Fréttablaðið - 03.10.2009, Page 46
3. október 2009 LAUGARDAGUR4
Íþrótta- og Ólympíusamband
Íslands (ÍSÍ) stendur fyrir alþjóð-
legum göngu- og stafgöngudegi
í fimmta sinn í dag.
Gengið verður frá Reykjavík,
Ísafirði, Bolungarvík, Varma-
hlíð, Egilsstöðum, Eskifirði og
Reykjanesi. ÍSÍ hvetur fólk til að
mæta og taka þátt í þessum degi
þar sem stafgönguleiðbeinendur
ÍSÍ taka á móti þátttakendum og
leiðbeina um rétta notkun stafa.
Allir eru velkomnir og þátttaka
er ókeypis.
Íþrótta- og Ólympíusamband
Íslands er aðili að TAFISA (Trim
& Fitness International Sport for
All Association), sem hefur staðið
fyrir alþjóðlegum göngudegi frá
árinu 1991.
Nánari upplýsingar um alþjóð-
lega göngudaginn, TAFISA og
stafgöngu er að finna á vef ÍSÍ
www.isi.is. - kg
Alþjóðlegur
göngudagur
Gengið verður frá Reykjavík, Ísafirði,
Bolungarvík, Varmahlíð, Egilsstöðum,
Eskifirði og Reykjanesi.
Mexíkóskur matur og blústónlist
verða allsráðandi á veitinga-
staðnum Kryddlegnum hjörtum
í kvöld.
„Ég ætla að fá hingað til mín nokkra
frábæra tónlistarmenn sem ætla að
töfra fram seiðandi tóna fyrir gesti
og gangandi,“ segir Íris Hera Norð-
fjörð, eiganda veitingastaðarins
Kryddleginna hjartna við Skúla-
götu 17, þar sem blúshljómsveitin
Bandið hans pabba stígur á stokk í
kvöld klukkan 21.
Íris segist allt frá opnun staðar-
ins hafa alið með sér þann draum
að hafa þar lifandi tónlist um
helgar. Nú sé draumurinn orðinn
að veruleika. „Þegar ég stofnaði
Kryddlegin hjörtu keypti ég flott-
ar hljómgræjur, en hafði ekki fjár-
muni fyrr en nú til að koma þeim
upp,“ útskýrir hún.
Að sögn Írisar eru tónleikarn-
ir í kvöld aðeins upphafið. Ætl-
unin sé síðan að halda svokölluð
„open mike“-kvöld að bandarískri
fyrirmynd um helgar í vetur. „Þetta
er alls ekkert karíókí. Þarna gefst
upprennandi tónlistarfólki færi á
að spreyta sig. Í leiðinni hefst leit
að fólki í húsband, þar sem áhersl-
an verður á blús og jafnvel djass,
enda nóg komið af poppi og rokki,“
segir hún og hlær.
Þar að auki breytist matseðillinn
um helgina og verður mexíkóskur
matur allsráðandi. „Ég hef feng-
ið til mín tvo gestakokka, Alberto
Marquez og Lilju Hallgríms-
dóttur, til að elda ofan í gestina,“
útskýrir Lilja, „þannig að hér
verður mexíkósk veisla og músík
allsráðandi.“ - rve
Mexíkóskur matur
og lifandi tónlist
Mexíkóskur matur verður á boðstólum á
Kryddlegnum hjörtum í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Búist er við þúsundum gesta á sýn-
inguna Matur-inn 2009 sem verður
haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri
í dag og á morgun en þar verða
sýningarbásar frá á fjórða tug
aðila, markaðstorg, matreiðslu-
keppnir og margt fleira.
Sýningin hefur verið haldin á
tveggja ára fresti frá árinu 2003 þó
að fyrsti vísir að henni hafi orðið
til fyrir um tíu árum. „Þá fengum
við keppnina Matreiðslumaður árs-
ins hingað norður og héldum smá
hóf í kringum hana en fyrsta stóra
sýningin fór fram árið 2005. Þá tók
á þriðja tug aðila þátt og í kjölfar-
ið varð félagið Matur úr Eyjafirði
– Local food til,“ segir Friðrik V.
