Fréttablaðið - 03.10.2009, Síða 22

Fréttablaðið - 03.10.2009, Síða 22
22 3. október 2009 LAUGARDAGUR UMRÆÐAN Daníel Reynisson skrifar um stuðning fyrir krabbameinsgreinda og aðstand- endur Sum okkar eru aðstandendur, önnur greind – sum meira að segja tvígreind en flest okkar þekkjum við einhvern nálægt okkur sem hefur verið krabbameinsgreind- ur. Þegar einstaklingur fær upplýsingar um greiningu sína er óhætt að segja að nýjar áherslur þröngvi sér inn í daglegt líf hans. Við tekur ferli sem ekki er auðvelt fyrir lík- ama og sál þeirra sem greinast og langt í frá að vera eitthvað sem maður óskar sér. Á slíkum stundum er gott að geta leitað upp- lýsinga hjá þeim sem á undan hafa gengið. Þann 1. október 1999 var formlega stofn- að Stuðningsfélagið Kraftur (www.kraftur. org). Félagið var stofnað af hópi ungs fólks sem hafði greinst sjálft eða voru aðstand- endur krabbameinsgreindra. Þau vildu nýta þá reynslu sem þau höfðu aflað sér til góðs fyrir aðra sem stæðu í svipuðum spor- um og þau sjálf höfðu gert. Þetta voru ein- staklingar sem höfðu fengið mismunandi krabbamein – gengið í gengum mismun- andi meðferðir en á sinni ferð fundið hvað stuðningur skiptir miklu máli. Þau höfðu fengið mismunandi upplýsingar og ráðgjöf í meðferðum sínum og vildu nú samræma upplýsingagjöf og gera hana markvissari. Fyrir tíu árum taldi þetta unga fólk að eitt- hvað vantaði upp á heild- arferlið fyrir þá sem greinast með krabba- mein. Þeim fannst hægt að gera betur í að sýna hvert öðru samstöðu. Félagið hafði það strax að leiðarljósi að beita sameinuðum kröftum sínum til að aðstoða þá sem þurfa á stuðn- ingi að halda, miðla upplýsingum sem auð- velda einstaklingum að takast á við sjúk- dóminn ásamt því að standa fyrir útgáfu á ýmiskonar kynningarefni. Kraftur hefur á þeim 10 árum sem liðin eru frá stofnun félagsins, byggt upp öflugt stuðningsnet. Það byggir á vinnu sjálfboða- liða sem farið hafa í gegnum námskeið sem skipulögð eru af fagaðilum. Þessir einstakl- ingar eru tilbúnir að leggja sitt af mörk- um við að miðla af reynslu sinni til þeirra sem eru að hefja meðferð eða aðstandenda þeirra. Stuðningssími Krafts er 866-9618. Kraftur hefur þannig þjónað sem vett- vangur hugmyndasmiðju krabbameins- greindra einstaklinga eða aðstandenda. Þetta hafa verið margvísleg samvinnuverk- efni eins og Dans-Kraftur, Kraftur í kring- um Ísland, útgáfa á geisladiski að ógleymd- um fjölmörgum fyrirlestrum sem tengjast málefninu á einn eða annan hátt. Við höfum staðið fyrir fjölmörgum fund- um og uppákomum til að vekja athygli á hagsmunamálum krabbameinsgreindra og aðstandenda. Við höfum tekið þátt í forvarn- arstarfi og hvatt til árvekni um stöðu ungs fólks ef veikindi steðja að. Kraftur gaf til að mynda út bókina Lífs-Kraftur 2003 (endur- útgefin 2008) en hún fæst afhent á sjúkra- stofnunum án endurgjalds og er aðgengileg á vef okkar í PDF formi (www.kraftur.org). í henni er að finna ýmsar hagnýtar upplýs- ingar fyrir þann hóp sem við teljum okkur standa fyrir. Við tókum einnig virkan þátt í undirbúningi og mótun á Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands. Á fimm ára afmæli Krafts stóðum við fyrir göngu sem nefnist Sólarganga, þar sem við vildum minna fólk á að lífið er núna. Gangan var á þeim tíma unnin í samstarfi við Önnu Pálínu