Fréttablaðið - 03.10.2009, Qupperneq 38
38 3. október 2009 LAUGARDAGUR
■ Þetta er 25. viðureign félaganna
á aðeins fimm árum.
■ Chelsea hefur unnið tíu leiki,
Liverpool sjö og sjö hefur lyktað
með jafntefli.
■ Liverpool hefur ekki tapað fyrir
Chelsea í deildinni síðan í apríl
2007.
■ Chelsea hefur ekki skorað í
síðustu þremur deildarleikjum
sínum gegn Liverpoool, í samtals
298 mínútur.
■ Ef Chelsea tapar verður það í
fyrsta sinn síðan í maí 2006 sem
liðið tapar tveimur deildarleikjum
í röð.
■ Didier Drogba hefur skorað
í þremur deildarleikjum í röð.
Hann hefur aldrei skorað í fjórum
deildarleikjum í röð.
■ Frank Lampard hefur skorað í
fjórum af síðustu fimm heimaleikj-
um Chelsea gegn Liverpool.
■ Fernando Torres hefur skorað
fimm mörk í alls sex leikjum
sínum með Liverpool gegn
Chelsea.
■ Liverpool hefur ekki skorað jafn
mörg mörk í fyrstu sjö leikjum
tímabilsins (22) síðan 1895.
■ Fernando Torres (8 mörk)
og Didier Drogba (6 mörk) eru
markahæstu leikmenn sinna liða
en hafa bara skorað í deild-
inni til þessa.
STAÐREYNDIR UM
CHELSEA - LIVERPOOL
M
argir
bíða
spennt-
ir eftir
því
að sjá
hvort Didier Drogba eða
Fernando Torres hafi
betur þegar Chelsea
og Liverpool mæt-
ast á sunnudaginn
í einum af leikjum
tímabilsins í ensku
úrvalsdeildinni.
Leikur fer fram á
Brúnni í London
og hefst klukkan
15 að íslenskum
tíma.
Drogba og
Tor res er u
almennt taldir
vera tveir af allra
bestu framherjum heims og nú
koma þeir báðir til leiks sjóðandi
heitir og lausir við öll meiðsli.
Samkvæmt tölfræðinni og Actim
Index-heimasíðu ensku úrvals-
deildarinnar eru þarna á ferð-
inni tveir bestu leikmenn ensku
úrvalsdeildarinnar í fyrstu sjö
umferðunum.
Þeir Fernando Torres og Didier
Drogba eru báðir miklir marka-
skorarar og framherjar í heims-
klassa en þeir eru samt mjög ólíkir
leikmenn. Vissulega hjálpa líkam-
legir hæfileikar þeim í viðskipt-
um sínum við varnarmennina en
á meðan Drogba fer meira áfram
á gríðarlegum krafti og brjáluðu
keppnisskapi er Torres meira
í því að rugla varnarmenn í
ríminu með útsjónarsemi
og óvæntum stefnu-
breytingum.
Fernando
Torres er marka-
hæstur í deildinni
í fyrstu sjö umferðun-
um en hann hefur skorað 8 mörk
í 7 leikjum, þar af fimm mörk í
síðustu tveimur leikjum liðsins,
á móti West Ham (3-2) og Hull
(6-1). Hann er markaskorari af
guðs náð og sérfræðingur í að
nýta sér smá pláss í vítateignum.
Hann sameinar hraða, sprengi-
kraft og tækni til að skapa sér
forskot á varnarmennina en hann
fer þó lengst á því hversu mark-
sækinn og útsjónarsamur hann
er að búa sér til skotfæri inni í
vítateignum.
Torres getur líka skorað mörk
í öllum regnbogans litum, með
vinstri, hægri eða skalla, inni í
markteig eða utan teigs. Torres
hefur aðeins gefið eina stoðsend-
ingu á tímabilinu enda leitar hann
fyrst og fremst að skotfæri fyrir
sjálfan sig þegar hann er kominn
inn á hættusvæðið.
Didier Drogba hefur skor-
að tveimur mörkum færra en
Torres en hann hefur samt komið
að fleiri mörkum þökk sé fjórum
stoðsendingum á félaga sína
í Chelsea-liðinu. Aðeins
Ryan Giggs hjá Manchest-
er United hefur átt fleiri
stoðsendingar til þessa
á tímabilinu.
