Fréttablaðið - 03.10.2009, Side 16

Fréttablaðið - 03.10.2009, Side 16
16 3. október 2009 LAUGARDAGUR Verðmæti úthlutaðra lóða sem skilað hefur verið til Kópavogsbæjar í ár og í fyrra er 15 milljarðar króna. Mikill niðurskurður er fram undan hjá bænum eins og í öðrum sveitarfélögum en nýr bæjarstjóri, Gunnsteinn Sigurðsson, segir að bærinn muni njóta góðs af því að tilbúið gatnakerfi, grunn- skólar og íþróttaaðstaða séu til staðar fyrir nýja íbúa. Hann er ekki búinn að ákveða hvort hann ætlar að skella sér í prófkjörsslag við Gunnar I. Birgisson sem vill snúa aftur sem leiðtogi sjálf- stæðismanna í bænum. Gunnsteinn Sigurðsson, bæjar- stjóri í Kópavogi, segir að búið sé að skera alla fitu af í rekstri sveit- arfélagsins; frekari niðurskurður muni bitna á þjónustu. Kópavog- ur og önnur sveitarfélög þurfa að skera mikið niður í rekstri sínum á næsta ári. „Svigrúmið er ekki mikið. Við höfum farið ofan í flesta liði og tálgað burt það sem hægt var. Það verður ekki hægt að ganga lengra í niðurskurði án þess að það bitni á þjónustu,“ segir Gunnsteinn. Hann er ekki tilbúinn að nefna tölur um samdrátt næsta árs en gefur til kynna að það sé á svipuðu bili og í öðrum sveitarfélögum, þar sem gjarnan er rætt um 5,6-7 prósenta niðurskurð rekstrargjalda. Niðurskurður bitnar á þjónustu Gunnsteinn segir að sveitarstjórn- armenn beri mikið saman bækur sínar og séu sammála um að þörf sé á því að að stjórnvöld taki „stórar ákvarðanir“. Þegar spurt er hvort hann sé að kalla eftir lagabreyt- ingum svo að hægt verði að skera niður þá þjónustu sem nú er lög- bundin varðandi til dæmis rekst- ur grunnskóla og leikskóla svarar hann hvorki játandi né neitandi. Rekstur grunnskólanna er lang- stærsta verkefni sveitarfélags- ins og Gunnsteinn, sem er sjálfur skólamaður og var skólastjóri áður en hann varð bæjarstjóri, segir erf- itt að skera meira niður í skólunum án þess að það bitni á þjónustu. Sundlaugar og söfn Eins segir hann óhjákvæmilegt að „tekið verði til“ í þjónustuþáttum sem ekki eru lögbundnir, til dæmis rekstri sundlauga og safna. End- urskoðun á afgreiðslutíma þeirra stofnana er til skoðunar. Sveitarfé- lögin styrkja rekstur tónlistarskóla og myndlistarskóla, íþróttafélaga, auk þess að niðurgreiða æfinga- gjöld barna. Styrkir til tónlistar- skóla eru að einhverju leyti lög- bundnir en að öðru leyti er þessi þjónusta umfram skyldu sveitarfé- laganna. Þess vegna má búast við að horft verði til þeirra þegar verið er að skera niður kostnað. „Önnur leið er að hækka gjaldskrár,“ segir Gunnsteinn, „en menn forðast það í lengstu lög.“ Gunnsteinn segir að niðurskurð- ur muni þó ekki bitna á félagsþjón- ustu sveitarfélagsins, þvert á móti verði framlög til hennar aukin. Í kreppunni hafa mun fleiri leitað til sveitarfélagsins um aðstoð. Bærinn hefur rýmkað reglur um húsaleigu- bætur og aukið framlög í samræmi við það að leigjendum hefur fjölgað meðal íbúa bæjarins. Einnig hafa mun fleiri fengið framfærsluaðstoð en áður. Fjárhagsáætlanir gerðu ráð fyrir 90 milljóna króna framlagi í félags- aðstoð af ýmsu tagi á þessu ári en kostnaðurinn er þegar orðinn 180 milljónir og bætt verður í fjárheim- ildirnar við endurskoðun rekstrar- áætlunar og aftur á næsta ári. Lóðum fyrir 15 milljarða skilað Kópavogsbær hefur byggst hratt upp undanfarin ár og fjölgun- in hefur haldið áfram eftir hrun. Íbúar eru 600 fleiri í ágúst í ár en í ágúst í fyrra. Við hrunið stöðvaðist engu að síður sú uppbygging sem verið hefur í bænum undanfarin ár. Gunnsteinn upplýsir að alls hafi 459 úthlutuðum lóðum verið skilað inn til bæjarins í ár og í fyrra. 67 af þessum lóðum hefur verið endurút- hlutað, þar af þremur atvinnulóð- um. Verðmæti skilaðra lóða nemur um 15 milljörðum króna. Endur- greiðsla bæjarsjóðs er þó lægri tala og nemur þeirri greiðslu sem kaup- endur höfðu greitt inn á lóðir sínar. Þær tölur liggja ekki fyrir. Gunnsteinn segir að lóðaskil- in hafi verið bænum erfið. „En á móti kemur að við erum búnir að byggja upp gríðarlega mikla þjón- ustu í þessum hverfum. Hverfin eru fullbúin og tilbúin að taka við fleiri íbúum.