Árnadóttur sem lést árið 2004. Hún hvatti okkur öll til að ganga sól- armegin í lífinu og munum við hvetja lands- menn til að gera slíkt hið sama á morgun, laugardaginn 3. október. Þá ætla Kraftsfé- lagar, ættingjar, vinir og velunnarar að fjöl- menna í Sólargöngu frá Hallgrímskirkju, niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Aust- urstræti og enda á Ingólfstorgi. Gangan hefst klukkan 14.00 og hvetjum við alla sem málefnið varðar að taka þátt. Á fimm ára afmæli Krafts var hafin veg- ferð að stofnun upplýsinga- og ráðgjafarþjón- ustumiðstöð í samvinnu við Lífsiðn (Ljósið) og IMG. Í dag starfa tvær miðstöðvar á höf- uðborgarsvæðinu en það eru Ljósið (endur- hæfingar- og stuðningsmiðstöð) og Ráðgjaf- arþjónusta Krabbameinsfélags Íslands. Það verður fróðlegt að sjá hvaða áhersl- ur Kraftur leggur á næstu fimm árin en af verkefnum er nóg að taka. Skortur er á líkamlegri endurhæfingu krabbameins- greindra sem og samþættingu fagaðila ef krabbameinsgreindur þurfa að fara milli margra sérfræðinga. Efla þarf enn frekar stuðningsnet okkar og kynna félagið sem öfluga rödd þeirra sem vilja vinna mála- flokki okkar heilla. Koma þarf upp fjár- hagslegu stuðningskerfi fyrir ungt fólk sem er að greinast og mörg fleiri verkefni eru á verkefnalista okkar. Á næstu vikum munum við forgangsraða og gott væri að heyra frá þér lesandi góður hvar þú telur að við gerum mest gagn. Sendu ábendingar á kraftur@kraftur.org – góðar hugmyndir fá oft flug þegar við göngum í þær saman og af Krafti. Í lokin þakka ég öllum sem veitt hafa félaginu stuðning í gegnum árin og óska félagsmönnum og landsmönnum öllum til hamingju með tíu ára afmæli Krafts. Höfundur er formaður Krafts, stuðnings- félags fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur þeirra. Tíu ár með Krafti DANÍEL REYNISSON UMRÆÐAN Lilja Þorgeirsdóttir skrif- ar um velferðarmál Lög um ráðstafanir í rík-isfjármálum voru sam- þykkt á Alþingi hinn 29. júní sl. Breytingarnar voru framkvæmdar til að ná fram sparnaði í ríkisfjár- málum á methraða. Tveir dagar liðu frá því að lögin voru samþykkt þar til fjöldi öryrkja og ellilífeyrisþega varð fyrir skerðing- um á bótum almannatrygginga. Lögin fólu m.a. í sér að tekju- tengingar jukust þannig að bætur almannatrygginga skertust meira og fyrr en áður. Þá var einnig brot- ið blað í sögunni þegar lífeyris- sjóðstekjur tóku að skerða „grunn- lífeyri“ og einnig bótaflokkinn „aldurstengd örorkuuppbót“. Breyt- ingin gat jafnframt leitt til þess að fólk missti ákveðin réttindi sem þeim fylgdu s.s. niðurgreiðslu á sjúkraþjálfun, tannlæknakostnað, iðjuþjálfun o.fl. ÖBÍ mótmælti því harðlega að ráðist væri á almannatrygginga- kerfið með þessum hætti en stór hópur örorkulífeyrisþega varð fyrir talsverðum skerðingum á tekjum með nánast engum fyrir- vara. Dæmi voru um að skerðing- arnar væru hlutfallslega meiri en hátekjuskatturinn sem lagður var á launþega með yfir 700.000 kr. í launatekjur á mánuði. Það er öllum ljóst að erfiðleikar blasa við þjóðinni í kjölfar banka- hrunsins. Forsætisráðherra til- kynnti að skera þyrfti niður í rík- isútgjöldum með því að lækka hæstu launin, setja á hátekjuskatt og endurskoða fastlaunasamninga hjá ríkisstarfsmönnum. En tekið var sérstaklega fram að ekki yrði hreyft við launum undir 400.000 kr. á mánuði. Sú