Fréttablaðið - 03.10.2009, Blaðsíða 20
20 3. október 2009 LAUGARDAGUR
UMRÆÐAN
Björg Thorarensen
skrifar um niðurskurð
hjá háskólum
Eftir kröftuga uppbygg-ingu og útþenslu í
íslensku háskólaumhverfi
á tímum góðæris þurfa
háskólar eins og aðrar
stofnanir samfélagins að grípa til
umtalsverðs niðurskurðar í rekstri.
Fjárframlög til háskóla lækka um
8,5% frá síðasta ári. Þetta þýðir að
þrátt fyrir 20% fjölgun nemenda
í Háskóla Íslands á þessu skóla-
ári fær hann 200 milljónum króna
lægri fjárveitingu árið 2010. Horf-
ur eru á áframhaldandi niðurskurði
framlaga til háskóla, um meira en
tvo milljarða króna næstu þrjú ár.
Þessar aðstæður kalla á endur-
skipulag háskólastigsins og nýja for-
gangsröðun til þess að hægt verði
að halda uppi gæðum háskólanáms
í landinu fyrir mun fleiri nemendur
með talsvert lægri fjárhæð en áður
var til ráðstöfunar.
Tvö markmið
Fyrsta athugunarefnið er að sjö
háskólar starfa í 330 þúsund manna
samfélagi, þar af fjórir sem halda
úti sömu námsleiðum í lögfræði
og viðskiptafræði í grunnnámi og
meistaranámi og tveir í tölvunar-
fræði, verkfræði og nú síðast sál-
fræði frá haustinu 2009.
Á síðastliðnu ári hafa hvorki
meira né minna en þrjár nefndir
verið stofnaðar um aðgerðir í mál-
efnum háskóla í ljósi breyttra efna-
hagsaðstæðna. Tvær fyrri skiluðu
tillögum vorið 2009 en þeirri þriðju,
sérstökum rýnihópi með fulltrúum
allra háskólanna, var falið að taka
afstöðu til tillagna hinna tveggja
og hún skilaði niðurstöðum sínum
í ágúst.
Meginniðurstaða hópsins var að
auka þyrfti samstarf háskólanna.
Engar útfærðar tillögur eða tölu-
legar forsendur hafa þó komið fram
um hvernig raunverulegur sparnað-
ur, sem þarf að nema hátt á annan
milljarð króna, eigi að nást fram
með auknu samstarfi eða verka-
skiptingu á milli háskóla með ger-
ólíkum rekstrarformum.
Kjarni málsins er sá að við niður-
skurð og hagræðingu í opinberum
útgjöldum til háskólastigsins verður
að hafa tvö markmið að leiðarljósi. Í
fyrsta lagi að taka mið af því hvar
lögbundnar skyldur ríkisins liggja
gagnvart háskólamenntun í land-
inu. Í öðru lagi að ná fram mestri
hagræðingu, þannig að kostnaður á
hvern nemanda verði sem minnstur,
án þess að gæðum háskólanáms og
rannsókna sé stefnt í hættu.
Háskóli Íslands í forgang
Hvað fyrra atriðið varðar blasir við
að í efnahagsþrengingum þeim sem
nú standa yfir bera stjórnvöld sér-
stakar skyldur gagnvart Háskóla
Íslands. Þeim ber því við úthlutun
opinberra fjármuna að for-
gangsraða á þann veg að
hlúð sé að þessum undir-
stöðuþætti fram yfir aðra.
Um margra ára skeið
hafa einkareknir skólar á
háskólastigi í raun verið
ríkisreknir að stærstum
hluta og hafa fengið greidd
jafnhá kennsluframlög á
hvern nemanda og nem-
endur HÍ. Þó hefur HÍ ekki
fengið öll nemendaígildi bætt að
fullu undanfarin ár og enn eykst
það misræmi eftir 20% fjölgun
nemenda. Auk fullra kennslufram-
laga frá ríkinu hefur einkaskólum
verið heimilt að innheimta skóla-
gjöld sem eru allt að þriðjungs við-
bót við tekjur þeirra. Til viðbótar
þessu veitir ríkið einnig námslán
fyrir skólagjöldum þeirra.
