Fréttablaðið - 03.10.2009, Blaðsíða 54
3. OKTÓBER 2009 LAUGARDAGUR4 ● bleika slaufan
Sigríður Snæbjörnsdóttir,
formaður Krabbameinsfélags-
ins, segir stuðning almennings
ótrúlega mikinn við félagið
en brýnt sé að forgangsraða
verkefnum enn frekar til að
tryggja áframhaldandi góða
þjónustu við þá sem stríða við
krabbamein og aðstandendur
þeirra.
„Krabbameinsfélagið, líkt og flest
önnur félög, hefur gengið í gegn-
um fjárhagslegar þrengingar á síð-
astliðnu ári. Við höfum þurft að
fara í gegnum alla okkar rekstr-
arliði og forgangsraða hvernig við
verjum best þeirri þjónustu sem
mikilvægust er,“ segir Sigríður.
MIKILL STUÐNINGUR ALMENNINGS
„Almennt má þó segja að stuðning-
ur við Krabbameinsfélagið hefur
haldist ótrúlega mikill. Við verð-
um vör við það hjá almenningi
að gömlu góðu gildin eru í heiðri
höfð, fólk vill leggja félaginu lið
og margir styðja félag-
ið með umtalsverð-
um upphæðum.
Aðrir leggja fram
minni upphæð-
ir, en allt skipt-
ir þetta miklu
máli.“ Sigríður
segir erfitt að
meta hvort fyrir-
tækjastuðningur
hafi breyst. „Stuðn-
ingurinn er gjarn-
an fólginn í ýmsum
átaksverkefnum, til
að mynda við kaup
á nýjum tækjum.
Við stöndum ekki
í slíkum stórræð-
um í ár en samt
er staðan þannig að
sjaldan hefur verið jafnmikil þörf
fyrir fjárhagslegan stuðning við
hin afar mörgu og brýnu verkefni
sem við stöndum frammi fyrir.“
BREYTINGAR Á LIÐNU ÁRI
„Nú reynum við að gera meira
fyrir sama fjármagn og höfum
gengið í gegnum talsverðar skipu-
lagsbreytingar sem hafa ekki verið
auðveldar,“ segir Sigríður og und-
irstrikar jafnframt að allar þessar
breytingar hafi miðast við að þjón-
ustan við skjólstæðinga félagsins
minnki ekki mikið.
Sigríður bendir á að eitt helsta
verk stjórnar Krabbameinsfé-
lagsins síðastliðið ár hafi verið
að vinna að stefnumótun félags-
ins til næstu ára, sem kynnt verði
um áramótin. „Helsta ástæð-
an fyrir þeirri vinnu er kannski
fyrst og fremst að skerpa þurfti
á áherslum félagsins, bæði inn
á við og út á við. Allir eiga að
hafa skýra sýn á það fyrir hvað
Krabbameinsfélagið stendur og
um hana þarf að vera breið sam-
staða,“ segir Sigríður og bætir við
að jafnframt þurfi að huga að því
hvernig samstarfi félagsins við
aðildarfélög er háttað og hvernig
megi ná bestum árangri.
„Félagið ætlar að vera í fylk-
ingarbrjósti á Íslandi í baráttunni
við krabbamein. Það teljum við
okkur geta gert með því að leggja
sérstaka áherslu á forvarnir og
fræðslu, vera sjúklingum og að-
standendum til stuðnings, vera öfl-
ugur vettvangur fyrir aðildarfélög
og stuðningshópa þeirra sem hafa
reynslu af krabbameini og styðja
við rannsóknir á krabbameini,
bæði í víðu og þröngu samhengi.
Síðast en ekki síst þurfum við að
vera kröftugur félagsskapur sem
aflar fjár til að standa straum af
öllu því sem hér er nefnt.“ - bn
Þjónustu má ekki skerða
Ráðgjafarþjónusta Krabbameins-
félagsins býður upp á stuðning
fyrir fólk sem hefur greinst með
krabbamein, aðstandendur þess og
vini en þar er hægt að óska eftir
sérfræðiviðtölum og fá upplýsing-
ar og fræðslu.
Þjónustan tók til starfa fyrir
tveimur árum og er um þriggja
ára tilraunaverkefni að ræða.
„Ég tel miklar líkur á því að við
fáum að starfa áfram enda ekki
vanþörf á,“ segir Ragnheiður Al-
freðsdóttir, forstöðumaður þjón-
ustunnar. „Við erum með aðstöðu
á fyrstu hæð Krabbameinsfélags-
ins að Skógarhlíð 8 ásamt stuðn-
ingshópum Krabbameinsfélags-
ins sem við erum í nánu samstarfi
við, enda skiptir það fólk yfirleitt
miklu máli að komast í samband
við aðra með svipaða reynslu.“
Ragnheiður er hjúkrunarfræð-
ingur en með henni starfar félags-
ráðgjafinn Gunnjóna Una Guð-
mundsdóttir. „Síðan erum við í
tengslum við sálfræðing, prest og
iðjuþjálfa auk þess sem við leitum
til læknanna ef þess gerist þörf.“
Lögð er rík áhersla á einstaklings-
og fjölskylduviðtöl en auk þess er
boðið upp á ýmsa fyrirlestra og
námskeið. Má þar nefna djúpslök-
un, námskeið í hugrænni atferlis-
meðferð, námskeið fyrir börn sem
eiga foreldra sem hafa greinst með
krabbamein, samverukvöld fyrir
ekkjur og ekkla og ýmislegt fleira
en reynt er að nálgast viðfangs-
efnið frá öllum hliðum. Í októb-
er hefst síðan nýtt námskeið
í tangó þar sem þátttak-
endur sækja innri styrk
í dansinn.
