hún var með meðvitund, en fætur hennar og fingur voru bólgn- ir vegna þess að hún var undir þrýstingi,“ sagði skólastjóri henn- ar, Teresia Lianawaty. Jarðskjálfti, sem mældist 7,6 stig, varð á miðvikudag skammt frá Padang, sem er 900 þúsund manna borg á vestanverðri Súm- ötru. Á fimmtudagsmorgun varð síðan annar stór skjálfti, sem mældist 6,7 stig. gudsteinn@frettabladid.is Bjargað úr rústum eftir tvo sólarhringa Óttast er að þrjú þúsund manns kunni enn að vera grafnir í rústunum eftir jarðskjálftann á Indónesíu á miðvikudag. Ólíklegt er að neinn þeirra finnist á lífi. Nú þegar hafa meira en 700 lík fundist. Björgunarfólk í kappi við tímann. ÍRLAND, AP Írar gengu í gær að kjör- borðinu til þess að greiða atkvæði um Lissabon-sáttmála Evrópusam- bandsins. Talning atkvæða hefst í dag og úrslit verða ekki ljós fyrr en seinni partinn, en allar líkur þóttu á því að sáttmálinn yrði samþykkt- ur. Töluverð spenna var í landinu vegna kosninganna, en kosninga- þátttakan virtist þó ætla að verða dræm. Allt benti til þess að Írar hafi samþykkt Lissabon-sáttmálann í þessari umferð. Þar með tekur nýtt skipulag við um áramótin með sér- stökum utanríkisráðherra og for- seta framkvæmdastjórnarinnar. Hafi úrslitin hins vegar orðið þau, að Írar hafi fellt sáttmál- ann, þá er Evrópusambandið aftur komið nánast á byrjunarreit. Lissa- bon-sáttmálinn verður að engu og varla vilji til að semja um nýjan í bráð. Styðjast þarf við gamla sátt- málann frá 1992 sem er óhentug- ur nú þegar aðildarríkjunum hefur fjölgað í 27. Enn eiga þó bæði Pólverjar og Tékkar eftir að staðfesta samn- inginn, en til þess þarf aðeins und- irritun forseta ríkjanna. Þeir eru báðir andvígir sambandinu og Vac- lav Klaus Tékklandsforseti mun vafalaust reyna að draga í lengstu lög að undirrita hann. - gb Írar kusu öðru sinni um Lissabon-sáttmála Evrópusambandsins í gær: Örlög sáttmálans eru ráðin KOSIÐ Á ÍRLANDI Írar höfnuðu Lissabon- samningnum á síðasta ári, en breyttur sáttmáli var borinn undir þá í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP HEILBRIGÐISMÁL Ákveðið hefur verið að einkasjúkrahús sem fyr- irtækið PrimaCare hyggst reisa hér á landi rísi við Tungumela í Mosfellsbæ. Skrifað var undir yfirlýsingu þess efnis í gær. Spítalinn mun sérhæfa sig í hnjá- og mjaðmaliðaaðgerðum fyrir útlendinga, og verður hótel tengt spítalanum. Áætlanir Prim- aCare gera ráð fyrir því að fyrstu sjúklingarnir komi á spítalann í árslok 2011. Reiknað er með að kostnaður við uppbygginguna kosti 13 til 20 milljarða króna. Milli 600 og 1.000 störf munu skapast vegna sjúkrahússins í bæjarfélaginu. - bj Einkaspítali rís í Mosfellsbæ: Starfsemi hefst í árslok 2011 DÓMSMÁL Tveir gjaldþrota útrásarvík- ingar, Björgólfur Guðmundsson og Magnús Þorsteinsson, hafa verið krafð- ir um hundruð þúsunda króna máls- kostnaðartryggingu vegna meiðyrða- máls þeirra á hendur fréttastofu Stöðvar 2. Björgólfur og Magnús stefndu báðir Gunnar Erni Jónssyni, fréttamanninum sem fullyrti í fréttum Stöðvar 2 að þeir hefðu staðið að miklum