Fréttablaðið - 03.10.2009, Side 30
30 3. október 2009 LAUGARDAGUR
í Landsbankanum mánuði áður en
bankinn féll.
26. okt. Fylgið við vinstri flokkana
eykst samkvæmt skoðanakönnun
en fylgi Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks minnkar.
27. okt. 70 prósent segjast vilja
sækja um aðild að ESB og taka
upp evru. Verðbólgan mælist tæp
sextán prósent og hefur ekki verið
meiri í tæp 20 ár. Hún átti enn
eftir að aukast.
28. okt. Stýrivextir hækka í átján
prósent, að kröfu AGS. Sterling
flugfélagið sem var í eigu Íslend-
inga verður gjaldþrota.
31. okt. Upplýst er um umfangs-
miklar uppsagnir víða í samfé-
laginu, margvíslegar hagræð-
ingaraðgerðir, launalækkanir,
lækkun starfshlutfalls og afnám
eftirvinnu. Samfylkingarráðherr-
ar ítreka kröfur sínar um að Davíð
Oddssyni verði vikið úr embætti.
4. nóv. Upplýst er að persónulegar
ábyrgðir starfsmanna Kaupþings
af lánum til hlutabréfakaupa hafi
verið felldar niður í lok september.
Fjárhæðirnar hlaupa á tugmillj-
örðum.
6. nóv. Fram kemur að meðal
sumra ríkja er lausn Icesave sögð
forsenda þess að AGS veiti Íslend-
ingum aðstoð. Fáum dögum síðar
segir forseti framkvæmdastjórn-
ar ESB alþjóðlega fyrirgreiðslu
ómögulega nema samið verði um
Icesave.
7. nóv. Samson óskar eftir heimild
til greiðslustöðvunar.
14. nóv. Ríkisstjórnin tilkynnir
um aðgerðir fyrir heimili í vanda.
Sjálfstæðismenn ákveða að flýta
landsfundi sínum og fjalla sér-
staklega um Evrópumál.
16. nóv. Stjórnvöld og Evrópu-
sambandið ná samkomulagi um
Icesave. Íslendingar ábyrgjast
innistæður að upphæð rúmlega
20.877 evra.
Uppúr miðjum nóvember var
komið fútt í pólitíkina. Stjórnarand-
staðan var komin með upp í kok af
ríkisstjórninni og lagði fram van-
trauststillögu og kröfu um þing-
rof og kosningar. Tillagan var felld
með atkvæðum þingmanna stjórn-
arflokkanna og Kristins H. Gunn-
arssonar.
Samfylkingarmenn voru líka
komnir með upp í kok af Davíð
Oddssyni og tveir ráðherrar, Björg-
vin G. og Þórunn vildu kosningar
næsta vor. Skoðanakönnun Frétta-
blaðsins þar um þann 24. nóvember
sýndi meirihluta fyrir vorkosning-
um meðal kjósenda. Önnur könnun
sýndi að aðeins rúmlega 30 prósent
studdu ríkisstjórnina.
Alþýðusambandið krafðist
afsagna fjármála- og viðskiptaráð-
herra.
Frá hruni höfðu opnir borgara-
fundir verið haldnir, bæði innan- og
utandyra. Margir þeirra voru fjöl-
sóttir og stemningin var jafnan sú
að stjórnvöld hefðu gert allt rangt
og líka bankamennirnir, eftirlits-
stofnanirnar og Davíð Oddsson.
Einn slíkur fundur var haldinn í
Háskólabíói mánudagskvöldið 24.
nóvember. Á sviðinu voru
átta ráðherrar, í salnum
1.500 borgarar. Ingibjörg
Sólrún sagði fundargesti
ekki endurspegla vilja þjóð-
arinnar. Þau ummæli hengd-
ust um háls hennar.
Förum aftur á hundavað
27. nóv. Formenn allra
flokka og þingforseti leggja
fram frumvarp um skipan
nefndar Alþingis sem rann-
saki aðdraganda og orsakir
falls bankanna. Nefndin á
að skila skýrslu um næstu
mánaðamót. Sama dag eru
samþykkt lög um gjaldeyr-
ishöft.
