Fréttablaðið - 03.10.2009, Síða 10
10 3. október 2009 LAUGARDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL „Ef þessi krafa um
niðurskurð á rekstrarfjármagni
spítalans gengur eftir mun hún
gera það að verkum að segja þarf
upp hundruðum starfsmanna og
minnka þjónustuna.“
Þetta segir Björn Zöega, for-
stjóri Landspítalans, um fjárlaga-
frumvarp fyrir árið 2010. Þar er
Landspítalanum gert að skera
niður um samtals 3,2 milljarða á
næsta ári, eða um níu prósent af
því sem kostar að reka hann. Í ár
var honum gert að spara 2,8 millj-
arða króna, eða sem nemur 8,4 pró-
sentum af rekstrarfjármagni
„Ekki hefur verið útfært hjá
okkur hvernig við minnkum þjón-
ustuna,“ segir Björn. „Eins og fyrr
verður reynt að skerða öryggi
sjúklinga og bráðastarfsemina
eins lítið og hægt er. En það munu
allir finna fyrir þessu með einum
eða öðrum hætti. Það er ekki hægt
að gera þetta öðruvísi en með upp-
sögnum úr öllum starfshópum spít-
alans.“
Björn bendir á að ekki hafi þurft
að segja upp nema örfáum starfs-
mönnum á árinu með því að grípa
til ráðstafana eins og að breyta
vinnuskipulagi, lækka laun og
breyta öllu sem hægt var að breyta
án þess að það leiddi til uppsagna
starfsfólks. Með því hafi náðst að
stærstum hluta upp í sparnaðar-
kröfu ársins.
„Uppsagnir eru því næsta skref
þegar ekki verður hagrætt leng-
ur,“ segir Björn. Á Landspítala
starfa um 5.000 starfsmenn. Ef níu
prósenta sparnaðarkrafa næsta
árs fælist í uppsögnum myndi það
þýða uppsagnir 450 starfsmanna.
„Ég vissi að það þyrfti að spara
ákveðna tölu í heilbrigðiskerfinu,“
segir Björn enn fremur. „En ég
hefði vonast til þess að það yrðu
frekari vísbendingar um endur-
skipulagningu þess í frumvarpinu
og verkaskiptingu milli staða. Suð-
vesturlandið er langstærsti hlutinn
af þessu og ekki neitt í fjárlögum
sem bendir til endurskipulagning-
ar þar. Landspítalinn er öryggis-
net landsmanna. Ef enginn annar
getur eða er með opið þá er það
Landspítalinn sem tekur við. Við
verðum alltaf að hafa opið fyrir
allar sérgreinar. Ég taldi satt að
segja að það yrði tekið tillit til
þess við gerð fjárlaga hvað Land-
spítalinn er viðkvæmur fyrir ytri
aðstæðum, svo sem veikri stöðu
krónunnar, þar sem svo mikið er
keypt af lyfjum og rekstrarvörum
beint frá útlöndum.“
jss@frettabldid.is
Hátt í fimm
hundruð missa
vinnuna á LSH
Uppsagnir hundraða starfsmanna á Landspítalan-
um og skerðing á þjónustu blasa við ef frumvarp til
fjárlaga fyrir næsta ár nær fram að ganga.
HÁ SPARNAÐARKRAFA Landspítalanum er gert að skera niður um samtals 3,2 millj-
arða á næsta ári, um níu prósent af því sem kostar að reka hann á ársgrundvelli.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
APAR Í KÖLN Tenja er aðeins tveggja
mánaða og hjúfrar sig þarna að móður
sinni í dýragarði í borginni Köln í
Þýskalandi. NORDICPHOTOS/AFP
GRIKKLAND, AP Flest bendir nú til
að stjórn Costas Karamanlis, for-
sætisráðherra Grikklands og for-
manns grískra sósíalista, falli í
þingkosningum sem fara fram í
landinu í dag.
Karamanlis ákvað að boða til
kosninga á miðju kjörtímabili til
að freista þess að ná endurkjöri.
Talið er líklegt að óánægja kjós-
enda vegna hneykslismála sem
upp hafa komið, sem og bágbor-
ins efnahags landsins, leiði til
þess að stjórnin missi meirihluta.