Á sama tíma hefur deildum HÍ
sem eru í samkeppni við einkaskól-
ana verið neitað um heimild til töku
skólagjalda. Samkeppni er af hinu
góða, en aðeins ef hún fer fram á
jafnréttisgrundvelli. Það skilyrði
hefur aldrei verið uppfyllt hér á
landi. Sérstætt er að jafnræðissjón-
armiðin verði skyndilega virk á nið-
urskurðartímum þannig að niður-
skurður þurfi að koma jafnt niður á
öllum háskólum. Enn fremur dylst
engum sú ankannalega aðstaða að
haldið er uppi kennslu í lögfræði,
viðskiptafræði, verkfræði og sál-
fræði bæði í ríkisháskólanum HÍ
og einkaskólanum HR, sem rekinn
er fyrir ríkisframlög, þar sem báðir
skólarnir standa á sama blettinum í
miðborg Reykjavíkur.
Yfirburðir HÍ
Um seinna atriðið, þ.e. hvar hægt er
að ná mestri hagræðingu án þess að
draga úr gæðum, ber einnig allt að
sama brunni.
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um
kostnað, skilvirkni og gæði háskóla-
kennslu frá árinu 2007 voru birtar
niðurstöður úttektar á kennslu í
viðskiptafræði, lögfræði og tölv-
unarfræði á tímabilinu 2003-2005
hjá Háskóla Íslands, Háskólanum
í Reykjavík og Háskólanum á Bif-
röst. Úttektin leiddi afdráttarlaust
í ljós yfirburði HÍ í öllum greinum
sem teknar voru til skoðunar. Laga-
deild HÍ kom best út í öllum sam-
anburðaratriðum, kostnaður hennar
reyndist lægstur, akademísk staða
sterkust og skilvirkni mest. Starfs-
mannakostnaður á hvern fullskráð-
an laganema var langlægstur þar,
um þrefalt lægri en hjá HB og tvö-
falt lægri en hjá HR. Þá var með-
alkostnaður á hvert akademískt
stöðugildi lægstur hjá HÍ en hæst-
ur hjá HB og munaði þar 33%.
Eftir þetta hefur nemendum
áfram fjölgað hlutfallslega lang-
mest við lagadeild HÍ og því hefur
kostnaður enn lækkað, án þess að
slegið hafi verið af þeim kröfum
sem gerðar eru til metnaðarfulls
laganáms. Hugmyndir um að sam-
vinna milli skóla, þar sem alger lág-
markstilkostnaður er í öðrum skól-
anum en tvöfalt eða þrefalt meiri
kostnaður í hinum, skili verulegri
hagræðingu ganga engan veginn
upp í ljósi þessara staðreynda.
Tveir kostir
Tveir kostir eru í stöðunni. Sá fyrri
er að stjórnvöld taki sig til og for-
gangsraði í fjárveitingum og komi
samkeppni á milli háskóla á jafn-
réttisgrundvöll. Það þýðir að fram-
lög til einkarekinna skóla lækka í
samræmi við þau skólagjöld sem
þar eru innheimt. Þeir verða því
að lækka rekstrarkostnað á hvern
nemanda. Mismunurinn verði nýtt-
ur til að milda áhrif niðurskurðar á
starfsemi Háskóla Íslands í þessari
þröngu stöðu. Hinn kosturinn er að
Háskóli Íslands taki yfir þær deildir
þar sem sömu námsleiðum er hald-
ið uppi að nokkru eða öllu leyti og
þau ríkisframlög sem þangað renna
nú, enda mest hagræðing fólgin í að
kennsla fari fram þar. Augljóslega
gengur þó ekki til lengdar að yfir
500 manns hefji laganám árlega,
án þess að kennurum verði fjölg-
að verulega. Lagadeild Háskóla
Íslands vinnur nú að tillögum um
hvernig megi stýra inntöku nem-
enda í deildina þannig að skynsam-
legt jafnvægi náist á þessu sviði og
dregið verði úr brottfalli stúdenta.