28. nóv. Um 7.000 manns eru
án avinnu. Atvinnulausum
fjölgaði um 3.000 á einum
mánuði.
1. des. Kröftug mótmæli við
Seðlabankann. Eva Hauksdótt-
ir fundar með seðlabankastjór-
unum. VG mælist með mest
fylgi stjórnmálaflokkanna í
könnun Gallup.
2. des. Ríkisstjórnin tilkynnir
aðgerðir í tólf liðum til að bæta
rekstrarumhverfi fyrirtækja.
3. des. Lífeyrissjóðirnir segjast
tilbúnir að taka þátt í endurreisn-
arstarfinu ef fleiri verða með
og viðunandi samkomulag náist
um gjaldmiðlavarnarsamninga.
Umboðsmaður Alþingis lýsir
áhyggjum af stjórnsýslu við fram-
kvæmd neyðarlaganna.
4. des. Davíð Oddsson segist í við-
tali við danskt blað að verði hann
neyddur úr Seðlabankanum muni
hann snúa í pólitíkina aftur.
8. des. Til ryskinga kom við
Alþingishúsið eftir að mótmælend-
ur voru með háreysti á þingpöll-
um.
9. des. Átök urðu við Ráðherrabú-
staðinn við upphaf ríkisstjórnar-
fundar. Aftur viku síðar.
10. des. Frumvarp um sérstakan
saksóknara til að rannsaka banka-
hrunið verður að lögum.
20. des. Tekjuskattur er hækkaður
og lögum breytt svo hægt sé að
lækka laun æðstu ráðamanna.
22. des. Fjárlög með 154 milljarða
króna halla samþykkt. Verðbólgan
hækkar enn og mælist rúmlega 18
prósent.Alþingi breytir lögum um
eftirlaun æðstu embættismanna.
Svo koma jól.
Og gamlársdagur. Mótmælend-
ur stöðva útsendingu Kryddsíld-
ar Stöðvar 2 með eyðileggingu á
tæknibúnaði. Lögregla beitir tára-
gasi.
Í áramótaávarpi sínu sagði Geir
Haarde meðal annars:
„Ég vil á þessari stundu segja
beint og milliliðalaust við ykkur,
kæru landsmenn, að ég ber sem
forsætisráðherra ábyrgð á stjórn
landsins og þá ábyrgð axla ég,
hvort sem siglt er um lygnan sjó
eða þungan. Sá dagur líður ei hjá
að ég spyrji mig ekki hvort stjórn-
völd hefðu getað komið í veg fyrir
þá atburði sem urðu hér á landi í
haust. Okkur hafa vissulega orðið á
mistök í þeim hamförum sem riðið
hafa yfir en það er engu síður ljóst í
mínum huga, að það var ekki á færi
íslenskra stjórnvalda að afstýra
hruni íslensku bankanna eftir að
heimskreppan skall á af fullum
þunga. Allar aðgerðir stjórnvalda
að undanförnu hafa miðað að því
að takmarka það tjón sem íslenska
þjóðin mun óhjákvæmilega verða
fyrir vegna bankahrunsins. Sú
barátta hefur staðið dag og nótt og
henni er hvergi nærri lokið.“
Um kvöldið datt þjóðin í það og
hló að áramótaskaupinu eins og
venjulega.
Í byrjun árs var boðið upp á end-
urtekið efni í þjóðmálunum. Sáran
raunveruleika, pólitískt karp og
almenn leiðindi. Óþol almennings
gagnvart stjórnvöldum jókst. Mót-
mælt var við þinghúsið dag eftir
dag. Evrópusambandsaðild, kosn-
ingar og stjórnarskipti voru rædd.
Svona var forsíða Frétta-
blaðsins fimmtudaginn 22. jan-
úar. Næstu daga stóð þar: Stjórn-
in reynir að þrauka, Samstarfið í
óvissu, Úrslitastundin er í dag, og
loks 27. janúar: Sátt um að Jóhanna
leiði nýja ríkisstjórn.
Geir Haarde baðst lausnar, Sam-
fylkingin og VG mynduðu minni-
hlutastjórn undir forsæti Jóhönnu
og ákveðið var að kjósa í apríl.
Áður skyldi losnað við Davíð úr
Seðlabankanum.