“ Uppbygging gatnakerfis og innviða sé nánast lokið. Fólk muni sækjast í hverfi þar sem fyrir eru fullgerðar götur og fullgerðir skól- ar. Hörðuvallaskóli verði fullbúinn öðru hvorum megin við áramót og vinna við Vatnsendaskóla sé nú á síðustu metrunum. Þessir skólar geti tekið við töluvert fleiri nem- endum á næstu árum. „Til viðbót- ar erum við með fullgerða íþrótta- aðstöðu, knatthús í Vallakór. Stórt íþróttahús sem verður tekið í notk- un von bráðar. Við erum með tvo grasvelli og sandgrasvöll tilbúinn á þessu svæði: Ég held að öll þessi aðstaða verði til þess að fólk muni leita inn á þessi svæði. Uppbygg- ingin þýðir líka að það hefur í för með sér að því fylgir bara ávinn- ingur fyrir okkur að fá fólk inn á svæðið.“ Hann segir að þessi stað- reynd, að innviðir fyrir framtíðar- uppbyggingu eru fyrir hendi, geri líka að verkum að bærinn sé bjart- sýnn á að honum takist vel að sækja sér nýtt lánsfé út á markaðinn en bærinn er með skuldabréfaútboð í undirbúningi fyrir þetta ár og hið næsta. Hrunið hefur leitt til þess að mál sem voru í mikilli umræðu meðal almennings hafa legið í lág- inni undanfarna mánuði. Það á til dæmis við um skipulagsmál í Kárs- nesi. Áform bæjarins um byggð á miklum landfyllingum mættu mik- illi andstöðu íbúa. Gunnsteinn segir að fyrirsjáanlegt sé að ekki verði farið í framkvæmdir þarna á næstu árum enda sé nóg til af fullskipu- lögðum hverfum í bænum. Skipu- lagshugmyndirnar eru hins vegar enn til meðferðar og verða teknar fyrir á fundi með Íbúasamtökum Kársness á næstu vikum. Álitshnekkir fyrir bæjarfélagið Gengið verður til sveitarstjórnar- kosninga næsta vor en Gunnsteinn segir að þetta verði óvenjulegur kosningavetur, meirihluti og minni- hluti standa saman að gerð fjár- hagsáætlunar, allar framkvæmdir eru í lágmarki og aðhald og sparn- aður í fyrirrúmi í rekstrinum. End- urskoðuð fjárhagsáætlun þessa árs verður rædd á næsta bæjarstjórn- arfundi og hún verður síðan lögð til grundvallar við gerð fjárhagsáætl- unar næsta árs. Frá því að banka- hrunið varð hafa meirihluti og minnihluti bæjarstjórnarinnar átt samstarf um fjármálastjórn bæjar- ins; stóðu saman að gerð fjárhags- áætlunar, vinna saman að endur- skoðuninni og ætla að halda áfram samstarfi við gerð fjárhagsáætl- unar næsta árs. Gunnsteinn segir að samstarfið hafi gengið vel hing- að til og á ekki von á öðru en að samstaða náist um fjárhagsáætlun næsta árs. Gunnsteinn hefur verið þrjá mán- uði í stól bæjarstjóra. Hann tók við þegar Gunnar I. Birgisson dró sig í hlé sem bæjarstjóri og fór í leyfi frá starfi bæjarfulltrúa. Eins og kunnugt er hafði Gunn- ar Birgisson verið harðlega gagn- rýndur vegna viðskipta bæjarins við fyrirtæki í eigu dóttur hans en það sem olli því að hann vék úr bæjarstjórastóli var rannsókn Fjármálaeftirlitsins á Lífeyrissjóði Kópavogs. Í vikunni boðaði Gunnar endurkomu sína í bæjarpólitíkina í viðtali við Pressuna. Hann ætlar að sækjast eftir 1. sæti í prófkjöri fyrir sveitarstjórnarkosningarn- ar næsta vor. Ætlar Gunnsteinn að keppa við Gunnar um oddvitasætið? „Ég hef ekki tekið neina ákvörðun um það, mér finnst það ekki tíma- bært. Ég tók að mér þetta verkefni og ætla að klára það. Ég geri ráð fyrir að prófkjörið verði í febrúar og fyrir þann tíma þarf ég að gera upp við mig hvað ég geri.“ Kemur þér á óvart að Gunnar ætli að snúa aftur? „Nei, Gunnar verður að ákveða það en tímasetningin er óvænt. Hann vék úr sæti og tók sér leyfi frá starfi bæjarfulltrúa meðan rannsókn færi fram á störfum stjórnar Lífeyrissjóðs Kópavogs- bæjar. Sú rannsókn er enn í gangi en það er nauðsynlegt að henni ljúki sem fyrst. Fjármálaeftirlitið greip til mjög þungbærra aðgerða og öll þessi umræða hefur ekki verið góð fyrir bæjarfélagið.“ Gunnsteinn segir að leiði rann- sóknin ekki til frekari aðgerða af hálfu FME hljóti bærinn að íhuga að krefjast bóta vegna þess skaða og álitshnekkis sem málið hefur valdið. „Það hefur verið óþægilegt að Gunnar hafi þurft að fara frá við þessar aðstæður; umræðan hefur verið erfið fyrir alla aðila, bæði fyrir bæjarfélagið sjálft, en ekki síst Gunnar. Hann er ósáttur en ég kem inn í starfið við þessar aðstæður og þarf fyrst og fremst að fá menn til að vinna saman. Það hefur gengið ágætlega og ég hef ekki undan neinu að kvarta.“ Ákvörðun um prófkjörsslag bíður síns tíma FRÉTTAVIÐTAL: GUNNSTEINN SIGURÐSSON, BÆJARSTJÓRI Í KÓPAVOGI GUNNSTEINN SIGURÐSSON Hann var skólastjóri í Kópavogi, en tók við embætti þegar Gunnar I. Birgisson vék sæti í kjölfar hneykslismála. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FRÉTTAVIÐTAL PÉTUR GUNNARSSON peturg@frettabladid.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.