Mikilvægast er að halda áfram uppi
gæðum námsins og það hefur laga-
deild, eins og aðrar deildir háskól-
ans, haft að leiðarljósi.
Samkeppni á röngum forsendum
Árum saman hefur Háskóli
Íslands verið sú stofnun samfé-
lagsins sem nýtur mests trausts í
almennings í landinu, en það hefur
mælst um og yfir 85%. Það hefur
sannarlega verið staðfest á und-
anliðnu ári þar sem sérfræðingar
Háskólans hafa gegnt veigamiklu
hlutverki til að aðstoða stjórnvöld
við úrlausn erfiðra vandamála
eftir bankarhrunið og þá upp-
byggingu sem nú stendur yfir.
Nú þegar kreppir að er grund-
vallaratriði að stjórnvöld tryggi
áfram sjálfstæði skólans og gæði
í kennslu og rannsóknum og við-
haldi þannig því trausti sem
hann nýtur. Skólinn hefur sett
sér metnaðarfulla stefnu undir
stjórn núverandi rektors, Krist-
ínar Ingólfsdóttur, um að Háskóli
Íslandi verði öflugur rannsókna-
háskóli á raunverulegum sam-
keppnisgrundvelli við alþjóðlega
háskóla. Það er óraunhæft að ríkið
haldi uppi fleiri skólum af því tagi
og allra síst á tímum kreppu.
Með aðgerðum sem miðast við
að halda áfram uppi samkeppni á
röngum forsendum er þeirri ein-
stöku stöðu sem Háskólinn hefur
áunnið sér stefnt í hættu. Íslenskt
samfélag hefur ekki efni á því,
ofan á allt annað sem miður hefur
farið á tímum efnahagsþrenginga,
að missa þá kjölfestu samfélags-
ins sem Háskóli Íslands er.
Höfundur er prófessor og forseti
lagadeildar Háskóla Íslands.
Hagræðing á háskólastigi
BJÖRG
THORARENSEN
UMRÆÐAN
Svandís Svavarsdóttir
skrifar um umhverf-
ismál
Viðbrögð stjórnmála-manna, sér í lagi sjálf-
stæðismanna, við úrskurði
mínum um Suðvesturlínu
endurspeglar því miður þá
umræðu sem oftar en ekki
verður um umhverfismál
hér á landi. Ég taldi þá umræðu til-
heyra tímanum fyrir það samfélags-
hrun sem varð fyrir ári. Það hrun
má að mörgu leyti rekja til þess að
sérhagsmunir voru teknir fram
fyrir almannahagsmuni og stjórn-
völd gáfu sér ekki nægilegan tíma
til að meta áhrif þeirra ákvarðana
sem teknar voru. Það gleymdist að
horfa til framtíðar. Ummæli sem
fallið hafa um þetta mál dæma sig
sjálf og endurspegla aðeins rökleysi
þeirra sem grípa til orða eins og
skemmdaverk og hryðjuverkaárás.
Í úrskurði mínum komst ég að
þeirri niðurstöðu að nokkur atriði
tengd þessu máli væru alls ekki
nægilega vel upplýst til að hægt
væri að taka endanlega ákvörð-
un um það hvort Suðvesturlína
ætti að fara í sameiginlegt mat á
umhverfisáhrifum. Vegna þessara
annmarka ákvað ég að fela Skipu-
lagsstofnun að skoða málið betur.
Það er skylda mín sem ráðherra að
sjá til þess að mál séu nægilega vel
upplýst áður en ég kemst að endan-
legri niðurstöðu í svona mikilvægu
máli.