Í kosningunum fengu stjórnar-
flokkarnir þingmeirihluta og ný
hreyfing, Borgarahreyfingin fékk
fjóra menn kjörna. Við þekkjum
sögu hennar og eins ríkisstjórn-
arinnar. Ögmundur farinn og allt
það.
Tímamót urðu í utanríkispólit-
íkinni í sumar þegar Alþingi sam-
þykkti að hefja skyldi aðildarvið-
ræður við Evrópusambandið. Trú
sumra var að við það myndi allt
breytast og færast til betri vegar.
En það hefur ekki gerst. Ekki frek-
ar en svo margt annað.
Á þessu ári sem liðið er frá hruni
bankanna stöndum við í sömu spor-
um á ótrúlega mörgum vígstöðv-
um. Icesave er enn í lausu lofti,
skuldavandi heimilanna er óleyst-
ur, atvinnulífið er í sárum, gengi
krónunnar við frostmark, vext-
ir háir og lánstraust í útlöndum
í lamasessi. Listinn er auðvitað
miklu lengri.
Í Guð blessi Ísland-ávarpinu
sínu fyrir rétt rúmu ári sagði Geir
Haarde að með íslenska bjartsýni,
æðruleysi og samstöðu myndi þjóð-
in standa storminn af sér. Þó það
hafi eflaust verið einlæg sýn hans
þá verður að segjast eins og er að
ekkert af þessu hefur gengið eftir.
Því miður. Þjóðin er svartsýn og
samstaðan í lágmarki. Fyrir utan
svo að enn er rok og lognið ekki í
kortunum.
SPARIFÉÐ GLATAÐ
„Ég er alls ekkert miður mín vegna
þessa ástands. Ég er alltaf bjartsýn
og vona bara það besta,“ segir Sig-
urlaug Gísladóttir, 86 ára gamall
Seltjarnarnesbúi. Sigurlaug hefur
að öllum líkindum tapað sparifé
sínu á krepputímum tvisvar sinn-
um, fyrst árið 1930 og aftur nú, en
tekur fram að í hvorugt skiptið hafi
verið um háar fjárhæðir að ræða.
Sigurlaug eignaðist hlutabréf
í Flugfélagi Íslands sem með
snúningum og sameiningum
urðu að endingu að hlutabréfum
í Glitni. „Þá vildi ég selja bréfin
því mér leist ekkert á fyrirtækið,
en kom mér aldrei að því. Nú eru
bréfin líklega einskis virði,“ segir
Sigurlaug og bætir við að hún sé
pollróleg yfir þessu. Skellurinn sé
ekki mikill fyrir sig.
Fréttablaðið 10. október 2008
ANDLEGT ÞROT OG ÓTTI UM VÖRUSKORT
„Það er búið að vera allt brjálað hérna um helgina, eins og í öðrum Krónu-
verslunum um allt land. Ég skil þetta ekki alveg, því framkvæmdastjóri
Krónuverslananna hefur gefið það út að fólk þurfi ekki að hafa áhyggjur, og
að ekkert breytist,“ segir Patrick Pinto, aðstoðarverslunarstjóri í Krónunni
við Fiskislóð. Töluvert var um að fólk hamstraði matvörur í verslunum um
helgina. Að sögn Patricks hafa viðskiptavinir aðallega birgt sig upp af vörum
sem endast vel, eins og hveiti, sykri, spagettí og kotasælu.
