Fréttablaðið - 03.10.2009, Side 34
34 3. október 2009 LAUGARDAGUR
Þ
að er ekki ólík-
legt að einmitt núna
séu ódauðleg verk
í s lensk ra l i s t a -
manna og hönnuða að
spretta upp úr jarð-
vegi kreppunnar. „Það gerist oft í
kreppuástandi að þeir sem hafa ríkt
ímyndunarafl og innsæi verða meira
skapandi. Mörg dæmi um þetta var
að sjá í kreppunni í Bandaríkjunum
árið 1930. Þá ávarpaði Roosevelt
forseti þjóðina með mikilli hvatn-
ingarræðu. Margir hafa síðan talað
um að þessi ræða hafi vakið þá til
umhugsunar um að breyta formi á
hlutum, til þess að tákna nýja tíma
og losa sig frá 19. öldinni. Upp úr
þessu spruttu margir af fremstu
hönnuðum 20. aldarinnar.“
Aðskilnaður við gamla hugsun og
að forma umhverfið öðruvísi hefur
sálræna þýðingu, segir Goddur.
Hann segir þetta eiga vel við hér,
nú þegar samfélagið er önnum kafið
við að hrista af sér ástandið sem
hér myndaðist á árunum eftir alda-
mótin. „Þegar við segjum „þetta er
svo rosalega 2007“ eigum við við
ímyndina af 35 ára gömlum karl-
manni, með bindi, í jakkafötum og
ofboðslega hrokafullan. Þetta er
staðalmyndin af ákveðinni fram-
komu sem fjármálafyrirtækin
beittu og notuðu. Þetta er táknmynd
ástandsins 2007.“
Krúttin kunna þetta
Tvennu segir Goddur öðru frem-
ur áhugavert að fylgjast með í upp-
byggingu samfélagsins. Í fyrsta
lagi líði listamönnum nú upp til
hópa betur, þrátt fyrir að enginn
hafi lengur efni á að styrkja þá. „Ef
það er einhver ein stétt manna sem
þekkir tilfinningalega, tilvistarlega
og fjárhagslega kreppu þá eru það
listamenn. Það er eiginlega eðlilegt
ástand hjá skapandi sálum. Þessi
ofgnótt styrkja og yfirborðslega
eyðsla í hluti sem skiptu engu máli
var óeðlileg, enda eyddu margir
listamenn stórum hluta styrkjanna í
vitleysu. Takmörkuð fjárráð fá hug-
myndaflugið af stað og skapa sam-
hjálp sem ómögulegt er að virkja
þegar nóg er af peningum.“
Í öðru lagi hafi heil kynslóð fólks
forskot á aðra; „krúttin“ sem lögðu
sig fram við að taka ekki þátt í öllu
því sem „2007“-lífsstíllinn bauð upp
á. „Upp úr aldamótunum – á sama
tíma og margir hópuðust í við-
skiptafræðina til að setjast á færi-
bandið hjá bönkunum – varð til við-
spyrna hjá stórum hópi ungs fólks.
Það hugsar um sjálfbærni og neitar
að nota merkjavörur. Það býr til tón-
list með barnaleikföngum og kann
að búa til gull úr vanefnum. Þetta
er fólkið sem við köllum krúttkyn-
slóðina. Einhvern veginn er hún
betur innréttuð til að lifa í kreppu
en nokkrir aðrir, því hún búin undir
þann hugsunarhátt að þurfa ekki og
vilja ekki munaðarvöru.“
Allir dönsuðu með
Þessi kynslóð þáði nú samt styrki
frá stórfyrirtækjum eins og bönk-
unum, eins og aðrir. „Já, margir létu
glepjast, enda var auðvelt að glepj-
ast á þessum tíma. Það var nán-
ast undantekning ef menn döns-
uðu ekki með. Landsbankinn hýsti
til dæmis Klink og Bank-smiðjuna
á sínum tíma, sem nýttist mörgum
listamönnum. Þetta er hálfóþægi-
legt, svona eftir á að hyggja, jafn-
vel þótt maður hafi aldrei séð bein
dæmi þess að menn hafi skipt sér af.
