Fréttablaðið - 03.10.2009, Page 48
3. október 2009 LAUGARDAGUR6
HUGVÍSINDASVIÐ
Verkefnastjóri
á skrifstofu Hugvísindasviðs
Á skrifstofu Hugvísindasviðs er laust til umsóknar starf
verkefnastjóra deilda.
Verkefnastjóri er tengiliður milli deilda og stjórnsýslusviðsins og sinnir margvíslegri þjónustu við
nemendur og kennara, ásamt tilfallandi verkefnum.
Starfið felur meðal annars í sér umsjón með námsferlum nemenda, upplýsingagjöf til nemenda
um reglur og uppbyggingu náms, vinnu við kennsluskrá og brautskráningu, liðveislu við kennara,
kynningarstarf og tengsl milli deildarstjórnenda og skrifstofu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Krafist er háskólaprófs, æskilegt að það sé á sviði hugvísinda
Mjög góð íslenskukunnátta og færni í rituðu máli
Góð enskukunnátta
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði, metnaður, sjálfstæði í störfum og sveigjanleiki er skilyrði
Þekking á háskólaumhverfinu er kostur
Nánari upplýsingar veitir Óskar Einarsson rekstrarstjóri; netfang: oe@hi.is; sími: 525 5236.
Um er að ræða krefjandi og áhugavert starf í metnaðarfullu umhverfi.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 12. október 2009.
Sjá nánar á www.starfatorg.is
og www.hi.is/is/skolinn/laus_storf
HUGVÍSINDASVIÐ
Reykjalundur
Iðjuþjálfun
Lausar eru 2 afl eysingarstöður vegna fæðingarorlofa í iðjuþjálfun á
Reykjalundi. Annars vegar er um að ræða 90% stöðu á lungasviði
frá 1. janúar n.k. til ársloka 2010. Á lungasvið koma skjólstæðin-
gar með margbreytilega lungnasjúkdóma sem krefjast einstak-
lingsmiðaðrar íhlutunar.
Hins vegar er um að ræða 90% stöðu á gigtarsviði frá 1. janúar til
ársloka 2010. Á gigtarsvið koma skjólstæðingar með ýmsa gigtar-
sjúkdóma og færnivanda tengda þeim sem krefjast fjölbreyttrar
íhlutunar.
Á Reykjalundi er starfað í öfl ugri teymisvinnu þar sem lögð er
áhersla á skjólstæðingsmiðaða nálgun, fræðslu í hópum og
heildræna sýn.
Hæfnikröfur: Próf í iðjuþjálfun frá skóla viðurkenndum af
Heimssamtökum iðjuþjálfa (WFOT) og með íslenskt starfsleyfi og
löggildingu. Launakjör samkvæmt kjarasamningi Iðjuþjálfafélags
Íslands.
Á Reykjalundi fer fram endurhæfi ng á 9 sviðum.
Á iðjuþjálfunardeildinni starfa 17 iðjuþjálfar og 4 aðstoðarmenn.
Nánari upplýsingar veitir Lilja Ingvarsson forstöðuiðjuþjálfi |
í síma 585-2153 og með tölvupósti, liljaing@reykjalundur.is
Umsóknarfrestur er til 17.október 2009.
Iceland Travel og VITA
eru hluti af Icelandair Group.
Umsóknarfrestur er til 12. október.
Frekari upplýsingar veita Helgi
Eysteinsson framkvæmdarstjóri eða
Ragnheiður Valdimarsdóttir
starfsþróunarstjóri.
Umsóknir skal senda á
ragnheidurv@icelandtravel.is
Iceland Travel er leiðandi fyrirtæki í ferðaþjónustu
á Íslandi. Fyrirtækið er hluti af Icelandair Group og
hefur í rúm 30 ár sérhæft sig í móttöku erlendra
ferðamanna frá öllum heimshornum sem og
skipulagningu ráðstefna á Íslandi.
Ferðaskrifstofan VITA var stofnuð í júní 2008 og
er rekin af Iceland Travel. Helsta markmið
ferðaskrifstofunnar er að bjóða upp á fjölbreytt
úrval ferða í leiguflugi með góðri þjónustu og
tryggum flugkosti á samkeppnishæfu verði..
Hjá Iceland Travel og VITA starfa um 70 manns
sem þjóna rúmlega 40 þúsund viðskiptavinum á
ári hverju.
Starfssvið
• Almenn fjármálastjórnun• Áætlunargerð• Umsjón með fjárhags- og stjórnendaupplýsingum• Fjárstýring og áhættustýring• Samskipti við endurskoðendur og eftirlitsaðila• Þátttaka í tekjustýringu og verðlagningu• Þátttaka í stefnumótun• Fjármálastjóri tilheyrir yfirstjórn fyrirtækisins
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf í viðskiptafræði eða sambærileg menntun
– áhersla á reikningshald og fjármál æskileg
• Reynsla af fjármálastjórnun og áætlunargerð skilyrði • Þekking á reikningsskilum og bókhaldi nauðsynleg • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð• Metnaður til að ná árangri í starfi• Góðir samskiptahæfileikar
Skútuvogi 13 a
104 Reykjavík
585 4300
icelandtravel.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
4
74
96
1
0/
09
Iceland Travel
Iceland Travel óskar eftir að ráða öflugan fjármálastjóra. Leitað
er að einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt og hefur víðtæka
fjármála- og rekstrarþekkingu. Viðkomandi þarf að hafa góða
þekkingu á bókhaldi og uppgjöri fyrirtækja.
Fjármálastjóri