Karlsson, stjórnarmaður Matar í
Eyjafirði og eigandi veitingastað-
arins Friðriks V.
Félagið stendur að sýningunni
í góðu samstarfi við Þingeyska
matarbúrið og Matarkistuna
Skagafjörð. Hún hefur fram að
þessu verið haldin í Verkmennta-
skólanum á Akureyri en þar sem
gestafjöldinn fór yfir tíu þúsund
árið 2007 var ákveðið að flytja
viðburðinn í Íþróttahöllina.
Friðrik segir um sannkallaða
uppskeruhátíð að ræða í takt við
árstíðina. „Þarna verður hægt að
kaupa sunnudagssteikina, kart-
öflur og ferskt grænmeti en líka
slátur og skólabjúgu í frystinn. Þá
munu fyrirtæki og félög kynna
það besta sem þau hafa upp á að
bjóða auk þess sem við stöndum
fyrir þrenns konar keppnum sem
við væntum að muni vekja athygli
gesta. Fyrst má nefna keppni í
borgaragerð sem er öllum opin.
Þá er keppni á milli Þingeyinga,
Skagfirðinga og Eyjafirðinga í
fiskisúpugerð og síðast en ekki
síst keppni þar sem þjóðþekktir
einstaklingar reyna með sér,“
upplýsir Friðrik. Að þessu sinni
eru það þau Kristján Þór Júlíus-
son alþingismaður, Sigrún Stefáns-
dóttir bæjarfulltrúi, María Sigurð-
ardóttir, leikhússtjóri Leikfélags
Akureyrar, og Svavar Jónsson
sóknarprestur sem munu keppa.
Samhliða sýningunni verður efnt
til málþings um íslenskan mat en
markmið þess er að efla umræðu
um íslenskan mat og matarhefð-
ir meðal fagfólks og almennings.
„Áhugi á íslenskum mat hefur auk-
ist í kreppunni en mér finnst við
þurfa að skilgreina hann betur.
Þetta snýst ekki bara um slátur
og hrútspunga heldur þurfum við
að færa allar þessar fallegu hefð-
ir eins og kjötsúpuna og plokk-
fiskinn til nútímans. Það er í það
minnsta mitt mat og verður fróð-
legt að sjá hvað kemur út úr
málþinginu.“
Friðrik, sem er mikill
áhugamaður um matar-
sýningar, sér fyrir sér að
hátíðin muni breiða úr sér
út um allan bæ þegar fram
líða stundir. „Ég sé
fyrir mér Íþrótta-
höllina fulla af
kjöti, höfnina
fulla af fiski,
í leikhús-
inu verði
leiksýn-
ing um
mat, í
listasafn-
inu verði
myndlist-
arsýning um
mat og í bíóinu
kvikmynd um
mat.“
vera@frettabladid.is
Uppskeruhátíð Norðlendinga
Rúmlega tíu þúsund manns mættu á sýninguna þegar hún
var síðast haldin, árið 2007, og var því ákveðið að færa hana
úr Verkmenntaskólanum á Akureyri yfir í Íþróttahöllina að þessu
sinni. Friðrik sér fyrir sér að hátíðin muni breiða úr sér út um
allan bæ þegar fram líða stundir. MYND/ÚR EINKASAFNI
Norðlendingar bera uppskeru sína á borð á sýningunni Matur-inn
2009 sem verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri um helgina. Þar
verða sýningarbásar, markaðstorg, matreiðslukeppnir og málþing
meðal dagskrárliða.
Ísbíltúrinn er löngu orðinn hefð hjá mörgum
fjölskyldum. Mekka íssins er líklega Hvera-
gerði þar sem Kjörís rekur verksmiðju sína
auk þess sem enn er hægt að fá góðan ís í
Eden þótt staðurinn heiti í dag Iðavellir.
www.idavellir.is
Hjálpaðu
umhverfinu
með
Blaðberanum
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...