Elfa Dögg Leifsdóttir, verkefnisstjóri
Hjálparsíma Rauða krossins, segir mikla fjölgun hafa orðið á símtölum til
hjálparlínunnar undanfarið. Margir hafi áhyggjur af lánum sínum sem séu í
erlendri mynt. Hún segir suma sem hringja vera á barmi örvæntingar. „Fólk
er í andlegu þroti. Flestir bera sig vel en sumir eru mjög örvilnaðir og jafnvel
tilbúnir til örþrifaráða,“ segir Elfa Dögg. Fréttablaðið 6. október 2008
ÍSLAND Í TÖLUM FYRIR OG EFTIR HRUN
Sep
tem
ber
200
8 Okt
óbe
r
200
9
8
6
4
2
0
September
1,3 %
Apríl
9,1 %
Október
7,7 %
ATVINNULEYSI
Frá september 2008
til ágúst 2009
20
18
16
14
12
10
8
6
4
2
0
September
2008
Október
2009
VERÐBÓLGA
Frá september 2008
til september 2009
STÝRIVEXTIR
Frá september 2008
til september 2009
Stýrivextir
voru lækkaðir í
hálfan mánuð
18
16
14
12
10
%
Sími: 512 5000
MEST LESNA DAGBL
AÐ Á ÍSLANDI
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
É
Sígilt og endingargott
Svanhildur Einarsdóttir hefur mikinn áhuga á fötum og rekur nú bLaugaveginum. Þar fást litskrúðug k
Svanhildur er ekki alveg viss um hvað kalla skuli flíkina frá Henrik Vibskov en lýsti henni þó sem nokkurs konar anorakk eða
mussu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HAPPYGREENKIDS.IS er netverslun
sem selur meðal annars barnafatnað úr lífrænt
ræktaðri bómull. Í netversluninni er að finna
föt á börn að fimm ára aldri, leikföng, hand-
klæði, rúmföt og gjafavöru.
þorrinn
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009
Manndómsvígsla í Framsókn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ætlar að
skella sér á þorrablót Framsóknarflokksins.
SÍÐA 2
STJÓRNMÁL Harðr
i andstöðu við
ríkisstjórnarsamst
arfið var lýst á
fjölmennum fundi
Samfylkingar-
félagsins í Reykjav
ík í gærkvöldi.
Þingmenn jafnt
sem almennir
flokksmenn sögðu
rétt að kjósa í
vor.
Ágúst Ólafur Ágú
stsson, vara-
formaður Samfylk
ingarinnar, og
Lúðvík Bergvinss
on þingflokks-
formaður vilja báð
ir að kosið verði
í vor. Raunar er m
eirihluti þing-
flokksins þeirrar s
koðunar.
Geir H. Haarde
forsætisráð-
herra er á öðru m
áli. Hann telur
mikið glapræði að e
fna til kosninga
nú enda standi ríki
sstjórnin í stór-
ræðum. Geir segir
Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur ut
anríkisráðherra
hafa staðfest við si
g í símtali í gær
að stjórnarsamsta
rf Sjálfstæðis-
flokks og Samfylk
ingarinnar væri
ekki í hættu.
Á fundi þingflokk
s Sjálfstæð-
isflokksins í gær
voru margar
hliðar pólitíska og
þjóðfélagslega
ástandsins ræddar
. Þótt þingmenn
væru sammála um
að óábyrgt væri
að boða til kosning
a nú eru sumir
þeirra þeirrar sko
ðunar að nauð-
synlegt sé að tíma
setja kosningar.
Með því væri mög
ulegt að koma á
ró í samfélaginu. Í
Kastljósi Sjón-
varpsins í gærkv
öldi sagði Geir
ekkert mæla geg
n því að kjósa
næsta vetur.
Geir hefur verið g
agnrýndur af
samflokksmönnum
sínum fyrir að
beita sér ekki fyri
r breytingum á
yfirstjórn Seðlaban
ka og Fjármála-
eftirlits.
Á fundi Samfylkin
garfélagsins
í Reykjavík í gærk
völdi sagði Lúð-
vík Bergvinsson
nauðsynlegt að
gera mannabreyti
ngar í stofnun-
um tveimur.
Formaður Framsók
narflokksins,
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson,
sagði í gær flokk s
inn reiðubúinn
að verja minnihluta
stjórn Samfylk-
ingarinnar og Vins
tri grænna falli,
gegn því að efnt ve
rði til kosninga
fyrir apríllok. Sam
fylkingin hefur
ekki áhuga á slík
u stjórnarsam-
starfi en Steingrím
ur J. Sigfússon
fagnaði hugmyndi
nni.
Áfram var mótmæ
lt af krafti við
Alþingi í gær þar
sem talið er að
vel á þriðja þúsund
mótmælendur
hafi komið saman.
Mótmælendur tók
u sér einnig
stöðu við Stjórna
rráðið þar sem
Geir H. Haarde, fo
rsætisráðherra
þurfti aðstoð lögre
glu við að kom-
ast frá Stjórnarráð
inu.