Dider Drogba er
gríðarlega kraft-
mikill leikmað-
ur sem hefur
mikinn
hraða
og styrk
sem gerir
hann erf-
iðu við að
eiga fyr ir alla varn-
armenn. Hann hefur verið gagn-
rýndur fyrir að láta sig mikið
detta og fara illa með færin en á
góðum degi standast honum fáir
snúning.
Mörkin sem hann skorar eru
oftast af glæsilegri gerðinni en
margir eru á því að hann hafi
ekki neitt sérstakt markanef held-
ur komist svo langt á einstökum
líkamlegum hæfileikum og rosa-
legu keppnisskapi. Á þessu tíma-
bili hefur Drogba einnig skapað
mikið af færum fyrir félaga sína
og hefur samvinna hans og Nicol-
as Anelka gengið sérstaklega
vel.
Það hefur verið ólíkt gengi hjá
þeim félögum í innbyrðisleikj-
um Chelsea og Liverpool í ensku
úrvalsdeildinni síðustu tíma-
bil. Torres hefur skorað í báðum
deildarleikjum sínum á móti Chel-
sea, samtals 3 mörk, en Drogba
hefur ekki náð að skora í síðustu
þremur deildarleikjum sínum á
móti Liverpool.
Það verður örugglega gaman
að fylgjast með tveimur heit-
ustu framherjum ensku úrvals-
deildarinnar mæta til leiks full-
fríska og í fanta formi. Það er því
engin ástæða til þess að missa af
leiknum á sunnudaginn.
Tveir heitustu leik-
mennirnir í dag
Fernando Torres og Didier Drogba hafa verið sjóðandi heitir í byrjun
tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni og því verða allra augu á þessum köpp-
um þegar Chelsea og Liverpool mætast í stórleik helgarinnar á morgun.
Liverpool gekk einstaklega vel í inn-
byrðisbaráttu efstu liðanna í ensku
úrvalsdeildinni á síðasta tímabili
og átti það mikinn þátt í velgengi
liðsins. Liverpool fékk fullt hús út
úr fjórum leikjum sínum á móti
Manchester United og Chelsea, sem
á sama tíma fengu aðeins fjögur
(United) og eitt stig (Chelsea) út úr
innbyrðisleikjum þriggja efstu liða
deildarinnar.
Á morgun heimsækja Liverpool-
menn Chelsea á Stamford Bridge,
þar sem þeir unnu sögulegan sigur
í lok október í fyrra. Liverpool varð
þá fyrsta liðið í 86 leikjum til þess
að vinna Chelsea á Brúnni. Seinna
á tímabilinu mættust liðin reyndar
aftur í Meistaradeildinni á Brúnni og
sá leikur endaði með 4-4 jafntefli.
Chelsea sló Liverpool þar með út
úr Meistaradeildinni en þegar kom
að deildinni tóku Liverpool-menn
öll stigin.
Xabi Alonso tryggði Liverpool
1-0 sigur á Chelsea á Stamford
Bridge 26. október með marki
strax á tíundu mínútu leiksins
en í seinni leiknum á Anfield
voru það tvö mörk Fernando
Torres á síðustu tveimur mínút-
um sem tryggðu Liverpool
2-0 sigur. Liverpool vann
Manchester United 2-1 á
Anfield 13. september þar
sem Hollendingurinn
Ryan Babel skoraði sig-
urmarkið á 77. mínútu
og Liverpool vann
síðan 4-1 stórsigur á
Old Trafford þar sem
Fernando Torres,
Steven Gerrard,
Fábio Aurélio og
Andrea Dossena skoruðu mörkin.
Man. United vann síðan 3-0 sigur á
Chelsea á heimavelli
og liðin gerðu 1-1
jafntefli á Brúnni.
Leikurinn á morg-
un verður fyrsti
leikur tímabilsins
milli þriggja efstu
liðanna frá því á
síðasta tímabili
og það verður
því fróðlegt
að sjá hvort
Liverpool-menn
hafi enn tak á
hinu toppliðum
ensku úrvals-
deildarinnar.