Kannanir benda til þess að
flokkur George Papandreou,
fyrrverandi utanríkisráðherra,
sigri í kosningunum. - bj
Kosningar í Grikklandi í dag:
Búist við að
stjórnin falli
ATVINNUMÁL Fjórar hópuppsagn-
ir voru tilkynntar til Vinnumála-
stofnunar í september. Alls misstu
ríflega 110 manns vinnuna í þeim
uppsögnum.
Stærsta hópuppsögnin var hjá
Árvakri, útgáfufélagi Morgun-
blaðsins. Þar var 40 manns sagt
upp störfum.
Sú næststærsta var hjá Jarðbor-
unum, þar sem 30 manns misstu
vinnuna.
Um tuttugu manns var sagt
upp hjá fyrirtæki í byggingar-
iðnaðinum. Þá var tólf af sextán
starfsmönnum Sæferða, sem reka
Breiðafjarðarferjuna Baldur, sagt
upp.
Samtals hefur um 1.370 manns
verið sagt upp með hópuppsögn-
um það sem af er þessu ári.
Uppsagnirnar hafa að stærst-
um hluta verið í mannvirkjagerð,
eða um 42 prósent þeirra. Næstur
kemur fjármálageirinn, en um 23
prósent hópuppsagna hafa verið
hjá fjármálafyrirtækjum.
- sh
Ríflega 110 manns misstu vinnuna í september:
Fjórar hópuppsagnir í
síðasta mánuði
LÖGREGLUMÁL Tveir karlmenn á
þrítugsaldri voru handteknir á
höfuðborgarsvæðinu í fyrrinótt.
Lögregla taldi fullvíst að þeir
hefðu sitthvað misjafnt á sam-
viskunni, meðal annars tvö inn-
brot í Kópavogi.
Þá var karlmaður á fertugs-
aldri sömuleiðis handtekinn í
tengslum við rannsókn lögreglu á
innbroti í vesturbæ Reykjavíkur
en þýfi fannst í bíl mannsins.
Þremenningarnir hafa allir
komið við sögu hjá lögreglu áður.
- jss
Lögreglan í höfuðborginni:
Handtók þrjá
meinta þjófa í
höfuðborginni
EFNAHAGSMÁL Össur Skarphéðins-
son utanríkisráðherra varaði í
gær bresk og hollensk stjórnvöld
við því að með því að samþykkja
ekki fyrirvara Alþingis við Ice -
save geti þau verið að ýta Íslandi
út í stjórnarkreppu.
Össur ræddi Icesave-málið í
viðtali við BBC í gær. Hann ítrek-
aði að fyrirvarar Alþingis geri
ráð fyrir því að skuldin verði
greidd til baka.
Össur sagði megna óánægju
með það á Íslandi að viðsemj-
endur taki ekki í mál að taka upp
viðræður að nýju komist dómstól-
ar að því að Íslandi beri ekki að
greiða umsamdar upphæðir.
Ögmundur Jónasson, fyrrver-
andi heilbrigðisráðherra, var
ómyrkur í máli við BBC í gær.
Hann sagði Íslendinga afar ósátta
með að bresk og hollensk stjórn-
völd leyfi ekki íslenskum stjórn-
völdum að fara með málið fyrir
evrópska dómstóla.
Ögmundur sagði bresk og hol-
lensk stjórnvöld hafa kallað
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn til að
aðstoða sig við að ná fram sínum
kröfum, og einnig beitt Evr-
ópusambandinu fyrir sig gegn
Íslandi.
Spurður af fréttamanni BBC
hvort hann sé að saka bresk og
hollensk stjórnvöld um fjárkúg-
un játti Ögmundur því. Þau séu
grímulaust að nota AGS til að
neyða Ísland til að samþykkja
skilyrðislaust kröfurnar vegna
Icesave. - bj
Ögmundur Jónasson segir bresk og hollensk stjórnvöld beita Ísland fjárkúgun:
Össur varar við stjórnarkreppu
ÖSSUR SKARP-
HÉÐINSSON