Stöðugleikasáttmálinn
Í umræðu í fjölmiðlum hefur verið
vísað til þess að ákvörðun mín fari
gegn stöðugleikasáttmálanum og að
miklar tafir verði á framkvæmdum
tengdum álverinu í Helguvík.
Ég er þess fullviss að engin þeirra
sem kom að gerð stöðugleikasáttmál-
ans hafi haft það í huga að afslátt-
ur yrði gefinn á lögum um mat á
umhverfisáhrifum til að flýta fyrir
framkvæmdum. Markmið laganna
er að tryggja að umhverfisáhrif
framkvæmda hafi verið metin áður
en leyfi er veitt fyrir þeim, draga
eins og kostur er úr neikvæðum
umhverfisáhrifum þeirra og stuðla
að samvinnu þeirra aðila
sem hafa hagsmuna að gæta
eða láta sig málið varða. Síð-
ast en ekki síst er markmið
laganna að kynna umhverf-
isáhrif framkvæmda fyrir
almenningi og stuðla að
því að almenningur komi
að athugasemdum og upp-
lýsingum áður en ákvarð-
anir eru teknar. Með því að
óska eftir nánari upplýsing-
um frá Skipulagsstofnun tel
ég mig hafa verið að gæta
þess að allar upplýsingar liggi fyrir
svo að ég og allir hagsmunaaðilar,
almenningur þar á meðal, geti gert
sér grein fyrir umhverfisáhrifum
framkvæmdarinnar.
Óvissuþættir
Þá hefur verið látið að því liggja að
með úrskurði mínum sé ég að tefja
framkvæmd verkefnisins og þar
með að koma í veg fyrir uppbygg-
ingu atvinnulífs á Suðurnesjum.
Þetta er beinlínis rangt.
Óvissuþættir varðandi fram-
kvæmdina í Helguvík eru fjölmarg-
ir, svo sem orkuöflun og fjármögn-
un. Orka er að mestu tryggð fyrir
180.000 tonna álver en hins vegar
er gert ráð fyrir að álverið verði
360.000 tonn í fullri stærð. Fátt
er fast í hendi varðandi orkuöflun
álversins í fullri stærð. Enn er ekki
vitað hvaðan sú orka á að koma eða
hvort hún sé yfir höfuð til. Ekki þarf
að fara mörgum orðum um stöðu
orkufyrirtækja og möguleika þeirra
til að fá fjármagn til framkvæmda.
Það var því ekki úrskurður minn
sem setti þetta mál í uppnám, held-
ur er mörgum öðrum spurningum
ósvarað um framkvæmdina.
Þau gildi sem núverandi ríkis-
stjórn hefur að leiðarljósi í störf-
um sínum eru m.a. aukið lýðræði,
opnari stjórnsýsla, aukið gagnsæi
og sjálfbær þróun. Í þessu felst að
allar ákvarðanir stjórnvalda verða
að hafa hagsmuni heildarinnar að
leiðarljósi, líka þeirra sem erfa
munu landið. Ég legg því til að við
sem tökum ákvarðanir sem hafa
áhrif á komandi kynslóðir ræðum
um umhverfismál eins og fullorð-
ið fólk án þess að fara í þann skot-
grafahernað sem allt of lengi hefur
einkennt málaflokkinn.
Höfundur er umhverfisráðherra.
Hefjum upp
umræðuna
UMRÆÐAN
Höskuldur Þórhallsson
skrifar um efnahags-
mál
Í umræðunni um Alþjóða gjaldeyrissjóðinn (AGS)
og Icesave-ríkisábyrgðina
hefur það vakið athygli
að lán frá Norðmönnum
sé tengt láni frá AGS og þar með
lausn á Icesave-deilunni. Þessi
afstaða Noregs hefur komið mörg-
um spánskt fyrir sjónir þar sem
ætla mætti að frændur okkar væru
líklegastir til að koma Íslendingum
til hjálpar í kreppunni.