Á níunda tímanum
í gærkvöldi
kom hópur mótmæ
lenda saman við
Þjóðleikhúsið þar s
em Samfylking-
arfélagið í Reykja
vík fundaði um
framtíð stjórnarsa
mstarfsins.
Rætt verður um st
öðu efnahags-
mála og horfur á v
innumarkaði á
þingfundi sem hef
st klukkan hálf
ellefu í dag.
- bþs / sjá síður 4,
6, 8 og 10
FIMMTUDAGUR
22. janúar 2009 — 2
0. tölublað — 9. árga
ngur
Það væri gríðarleg
t ólán
fyrir allan almenn
ing í
landinu ... Kosning
ar í vor væru
mikið glapræði.
GEIR H. HAARDE
FORSÆTISRÁÐHERR
A
SVANHILDUR EINA
RSDÓTTIR
Fjölbreytt notagildi
flíkurinnar heillaði
• tíska • börn
Í MIÐJU BLA
ÐSINS
VIÐ STJÓRNARRÁÐ
IÐ Í GÆR Geir H. Haa
rde forsætisráðherra
þurfti liðsinni lögreg
lu við að komast frá
Stjórnarráðinu í gæ
r. Talið
er að um þúsund m
ótmælendur hafi ve
rið samankomnir og
héldu þeir uppi krö
fu um að boðað yrð
i til kosninga án tafa
r. Geir
afboðaði fund með
blaðamönnum sem
fara átti fram um ka
ffileytið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILH
ELM
ÞORRINN
Þorramatur, drykki
r
og hátíðabúningar
Sérblað um þorrann
FYLGIR FRÉTTABLA
ÐINU Í DAG
Jákvæðari
viðhorf
Q-félag hinsegin
stúdenta fagnar
tíu ára afmæli
um þessar
mundir.
TÍMAMÓT 26
Opið til 21
STORMUR Í dag verð
ur víða
norðaustan hvassvið
ri eða stormur,
hvassast suðaustan t
il og síðan
norðvestan til síðdeg
is. Rigning
eða slydda suðausta
n og austan til,
snjó- eða slydduél n
yrðra annars
úrkomulítið.
VEÐUR 4
1 1
3
4
2
Ungur og efnilegur
Hinn fjórtán
ára Valur Orri
Valsson hjá
Njarðvík er yngsti
leikmaður
Mikil spenna
Tilnefningar til Ósk-
arsverðlaunanna
verða kynntar
í dag.
ÁRNI RÚNAR HLÖÐ
VERSSON
Ætlar að kæra
lögregluna
Sárt að fá kylfur í bak
ið fyrir friðsöm mótm
æli
FÓLK 46
VEÐRIÐ Í DAG
Krafa um stjórnar
slit
og kosningar í vor
Samfylkingarfélag
ið í Reykjavík vill
slíta ríkisstjórnars
amstarfinu. Innan
þing-
flokks Sjálfstæðisf
lokksins eykst kra
fa um að flýta kos
ningum. Forsætisr
áð-
herra segir glapræ
ði að efna til kosn
inga nú. Mótmælt
er víða um land.
STJÓRNMÁL Mótmæ
lendur veittust
að bíl Geirs H. Ha
arde forsætis-
ráðherra við Stjór
narráðið í gær.
Þeir hentu eggjum
í bifreið hans
og kröfðust þess a
ð boðað yrði til
kosninga án tafar.
Geir þurfti aðstoð
lögreglu
við að komast af b
ílastæði sínu.
Aðspurður viðurke
nndi Geir að
sér hafi verið brug
ðið við ágang
fólksins.
- shá
Stjórnarráðið í gær:
Mótmælendur
veittust að Geir
KVIKMYNDIR 34
Sérgáfur til góðs
Thorkil Sonne vill nýta k
rafta
einhverfra á vinnumark
aði.
TILVERA 14
70
60
50
40
30
20
10
0
September
2008
Ágúst
2009
VÆNTINGARVÍSITALA
Capacent Gallup frá
september 2008 fram
til ágúst 2009
September
76,2
Nóvember 23,2
Apríl 39,0