fjármagns- flutningum úr landi dagana eftir hrun. Björgólfur stefndi einn- ig Óskari Hrafni Þorvaldssyni fréttastjóra fyrir umfjöllun hans um fréttina á Bylgjunni. Báðir kröfðust einnar milljónar króna í bætur. Í ljósi þess að bú Björgólfs og Magnúsar hafa bæði verið tekin til gjaldþrotaskipta fóru Óskar og Gunnar fram á það við héraðsdóm að þeim yrði gert að reiða fram tryggingu fyrir því að þeir gætu greitt máls- kostnað, ef svo færi að hann félli að lokum á þá sjálfa. Á þá kröfu var fallist. Magnús þarf að reiða fram 700 þúsund krónur og Björgólfur 1,4 milljónir, 700 þús- und fyrir hvorn sem hann stefnir. - sh Lagerinn er úr þrotabúi brúðarkjólaleigu að mestu karlmanna- föt, einnig nokkrir kjólar og sitthvað fl eira. Aðeins er tekið við tilboðum í lagerinn í heild sinni. Öllum tilboðum verður svarað. Skiptastjóri ákveður hverju eða hvort einhverju tilboðanna verður tekið, aðstoðarmaður hans svarar fyrirspurnum í síma 892-0125 (Gunnar) eða með tölvupósti go@fgo.is TIL SÖLU FATALAGER. Skráning er í fullum gangi. Upplýsingar á heimasíðu félagsins: www.sidmennt.is og í símum 567 7752, 557 3734 eða 553 0877. Skráning í sömu símum eða á eyðublaði á heimasíðunni. Boðið verður upp á helgarnámskeið, ætlað landsbyggðarfólki. Það er dýrmætt fyrir unglinga að eiga val BORGARALEG FERMING 2010 BELGÍA, AP Bjartsýni ríkir í við- ræðum fulltrúa Evrópusam- bandsins (ESB) við Króatíu, eftir viðræður í gær. Vonast stjórnvöld í Króatíu eftir því að viðræðum geti lokið um mitt næsta ár. Mestu munar um að hreyf- ing virðist komin á viðræður við Slóveníu vegna landamæradeilu þjóðanna sem staðið hefur í átján ár. Deilan hefur staðið í vegi fyrir ESB-aðild Króatíu. Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, leiðir viðræður ESB við Króatíu. Hann varaði í gær við of mikilli bjartsýni, þó að vel hafi gengið í gær, og sagði ýmis mál enn óútkljáð. - bj Bjartsýni í viðræðum við ESB: Viðræður taki hálft ár í viðbót Björgólfur Guðmundsson og Magnús Þorsteinsson eru gjaldþrota í málaferlum: Gert að reiða fram tryggingu MAGNÚS ÞORSTEINSSON BJÖRGÓLFUR GUÐMUNDSSON BJARGAÐ ÚR RÚSTUNUM Tveimur var bjargað úr rústum húsa á Indónesíu í gær. Hér sjást björgunarmenn koma stúlkunni Ratna Kurnia Sari til bjargar en hún grófst undir byggingu í borginni Padang. NORDICPHOTOS/AFP DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað- fest úrskurð héraðsdóms þess efnis að karlmaður sem er í endur- komubanni vegna árásar á tvo lög- reglumenn skuli sæta gæsluvarð- haldi til 14. október. Maðurinn fannst fyrir tilviljun í vikunni. Sjálfur kveðst hann hafa dvalið hér síðan í apríl. Lögregla hefði leyft sér að koma inn í land- ið. Í rökstuðningi með kröfu um gæsluvarðhald segir lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins að hugs- anleg mistök einstakra löggæslu- manna við að heimila honum komu hingað til lands breyta ekki stöð- unni hvað varðar gæsluvarðhalds- kröfuna. Lögregluníðingur í gæslu: Kvaðst hafa leyfi lögreglu VEISTU SVARIÐ?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.