„Við leggjum mikla
áherslu á aðstandend-
ur og vini, sem oft verða
útundan þegar einhver
nákominn greinist með
krabbamein. Auk þess
reynum við að sinna lands-
byggðinni eins og kostur er.
Við förum reglulega út á land og
erum þá í samstarfi við félög og
stuðningshópa á hverjum stað
fyrir sig. Þar fyrir utan getur
fólk haft samband við okkur
í síma og með tölvupósti og
það sama gildir um fólk sem
er búsett erlendis.“ - ve
Veita fjölþættan stuðning
Rík áhersla er lögð á einstaklings- og fjölskylduviðtöl, aðstandendur og vini.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Þetta er þriðja árið sem við
tökum þátt í þessu,“ segir Vignir
Þröstur Hjálmarsson hjá Hreyfli
– Bæjarleiðum. Leigubílafloti
fyrirtækisins tekur stakkaskipt-
um þegar hinum hefðbundnu gulu
ljósum er skipt út fyrir bleik til
að vekja athygli á Krabbameins-
félagi Íslands og stuðningi við
brjóstakrabbameinsátakið.
„Auk þess eru bílstjórunum
afhentar bleikar slaufur til sölu í
hálfan mánuð en ekki er leyfilegt
að stunda fjáröflunarsölu lengur
en þann tíma, á meðan ljósin fá að
vera uppi í tvo mánuði. Andvirð-
ið af slaufunum rennur svo beint
til Krabbameinsfélagsins,“ segir
Þröstur. „Þá leggur Hreyfill úr
sínum sjóði upphæð sem svarar til
tíu króna fyrir hverja afgreidda
ferð frá stöðinni.“
Þröstur segir bílstjórunum
jafnan finnast gaman að taka
þátt. „Sumir eru þó náttúrlega
meiri sölumenn en aðrir,“ segir
hann og hlær.
En hvernig hafa viðtökurnar
verið? „Mjög góðar,“ svarar hann.
„Fyrsta árið söfnuðust 4,3 millj-
ónir, þar af seldust slaufur fyrir
2,7 milljónir en Hreyfill lagði til
1,6 milljónir. Í fyrra söfnuðust
6,3 milljónir, þar af seldust slauf-
ur fyrir nærri fimm milljónir og
Hreyfill lagði til 1,3 milljónir.“
Hann bætir við að í seinna
tilvikinu hafi mjög góður árangur
náðst, einkum í ljósi þess að fjár-
málakreppan hafi þá verið nýhaf-
in. „Það sýnir að ekkert er sleg-
ið af þegar gott málefni er annars
vegar. Nú er svo komið að þriðja
árinu, þannig að við skulum vona
að allir taki þátt.“ - rve
Brunað um í bleiku
Þröstur segir uppátækið hafa vakið tölu-
verða athygli erlendis. „Það hefur verið
þó nokkuð um fyrirspurnir frá erlendum
fjölmiðlum og framleiðendur taxaljósa í
Evrópu hafa sýnt þessu mikinn áhuga.“
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Félagið ætlar að vera í fylkingarbrjósti á Íslandi í baráttunni við krabbamein,“ segir
Sigríður Snæbjörnsdóttir, formaður Krabbameinsfélagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ný heimasíða Krabbameinsfélags-
ins, www.krabb.is, verður opnuð á
næstu dögum. „Gamla síðan upp-
fyllti ekki lengur þarfir okkar. Við
fórum því af stað með heilmikla
vinnu strax um mitt ár 2007,“ segir
Gústaf Gústafsson, markaðsstjóri
Krabbameinsfélagsins. „Í því fólst
meðal annars að hafa samband við
fólk sem greinst hefur með krabba-
mein, aðstandendur, aðildarfélög-
in okkar, fagfólk og fleiri, með
hjálp Sjá ehf.,“ útskýrir Gústaf. Úr
þeim upplýsingum var síðan búin
til síða sem kemur vonandi betur
til móts við þá sem þurfa upplýs-
ingar um krabbamein og starfsemi
félagsins.
„Eitt af fyrstu skrefum þeirra
sem greinast með krabbamein og
aðstandendur þeirra er að leita sér
upplýsinga, og í dag byrjar fólk oft
á netinu. Heimasíðan er því mjög
mikilvægt tæki á erfiðum tíma
og nauðsynlegt að fólk finni þær
upplýsingar sem það leitar að.“
Þó að síðan verði nú opnuð ný og
betri verður vinnu við hana hald-
ið áfram. „Heimasíðan verður mið-
stöð upplýsinga um krabbamein á
Íslandi og því í stöðugri þróun.“
Krabbameinsfélagið hannaði
heimasíðuna í samstarfi við
fyrirtækin Sjá ehf. og TM Soft-
ware. „Nýi vefurinn var settur
upp í WebMaster-vefumsjónarkerf-
inu. Við lögðum áherslu á einfalda
og aðgengilega framsetningu á
fræðslu um krabbamein og upplýs-
ingum um þjónustu Krabbameins-
félagsins. Á vefnum verður til
dæmis hægt að gerast styrktaraðili
og panta tíma í krabbameinsleit,“
segir Brynjar Kristjánsson hjá TM
Software.
„Við unnum ítarlega þarfagrein-
ingu með Krabbameinsfélaginu
og sú vinna skilaði félaginu vefs-
tefnu sem tekur á því hvernig vef-
urinn á að vera, hvaða hlutverki
hann gegnir í starfseminni og
hvernig félagið getur best nýtt sér
hann í sína þágu,“ segir Jóhanna
Símonardóttir hjá Sjá ehf. - sg
Heimasíðan andlit félagsins
Hér er mynd af gömlu heimasíðunni. Sú nýja er unnin í samstarfi við Sjá og TM
Software.