ákvörðun er skilj- anleg, enda hafa þeir sem eru með hærri tekjur að öllum líkindum meira svigrúm til að taka á sig þyngri byrðar en hinir. Því kom það á óvart þegar bætur örorku- lífeyrisþega voru skertar, þar sem tekjur flestra þeirra eru vel undir þessum mörkum. Skerðingin á bótum almanna- trygginga hófst hjá örorkulífeyr- isþegum sem búa með öðrum við tæpar 160.000 kr. í heildartekjur á mánuði fyrir skatt og hjá þeim sem búa einir hófst skerðingin við rúmar 180.000 kr. á mánuði. Í dæmum sem starfsfólk ÖBÍ reiknaði út voru skerðingar af heildartekjum öryrkja, þ.e. bætur almannatrygg- inga og greiðslur úr lífeyrissjóði, í prósentum talið á bilinu 0,1–7,7%. Þessar skerðingar koma sérstaklega illa við þenn- an hóp sem hefur litla sem enga möguleika á að auka tekjur sínar sökum fötl- unar eða sjúkdóma. Hafa ber í huga að bætur lífeyr- isþega eru framfærsla, oft á tíðum, til langs tíma, hjá mörgum allt lífið. Einnig er fólk með örorkumat að jafnaði með hærri útgjöld en aðrir vegna lyfja- og læknis- kostnaðar, sjúkra- og iðjuþjálfun- ar o.fl. en þessi útgjöld hafa hækk- að verulega undanfarið. Jafnframt hefur fjöldi lífeyrissjóða lækk- að greiðslur til öryrkja um 7-10% í kjölfar bankahrunsins. Þá varð meirihluti lífeyrisþega fyrir allt að 10% skerðingu á bótum almanna- trygginga 1. janúar sl. vegna bráða- birgðaákvæðis í lögum um ráðstaf- anir í ríkisfjármálum. Slíkar skerðingar eru ómannúð- legar. Það er sérstaklega mikilvægt á tímum kreppu og niðurskurðar að standa vörð um þá sem standa höllum fæti í samfélaginu og hafa lægstu tekjurnar. Langtímafátækt hefur slæm áhrif á heilsu fólks, sem getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér og eykur kostnað rík- isins til lengri tíma litið. Því er það óásættanlegt að öryrkjar og ellilíf- eyrisþegar taki á sig hlutfallslega meiri byrðar en aðrir. „Skjaldborg- in“ um heimilin í landinu virðist ekki eiga að ná til lífeyrisþega þrátt fyrir að þeir séu, eins og aðrir, með heimili, börn á sínu framfæri og aðrar skuldbindingar eins og aðrir. Starfsfólk skrifstofu ÖBÍ fær reglulega símtöl frá öryrkjum sem eru ósáttir við sitt hlutskipti. Margir hverjir hafa búið við kröpp kjör í mörg ár og eiga sérstaklega erfitt með að láta enda ná saman í kreppunni. Lífeyrisþegar urðu líka fyrir áföllum í hruninu. Marg- ir hafa tapað sparifé og hlutabréf urðu að engu. Húsnæðis- og bílalán þeirra hafa líka hækkað. Þeir stjórnmálaflokkar sem nú eru við völd lýstu því yfir fyrir síð- ustu kosningar að þeir ætluðu að verja velferðarkerfið. Þau loforð hafa ekki staðist nema síður sé. ÖBÍ krefst þess að stjórnvöld afturkalli þær skerðingar sem lífeyrisþegar urðu fyrir á þessu ári. Fjármála- kreppan er því miður staðreynd og spara þarf í ríkisfjármálum, en það er ekki sanngjarnt að öryrkjar taki á sig hlutfallslega þyngri byrðar en aðrir, nú þegar síst skyldi. Það er hvorki stjórnvöldum né þjóðinni til sóma. Höfundur er framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands. Skerðingar á kjörum öryrkja LILJA ÞORGEIRSDÓTTIR Hefur þú skaðast í slysi? Við könnum rétt þinn á bótum! Slys breyta aðstæðum í starfi og frítíma. Gættu réttar þíns. Fulltingi þér við hlið / www.fulltingi.is / sími 533 2050 / Suðurlandsbraut 18 Rvk. E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.