Þeir gerðu ekki mikið annað en að
borga rafmagn og gjöld af húsi sem
stóð autt en vildu reyndar setja lógó-
ið sitt á ýmsa atburði, sem ekki voru
allir sáttir við. Að mörgu leyti var
þetta verkefni Landsbankamönn-
um til sóma. Engu að að síður er
af þessu eitthvert óþægilegt eftir-
bragð. Ég efast um að svona nokkuð
gæti gerst hér á landi aftur. Það er
klárt mál að menn munu umgangast
peningaöflin á miklu varlegri hátt
en þeir gerðu áður.“
Ósérplægnin allsráðandi
Í vikunni fer fram í Reykjavík svo-
kölluð TedX-ráðstefna, þar sem
Goddur verður einn fyrirlesara.
„Ég byrjaði á því að horfa á Ted
fyrir tveimur til þremur árum.
Þetta snýst um að dreifa falleg-
um hugmyndum án þess að vilja
eitthvað í staðinn. Þarna opnast
rásir fyrir fólk sem hefur eitthvað
að segja.“ Á ráðstefnunni ætlar
Goddur að fjalla um líkingamál og
skilninginn.
Það er Hugmyndaráðuneytið
sem útfærir viðburðinn á Íslandi
en það varð til fyrir atbeina Guð-
jóns Más Guðjónssonar, sem kennd-
ur er við Oz, fljótlega eftir hrunið.
„Hugmyndafræði Hugmyndaráðu-
neytisins er altrúisminn, eða ósér-
plægnin, sem er andstæðan við
það ástand sem hér var, þar sem
hagnýta átti alla skapaða hluti.
Altrúisminn gengur út á að hugsa
út fyrir eyjuna – í persónulegri
merkingu og þjóðernislegri merk-
ingu. Að það sé mikill hagur í því
að hugsa út fyrir sitt egó og vinna
fyrir fleiri en sjálfan sig, hvort
sem hagnaðurinn af því er óbeinn
eða ekki. Þessi hugsunarháttur er
bráðsmitandi og hann er að verða
sýnilegur víða í samfélaginu. Þetta
þykir mér það besta við kreppuna.
Það byrjuðu allir að tala saman og
samvirknin fór í gang.“
Vitsmunirnir skapa ekki
Skapandi hugsun er nauðsynleg
uppbyggingunni og hana þarf fólk
að virkja hjá sjálfu sér, segir Godd-
ur. „Listamenn hafa síður en svo
einkarétt á skapandi hugsun. Og
fólk má ekki vera hrætt við að prófa
hlutina. Sumar hugmyndir eru and-
vana fæddar og standast ekki skoð-
un þegar farið er í að prófa þær. En
þetta veit maður aldrei fyrir fram.
Maður má ekki setja á sig svartan
hatt í upphafi ferils síns.“
Hann segir alla geta verið
skapandi, svo lengi sem hjarta fylgi
máli. „Það er ekki til formúla fyrir
skapandi vinnu. Gott dæmi til að
lýsa því hvernig það skapandi virk-
ar er að ímynda sér að maður sé að
spila borðtennis og að skíttapa. Þá
er pottþétt ráð til að snúa leiknum
sér í hag að hæla að hæla andstæð-
ingnum og spyrja hann svo snöggt:
„Hvernig ferðu að þessu?“ Þá er
eins og leikurinn hrynji hjá honum.
Hann getur ekki lengur leikið með
hjartanu. Öll bestu sköpunarverk
heimsins eru samin á þessum stað.
Hinum ómeðvitaða stað. Þau komu
frá einhverju öðru en hinu vits-
munalega. Vitsmunirnir eru ekki
það sem skapa. Það eru þeir sem
jarðbinda og koma í framkvæmd.