LIVERPOOL VAR MEÐ FULLT HÚS Á MÓTI
MAN. UNITED OG CHELSEA Á SÍÐASTA TÍMABILI
25 ára framherji Liverpool
Leikir 7
Mínútur 583
Mörk 8
Stoðsendingar 1
Þáttur í mörkum 9
Mín. á milli skoraðra marka 72,9
Mín. á milli skapaðra marka 64,8
FERNANDO TORRES
31 árs framherji Chelsea
Leikir 7
Mínútur 601
Mörk 6
Stoðsendingar 4
Þáttur í mörkum 10
Mín. á milli skoraðra marka 100,2
Mín. á milli skapaðra marka 60,1
DIDIER DROGBA
Petr Cech mun ekki spila með Chel-
sea í leiknum og mun því Portú-
galinn Henrique Hilario að öllum
líkindum standa í marki þeirra
bláklæddu. Það er þó ekki
útilokað að Russ Turnbull fái
sitt fyrsta tækifæri hjá Chelsea
síðan hann kom frá Middles-
brough í sumar. Cech fékk
að líta rauða spjaldið í leik
við Wigan um síðustu helgi
og tapaði Chelsea leiknum
óvænt, 3-1. Þetta var fyrsta
tap liðsins á tímabilinu
og missti það þar með
toppsæti deildarinnar til
Manchester United.
Michael Ballack missti
af leiknum gegn Wigan
en hefur jafnað sig af
meiðslum sínum og ætti því að
tekið þátt í leiknum á morgun. Hið
sama má segja um Javier Maschera-
no hjá Liverpool en hann missti af
leik sinna manna gegn Fiorentina
þar sem hann hefur verið meiddur
í vöðva aftan á læri. Daniel Agger
er nýkominn aftur af stað
eftir að hafa gengist undir
aðgerð á baki og spilaði
með varaliði félagsins
í vikunni. Það er þó
ólíklegt að hann komi
við sögu á morgun.
John Obi Mikel er
fjarverandi hjá Chelsea
vegna meiðsla og
þeir Alex og Daniel
Sturridge eru báðir
tæpir.
PETR CECH Í BANNI
Carlo Ancelotti tók við Chelsea í
sumar en hann var áður þjálfari
AC Milan í átta ár. Á þeim tíma
mætti hann Liverpool tvívegis í
úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu
en Rafael Benitez var stjóri liðsins
í bæði skiptin og er vitanlega enn
í dag. Árið 2005 vann Liverpool
ævintýralegan sigur í úrslitaleiknum
eftir framlengingu og víta-
spyrnukeppni. AC Milan hafði
komist 3-0 yfir í leiknum en
Liverpool tókst að
jafna metin áður
en leiknum lauk.
Tveimur árum síðar
mættust þessi lið á
nýjan leik og þá náðu
Ancelotti og hans menn
fram hefndum.
Það er þó líklegt að þessir leikir
verða ekki ofarlega í huga stjóranna
enda vilja þeir báðir fyrst og fremst
koma sínum liðum aftur á beinu
brautina. Chelsea tapaði nefnilega
óvænt fyrir Wigan í deildinni um
síðustu helgi og var allt annað en
sannfærandi gegn APOEL Nicosia
frá Kýpur í Meistaradeild Evrópu
á miðvikudaginn.
Liverpool vann að
vísu stórsigur á Hull,
6-1, í deildinni um
síðustu helgi en rann
svo heldur betur á
rassinn í Meistara-
deildinni í vikunni
er liðið tapaði fyrir
Fiorentina á útivelli,
2-0.
BENITEZ OG ANCELOTTI MÆTAST Á NÝ
LEIKIR INNBYRÐIS MILLI
ÞRIGGJA EFSTU LIÐANNA
2008-09
2008
13. september Liverpool-Man. Utd 2-1
21. sept. Chelsea-Man. Utd 1-1
26. október Chelsea-Liverpool 0-1
2009
11. janúar Man. Utd-Chelsea 3-0
1. febrúar Liverpool-Chelsea 2-0
14. mars Man. Utd-Liverpool 1-4
Stig liðanna:
Liverpool 12 stig (9-2)
Manchester United 4 stig (6-7)
Chelsea 1 stig (1-6)