Eftir heimsókn mína til Noregs
flutti ég þær fréttir að afstaða þar-
lendra þingmanna væri að mörgu
leyti á misskilningi byggð. Í umræð-
unni í Noregi væri því haldið fram
að þar sem engin formleg beiðni
um lánveitingu hefði borist frá
Íslandi væri ekki inni í myndinni
að lána Íslendingum óháð lánum
frá AGS. Einnig sagði ég frá því að
Norski Miðjuflokkurinn, Center-
partiet, hefði lýst því yfir að hann
væri reiðubúinn að lána Íslending-
um óháð aðgerðaáætlun AGS og
lausn á Icesave-deilunni. Þetta eru
jákvæð tíðindi, sérstaklega í ljósi
þess að Centerpartiet hefur verið
einn þriggja flokka sem mynda
ríkisstjórn Noregs og komu vel út
í nýafstöðnum alþingiskosningum
í Noregi.
Þingmaðurinn Per Olaf Lundteig-
en sem er í fjárlaganefnd norska
Stórþingsins staðfesti þessar
fregnir. Hann bætti líka um betur
og sagði frá því að það væri mikill
vilji innan þingsins að lána
háar fjárhæðir til Íslend-
inga. Hafði hann sjálfur
nefnt allt að 2000 milljarða
íslenskra króna í því sam-
hengi en nefndi að það væri
samningsatriði á milli þjóð-
anna í hvaða formi lánin
væru.
Þingmaður norska Verka-
mannaflokksins, Marianne
Aasen, sagði í fréttum Rík-
issjónvarpsins sl. fimmtudag að
lánin frá Noregi væru nú tengd lán-
veitingum AGS. Það sem hins vegar
vakti athygli var að hún sagði einn-
ig að það væri óraunhæft að lána
Íslendingum ótengt AGS „án þess
að Íslendingar bæðu formlega
um það“. Málflutningur þessara
tveggja þingmanna fer því saman
að þessu leyti.
Íslensk stjórnvöld verða nú að
bregðast skjótt við og senda form-
lega beiðni um lánveitingu til Norð-
manna telji þau Íslendinga þurfa
lán til að styrkja gjaldeyrisforðann.
Einn þriggja ríkisstjórnarflokk-
anna í Noregi hefur þegar lýst yfir
að hann muni taka jákvætt í slíka
beiðni og ljóst að margir þingmenn
annarra flokka myndu skoða slíkt
með opnum huga.
Lán frá Noregi óháð AGS myndi
gjörbreyta stöðu Íslendinga, ekki
bara í samskiptum við sjóðinn
heldur einnig í deilunni um Icesa-
ve. Íslensk stjórnvöld gætu þá líka
í fyrsta skipti frá því að bankarn-
ir hrundu staðið upprétt gagnvart
öðrum þjóðum. Það er frumskilyrði
við endurreisn efnahags landsins.
Höfundur er þingmaður.
Framsóknarflokksins
og á sæti í fjárlaganefnd.
Lán frá Noregi
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
HÖSKULDUR
ÞÓRHALLSSON
Skráning í “Græna Korts Happdrættið” 2011 byrjar 2. Október 2009.
Þeir aðilar sem vilja taka þátt í happdrættinu verða að skrá sig á
sérstakri heimasíðu á vegum Bandaríska ríkisins.
Vefslóðin fyrir skráningu í Græna Korts Happdrættið 2011 er
www.dvlottery.state.gov og verður skráning opin frá kl 08:00, 2. október
2009 til kl. 08:00, 30. Nóvember 2009.
Vinsamlegast athugið að þetta er eina heimasíðan á vegum Bandaríska
ríkisins fyrir skráningu í Græna Korts Happdrættið.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar á heimasíðu Bandaríska
Sendiráðsins:
http://iceland.usembassy.gov
Skráning í “Græna Korts Happdrættið” hefst.
E M B A S S Y O F T H E U N I T E D S T A T E S