Fréttablaðið - 03.10.2009, Blaðsíða 43
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
„Fyrri hluta laugardagsins verð
ég staddur í stúdíói með hluta af
Kaput-hópnum. Við erum að vinna
verkefni með Þorvaldi Bjarna og
Ingveldi Ýr söngkonu og ætlun-
in er að gefa út plötu fyrir jólin,“
segir Guðni Franzson um helgar-
plön sín. Inntur nánar eftir inni-
haldi plötunnar gefur hann upp
að þetta verði létt klassísk tónlist
með poppuðu ívafi. „Þarna verða
lög eftir tónskáld á borð við Bizet
og Poulenc en íslenskar perlur
verða inni á milli.“
Síðari hluti laugardagsins fer í
að undirbúa tónleika sem verða í
Gerðubergi klukkan 14 á sunnu-
daginn. Tónleikarnir kallast Tóney
og mun Guðni þar spila hlutverk
Tóneyjarjarlsins sem kynnir dag-
skrána auk þess sem hann grípur
í einhver hljóðfæri.
„Þetta verða alþýðlegir tón-
leikar fyrir fólk á öllum aldri.
Þar geta foreldrar, afar, ömmur,
frændur og frænkur komið með
börnin og átt músíkalska stund
saman,“ útskýrir Guðni og bendir
á að þetta séu alls ekki formlegir
tónleikar þar sem allt sé uppstillt
og stýrt. „Svo koma gestir eins og
rokkbandið Agent Fresco og tveir
dansarar úr Listdansskóla Íslands.
Ætlunin er að Tóney verði með
eina tónleika í Gerðubergi einn
sunnudag í mánuði.“
Tóney er þó fyrst og fremst
tómenntaverkefni sem Guðni setti
af stað fyrir tveimur árum. Hann
rekur lítinn skóla undir því nafni
og setur upp námskeið í hljóðfæra-
leik. „Við komum einnig að tón-
menntakennslu í nokkrum grunn-
skólum á borð við Sæmundarskóla
og Langholtsskóla. Við höfum
einnig starfað mikið í Fellaskóla,
sem er sérstakur fyrir þær sakir
hvað hann er alþjóðlegur,“ segir
Guðni en nokkrir krakkar úr skól-
anum munu taka þátt í tónleikun-
um á sunnudag.
Á sunnudagsmorguninn ætlar
Guðni að sofa út, alveg til klukkan
níu. Eftir tónleikana á hann örlít-
inn tíma fyrir fjölskylduna. „Ég
hugsa að ég fari í sundlaugina og
slaki á,“ segir Guðni en stefnan er
sett á Vesturbæjarlaugina, sem er
nánast í bakgarðinum hjá tónlist-
armanninum. Hann telur líklegt
að hann muni liggja í pottunum að
þessu sinni. „Ég hef svo sem tekið
sundtímabil en nú er ég á potta-
stiginu,“ segir hann glettinn.
Um kvöldið verður fjölskyldu-
verður sem er fastur liður í hverri
viku. „Það er eina máltíðin sem öll
fjölskyldan borðar saman en aðra
daga eru flestir út og suður og
með sitt eigið prógramm í gangi,“
segir Guðni.
solveig@frettabladid.is
Verður í hlutverki Tón-
eyjarjarlsins um helgina
Haustið er annasamur tími hjá tónlistarmanninum Guðna Franzsyni. Um helgina leikur tónlistin að
vanda stórt hlutverk í dagskránni en aðalverkefnið tengist alþýðlegum tónleikum í Gerðubergi. Þar geta
foreldrar, afar og ömmur komið með börnin og átt saman músíkalska stund á léttum nótum.
Guðni Franzson ásamt nokkrum nemendum Tóneyjar. Fyrir miðju situr Huginn Sveinbjörnsson sem lærir á klarinett hjá Guðna og
mun einnig spila lag á tónleikunum á morgun. Þær Hjördís Þóra, Kristín Sesselja og Katla Rún eru nýbyrjaðar í skólanum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HAUKUR SNORRASON ljósmyndari spjallar við gesti um ljós-
myndasýningu sína í forsal Gallerís Foldar sunnudaginn 4. október
frá klukkan 14 til 16. Er þetta síðasta sýningarhelgin. Verk Hauks eru
ekki hefðbundnar landslagsmyndir heldur tekur landið á sig ýmsar
birtingarmyndir, liti og form sem eru ráðandi þáttur í verkum hans.
Í BOÐI ER:
Á ENSKU OG DÖNSKU
Á ENSKU Á DÖNSKU
HJÁ VIA UNIVERSITY COLLEGE (VITUS BERING DENMARK)
Í HORSENS BJÓÐUM VIÐ UPP Á MARGVÍSLEGA MENNTUN
02.10-09.10.2009.
VIA UNIVERSITY COLLEGE
CHR. M. ØSTERGAARDS VEJ 4
DK-8700 HORSENS
TEL. +45 8755 4000
FAX: +45 8755 4001
MAIL: TEKMERK@VIAUC.DK
WWW.VIAUC.DK
NÁM Í
DANMÖRKU
10
77
, 0
3.
09
.,
m
ar
h
S k e i f u n n i 3 j · S í m i 5 5 3 8 2 8 2 · w w w . h e i l s u d r e k i n n . i s
• opnar orkuflæði
• slökun
• losar um spennu og kvíða
• dregur úr verkjum
• styrkir líkamann
• o.fl.
Ta i c h i f y r i r l í k a m a o g s á l
Hópa- og einkatímar