En þeir skapa ekki. Það gerir hjart-
að, tilfinningarnar og innsæið, sem
er í öllu fólki en er ofboðslega oft
bælt.“
Ellibálið
Hæfileikinn til að finna fyrir
straumum sinna tíma skilur á milli
þeirra sem eiga eftir að ryðja braut-
ina og hinna sem fylgja á eftir, segir
Goddur. „Allt þetta manngerða í
kringum okkur varð til í kollum
skapandi fólks sem sér fyrir það
óorðna. Stundum er sagt að þegar
menn horfi til baka sé enginn orgin-
al, heldur í besta falli týpískur. Þeir
verða frægastir sem hafa hæfileika
til að finna hvað liggur í loftinu og
geta tengt sig við þetta, hvort sem
það er í tónlist, myndlist, bílahönn-
un, arkitektúr eða einhverju allt
öðru.“
En hvaða straumum finnur hann
sjálfur fyrir í dag? „Það eina sem
við getum verið viss um er að núna
liggur straumurinn í ákveðna átt og
það er pottþétt að það muni koma
straumur á móti. Eitt einkenni
á því fólki sem hefur verið mest
áberandi á síðustu árum er að það
neitar að verða fullorðið. Það er í
sakleysisástandi, sem hefur sinn
sjarma. Nú er þrettán ára gömul
stelpa sem er með tískublogg orðin
algjört fenómen. Hún bloggar um
trend, nema að hún er öll í ömmu-
tískunni. Það er engu líkara en að
þessi stelpa geti ekki beðið eftir
að verða gömul. Hvað ef ungdóms-
dýrkunin væri liðin og við færum
allt í einu að dýrka gamla fólkið?
Maður getur ekki hugsað sér það
núna en það gæti samt skyndilega
orðið. Þetta gæti orðið að báli.“
Enginn einkaréttur á skapandi hugsun
Myndlistarmaðurinn, prófessorinn og hugvekjarinn Guðmundur Oddur Magnússon, best þekktur sem Goddur, hefur þann
sérstaka hæfileika að kunna að setja söguna í samhengi sem er öllum auðskiljanlegt. Í tilefni af ársafmæli hrunsins heimsótti
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir Godd á vinnustofu hans og bað hann um að bregða á sig gleraugum samfélagsrýnisins.
Á VINNUSTOFUNNI Goddur telur að tími jakkafataklæddra 35 ára hrokagikkja sé alveg örugglega liðinn. Íslenskir listamenn hafi lært af reynslunni og muni aldrei aftur hleypa peningaöflunum eins nærri sér.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
TED Í REYKJAVÍK
Á þriðjudaginn verður liðið eitt ár frá því að Geir Haarde lét hin fleygu
og ódauðlegu orð „Guð blessi Ísland“ falla þegar hann tilkynnti íslensku
þjóðinni að hún sæti í súpunni. Í tilefni af þessum tímamótum verður
haldin svokölluð TEDx-ráðstefna í Reykjavík. Ræðurnar þann daginn verða
ekki reiðilestrar heldur fullar af innblæstri frá mörgum af skemmtilegustu
fyrirlesurum landsins.
Goddur er einn þeirra en á ráðstefnunni ætlar hann að tala um skiln-
inginn. Edda Björgvinsdóttir leikkona mun fjalla um húmor í stjórnun og
Þorvaldur Þorsteinsson rithöfundur mun flytja fyrirlesturinn „Víða er þvottur
brotinn“. Fjöldi annarra kemur fram en í heild munu á bilinu fimmtán og
tuttugu manns taka til máls.
TED stendur fyrir Technology, Entertainment and Design – tækni,
afþreyingu og hönnun. TED-viðburðirnir hafa farið sigurför um heiminn og
eru áhugasamir hvattir til þess að fara inn www.ted.com þar sem sjá má
fjöldamörg dæmi um eðli fyrirlestranna.
TEDx Reykjavík fer fram á Hótel Loftleiðum á þriðjudaginn og hefst klukk-
an 10. Aðgangur er ókeypis.