Fréttablaðið - 03.10.2009, Side 45
LAUGARDAGUR 3. október 2009
...ég sá það á visir.is
SKÓLALÍFIÐ
ER Á VISIR.IS
Skólalíf er fyrsti fréttavefur sinnar
tegundar á Íslandi þar sem framhalds-
skólanemar birta fréttir og myndir frá
félagslífi skólanna, auglýsa viðburði
og þú getur nálgast vefútgáfur
skólablaðanna.
Við viljum bjóða þinn skóla velkominn
á fréttavef framhaldskólanna á visir.is.
„Upphaflega var farið af stað með
Hrútadaginn því þetta svæði hér,
Melrakkaslétta, Axarfjörður og
Þistilfjörður, er það eina á landinu
sem ekki hefur verið sýkt af ein-
hverri búfjárveiki og því getur fólk
úr öðrum landshlutum keypt lifandi
fé héðan. Við hins vegar megum ekki
kaupa fé né hey neins staðar annars
staðar af landinu,“ segir Einar E. Sig-
urðsson, einn þeirra sem halda utan
um Hrútadaginn. Framtakssamir
bændur á svæðinu hleyptu Hrúta-
deginum af stokkunum.
„Hér áður fyrr voru menn að koma
og fara á milli bæja í leit að hrútum
en nú hefur fólki verið gert auðveld-
ara fyrir með því að halda Hrútadag-
inn þar sem allir geta komið og skoð-
að hrútana á einum stað í október.“
Setning Hrútadagsins verður
klukkan 14 og sala á hrútum hefst
upp úr því en klukkan 15 hefst
Íslandsmeistarakeppni í kjötsúpu-
gerð. Allir sem vilja taka þátt í kjöt-
súpukeppninni eiga að koma með
sex lítra af kjötsúpu með sér og gefa
gestum sem ásamt fimm sérstökum
kjötsúpudómurum skera úr um hver
sé besta súpan. Keppnisreglur kveða
á um að nota verður íslenskt kjöt og
allra helst af hrútum.
„Markaðsstemning er svo ríkj-
andi allan daginn þar sem handverk
í kringum sauðkindina og aðrar lista-
vörur eru til sýnis og sölu. Síðustu
þrjú árin höfum við staðið fyrir hag-
yrðingakeppni en í ár var ákveðið
að breyta til og hafa söngskemmtun
þess í stað í félagsheimilinu Hnit-
björgum sem hefst klukkan níu um
kvöldið og þar munu Álftagerðis-
bræður fara með söng og gamanmál.
Það ættu því allir að geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi því um kvöldið er
svo slegið upp dansleik.“ Dansleikur-
inn hefst klukkan ellefu um kvöldið
og mun Hrútabandið leika fyrir
dansi. juliam@frettabladid.is
Um 200 hrútar til sölu
Hrútadagurinn á Raufarhöfn er haldinn í dag í Faxahöll, í þriðja sinn. Allt gistirými er upppantað í bæn-
um en fólk kemur víðs vegar að til að velja sér hrúta og taka þátt í kjötsúpukeppni.
Myndarlegur hrútur líkt og þeir sem verða til sölu á Raufarhöfn í dag.
Írsk menningarhátíð stendur yfir
í Kópavogi fram til 11. október.
Segja má að írsk stemning ríki
í Kópavogsbæ þessa daga, enda
stendur yfir írsk menningarhátíð
sem gefur forvitnilegt sjónarhorn
á menningu og listir frændþjóðar
okkar Íra.
Setning menningarhátíðarinnar
fór fram í gær við opnun þriggja
sýninga í Gerðarsafni: á sam-
tímagrafík úr safneign Listasafns
Írlands, kúrökkum, það er skinn-
bátum frá vesturströnd Írlands, og
veggspjöldum frá 20. öld með aug-
lýsingum um Írlandsferðir.
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, opnaði sýningarnar
en Gunnsteinn Sigurðsson, bæjar-
stjóri í Kópavogi, setti menningar-
hátíðina.
Af nógu verður að taka meðan
á hátíðinni stendur. Má þar nefna
hinn heimsþekkta RAGÚS hóp,
sem syngur og dansar að írsk-
um sið, fiðlusnillingarnir FIDIL
koma fram í Salnum, boðið verð-
ur upp á ljóðakvöld, stuttmynd-
ir og fræðslukvöld svo fátt eitt sé
nefnt. Síðast en ekki síst má nefna
írska píanósnillinginn John O´Con-
or sem heldur tónleika í Salnum í
dag klukkan 17.
Dagskrána í heild sinni má finna
á heimasíðu Kópavogsbæjar, www.
kopavogur.is. Þar er sömuleiðis að
finna fyllri upplýsingar um einstök
atriði menningarhátíðarinnar.
- rve
Forvitnilegt sjónar-
horn á frændþjóð
Eitthvað verður við allra hæfi á írskri menningarveislu í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Boðið er upp á opinn kynning-
artíma í hláturjóga í heilsumið-
stöðinni Manni lifandi, Borgar-
túni 24, í dag frá klukkan 10.30
til 11.30.
Þeir eru líklega ófáir sem velt
hafa fyrir sér spurningunni „Hvað
er hláturjóga?“ í gegnum tíðna.
Áhugasömum er boðið upp á svör
við þeirri spurningu í máli, mynd-
um og verklegum æfingum í dag.
Ásta Valdimarsdóttir, hláturjóga-
kennari og hláturambassador, full-
yrðir að hláturjóga þjálfi líkama,
hugsun og sál, efli jákvæðni og sé
kjörinn vettvangur til að virkja
samheldni í fjölskyldunni, meðal
vina og að njóta góðrar stundar í
góðum hópi.
Allir eru velkomnir í Mann lif-
andi í dag. Tíminn kostar 1.000
krónur fyrir fullorðna. - kg
Opinn hlát-
urjógatími
Talið er að hláturjóga þjálfi líkama,
hugsun og sál.